Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

rastafar1
rastafar1 Notandi frá fornöld 1.010 stig

eitt lítið ljóð... (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 4 mánuðum
eh, vaknaði með þetta ljóð einhvernveginn í hausnum og hef ekki náð að gera upp við mig hvort ég eigi að taka það og farga því því það sé svo lélegt. eða hvort ég fíli það. comment? Strengjabrúður Líkt og strengjabrúður fylgjum vér í einu og öllu fyrirskipunum valdsins í vestri, í blindni Algerlega ómeðvituð og óupplýst um afstöðu þá er vér tökum, sköpum vér ný vandamál fyrir heiminn.

Hip hop (0 álit)

í Hip hop fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Tha' Mic's á góðri stund…

Alþingi (1 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hér er eitt fallegt “umferðarmerki” sem mér þætti gaman að sjá í framtíðinni…

Landssímadeildin (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 8 mánuðum
fótbolti

Sagan af ógurlega og skelfilega manninum... (0 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ógnvæglegi og skelfilegi maðurinn, sem var jafnframt alveg rosalega, rosalega hræðilegur og illur, var vanur að læðast grunsamlega og ógnvæglega meðfram veggjum og skjótast einsog skugginn á milli dymmra, dymmra húsa sunda, svo enginn sá til í skjóli nætur. Og allir óttuðust ógurlega og skelfilega manninn. En dag nokkurn urðu ógurlega og skelfilega manninum á alveg hreint herfileg mistök er hann misreiknaði sig í útreikningum á himinstöðu tungls og sólar með þeim afleiðingum að hann var enn...

Misskilin veröld... (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Samkvæmt nýjustu rannsóknum vísindamanna, misskilur meðal manneskjan að jafnaði 6 hluti á dag. Þetta þýðir, að miðaðvið íbúafjölda jarðarinnar einsog hann er í dag, þá eiga 36 miljarðar misskilninga sér stað á hverjum einasta sólahring. Og þrátt fyrir þessa vel þekktu staðreynd, þá furða sig samt allir á því, að heimurinn sé á leiðinni til fjandans…

Stjórnarfall (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Sér til mikillar undrunnar og enn frekari skelfingar, áttaði þingflokksformaðurinn sig á því, þegar hann var kominn rétt inní ca miðja ræðu sína á ársþinginu, að hann var klæddur í mislita sokka, og hljóp skömmustulegur út. -Seina um haustið féll stjórnin.

Gula pressan (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
“Prinsinn framdi glæp til þess að heilla poppstjörnu” -Skorti á fæðubótaefnum og amerískum heilsudýnum kennt um ófarirnar. “Það er ekki manni bjóðandi að búa við þessar aðstæður! Bökkínghamhöll er að hruni komin og jafnvel Ricky Martin hefur það betur en ég” -Segir prinsinn um leið og hann segist ekki sjá eftir neinu. “ÞJÓÐIN Í SJOKKI!” “BRÚÐKAUP Í FANGELSI!?” …og drottningin neitar alfarið að tjá sig um málið. -Í næstu viku mun svo öll sagan endurtaka sig aftur og þetta mun enn koma öllum...

Hvorki fugl né fiskur (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Eymingja íkornamaðurinn, hann á enga vini. Því hann er hvorki, fugl né fiskur.

Hótelstýran (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Hótelstýran, rauðhærða. Telur sig vera svaka sæta, því það eru alltaf allir að glápa rasinn á henni. En hún veit ekki að hún er bara með sósublett á buxunum.

Reykelsi (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Ég get ekkert að því gert og mér þykir það afskaplega leitt. En glampinn í augum þínum minnir mig einna helst á reykelsi.

Sunnufellið (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
“Ansvítans óheppni að skipið skuli vera að sökkva…og ég sem að er ekki einu sinni búinn með uppvaskið” -Varð gamla kokkinum, sem kominn var á eftirlaunaaldur og sigldi nú í sinni seinustu ferð, að orði er skipið hans, Sunnufellið, standaði austur fyrir landi. Og þetta urðu því miður hans síðustu orð, því rétt á því augnabliki sem hann var um það bil að klára setninguna, féll hilla, sem notuð hefði verið undir uppþvottalög, á höfuð hans með þeim afleiðingum að hann rotaðist og sökk undir...

Alpahúfur (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Alpahúfur… hafa mér alltaf þótt bera afar einkennilegt nafn. Því, ef þær eru svona miklar Alpa…húfur Afhverju geta þær þá ekki, veitt eyrum mans og höfði það skjöl og þá hlýju sem nauðsyn krefur, þegar í alpana er komið?

Eymd fiskanna (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Vesalings fiskarnir, þeir geta ekki grillað sér sykurpúða. Því sjórinn er of blautur til þess að kveikja eld.

Blómabeðið (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Niðursoðnir kettir og ryðgaðar garðslöngur. Liggja, einsog óskilgetnir synir í blómabeðinu, í garðinum mínum. Þarsem gamla kaffistelið er grafið.

Á vígvellinum (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mjólkurdropinn dreitill og kókómjólkurkötturinn Klói féllu fyrir byssykúlum Marlboroman á vígvellinum í dag. Og þó svo að íþróttaálfurinn hafi reynt þeim að bjarga þá kom hann engum vörnum við. Því hann sat fastur í umferðarteppu á leiðinni til þeirra í strætó.

Seríjós spjall (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 3 mánuðum
“Hvort finnst þér betra…” “…honnínöttsseríjós eða venjulegt seríjós?” -Spurði drengurinn stúlkuna útá leikvellinum í frímínútum. “Nú auðvitað venjulegt seríjós” -Svaraði stúlkan en bætti svo við. “…því honnínöttsseríjós er svo rosalega óhollt” Og vonbrigðin leyndu sér eigi í augum litla drengsins. Honum hafði alltaf þótt venjulegt seríjós vera ótrúleg sóun á bragðlaukum.

Handahófskenndar orðarunur (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hmm…smá svona plögg. <plögg byrjar> Ljóðasafnið, Handahófskenndar Orðarunur, eftir Höjk(mig), er komin út. Bókin er samansafn ljóða eftir rithöfundinn og fæst hún versluninni 12 tónum. Kostar bókin ekki nema 500 íslenskar krónur og er hún því kærkomin kostur í jólapakkann, hvort sem pakkinn er handa manni sjálfum eða einhverjum öðrum. <plögg endar> Takk fyrir þetta :)

Saga um mann (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Einu sinni var gamall maður, hann átti fugl. Fuglinn dó og maðurinn grét. Parket gamla mannsins skemmdist.

Krossfesting (7 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 1 mánuði
&#8220;Hey! Afhverju verðum við ekki öll bara vinir? Væri það ekki gaman!?&#8221; -Sagði Jesú rétt áður en mennirnir negldu hann á krossinn. …hann vissi ekki að mennirnir kunnu ekki stakt orð í hebresku.

Kvöldganga eftir ströndinni (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Í volgri kvöldgolunni gengu þau eftir ströndinni. Himininn var tær og stjörnurnar sáust fullkomlega. &#8220;Þetta er fullkomið kvöld til þess að spila myllu&#8221; -hugsaði hann. En því miður var hún ekki á sama máli, hún hafði meira gaman af skák.

Á bókasafninu (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Eitt sinn er guð var á borgarbókasafninu að leita sér að bók Greip hann í bók eina eftir þjóðverjann Nietze, opnaði hana einhverstaðar rétt fyrir miðju og byrjaði að lesa. Það var svo eftir að hann hafði lesið ,rétt rúmlega eina setningu í bókinni Að hann áttaði sig á því, að hann hafði í raun og veru aldrei verið til og gufaði upp. …sem var frekar slæmt, því hann átti ennþá eftir að skila safninu bókinni um ísfólkið, sem hann hafði fengið lánaða rétt rúmri viku áður.

Tha' Mic's - Biblíusaga(oklarad) (9 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ehh…ja stundum leidist manni i tekklandi, kannski ekki alveg fullklarad en samt..senda thetta hingad. fa sma alit. vona ad thad virki ad copy-paste-a islensku stafina ——– Jesú var bastarður, óskilgetinn sonur / með menn í vinnu við finna sér konur. Þeir voru hans tryggu og dyggu lærisveinar / sem sáu til þess að þær væru ungar og hreinar. Enn dag einn þá brást einn lærisveinninn honum / með því að fær&#8217;onum fullt&#8217;af óhreinum konum. Jesú hann reddist og varð brjálaður / og á...

The Scar (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
erhm…einsog eg hef adur sagt, eg myndi skrifa a islensku ef eg hefdi islenskt lyklabord…en thangad til tha…verdur engilsaxneskan ad duga. The Scar: A long, long, time ago. In a country, far, far, away. Two little boys, approximately seven or maybe eight years old, were outside riding their bicycles. It was quite a warm night(or as warm as a night can get in a place known by the name of Iceland), and the boys were just wearing shorts and t-shirts. The sun had been shining all day long and it...

The Walk Of Prague (6 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eg vilja byrja a ad taka thad fram ad astaeda thess ad eg skrifadi soguna a ensku er su ad eg get ekki gert islenska stafi og personulega finnst mer thaegilegra ad skrifa heila sogu a ensku heldur en ad vera ad bifast vid ad skrifa sogu a islensku an islenskra stafa… The Walk Of Prague(Prague Gangan) One November morning, a few exchange students had decided to get together and meet in Prague. It was a quite a cold day, and all the exchange students were dying out of excitement. They had been...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok