Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

radical
radical Notandi frá fornöld 48 ára karlmaður
588 stig

Re: V-G

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þú vilt semsagt eiga rétt á peningum annara. Það breytir engu hvort þú ert námsmaður eða verkamaður, hvort þú ert fátækur eða ekki. Þú átt ekki rétt á vinnu annara. Lögin eiga ekki að vera kærleiksrík, þau eiga að vera réttlát. Og það er ekki réttlátt að þú eigir “rétt” á peningum annara. Þegar fólk tekur peninga sem það vann ekki fyrir og fékk ekki leyfi til að taka þá kallast það að stela. Það er ekki flókið að skilja það. Því segi ég og fullyrði að jafnaðarmenn vilja lögleiða þjófnað og...

Re: Um 20.000 útlendingar á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er einmitt málið. Fólk sem hingað kemur er frá öðrum menningarheimum. Þess vegna mega lögin ekki velja á milli eins og þau gera í dag, samanber þjóðkirkjuna. Lögin eiga ekki að vera kærleiksrík og stuðla að því að allir hafi það gott. Lögin eiga eingöngu að vera réttlát. Vernda fólkið og eigur þess gegn öðrum. Ef lögin væru þannig og á engann hátt öðruvísi þá liti þetta innflytjenda mál allt öðruvísi út. í fyrsta lagi kæmi fólk ekki hingað nema vera nokkurnveginn viss um að fá vinnu....

Re: Um 20.000 útlendingar á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Nei, ég hef ekki tekið eftir því.. langt í frá. Vonandi tókstu það ekki til þín þegar ég var að tala um bullið, það gæti hafið komið þannig út en það var alls ekki meiningin. Það sem ég var að meina var að það er nóg af bulli í gangi útum allt og óþolandi að tala við fólk sem getur ekki svarað á almennilegan og málefnalegan hátt og sagt hvað það meinar án þess að bulla og rugla í öðrum með skítkasti. Það var það sem ég átti við. Ég biðst afsökunar á því ef þú tókst þetta til þín á annan...

Re: Endilega skrifið greinar sjálfir

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
heh.. þetta ætti að vera sjálfgefið, alveg sjálfasgt að vera kurteis í framkomu og virða fólkið sem maður er að ræða við um hin ýmsu málefni þó svo að mismunandi sjónarhorn séu á málunum. Langar að skjóta inní einnú góði “quote”. Man ekki hver sagði það eða við hvern en boðskaðurinn er það sem skiptir máli, ekki satt. Tek það fram að þetta er kannski ekki alveg orðrétt. “I disagree of what you said, but I will defend to the death your right to say it.” friður potent

Re: V-G

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Það þarf ekki að kynna sér hana mikið til að vita hvert stefnir. Þeir vilja ráða hvernig fólk hagar sínu lífi, hvað má og hvað má ekki, hverjum á að hjálpa og hverjum ekki, hverjir hafa nóg og hverjir ekki. Þeir ætla að redda hlutunum fyrir okkur vitleysingana með peningum og vinnu sem við vitleysingarnir látum þá fá. Og svo fara þeir í fýlu ef við erum ekki sammála hvernig okkar vinnu er varið og skilja hvorki upp né niður í hvernig við vitleysinganir hugsum. Það er samt ekki hægt annað en...

Re: Rökleysur hægrimanna

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Er ekki í lagi hjá þér vinurinn? Alger óþarfi að kalla fólk fífl. Þetta sýnir bara að sumir hér á Huga hafa ekki þroska til að taka þátt í umræðunni og láta taka mark á sér. Það sem er að kommúnista stefnunni og öðrum jafnaðarstefnum er að hún er ekki réttlát á neinn hátt. Hún virðir hvorki frelsi né eigur manna. Allir EIGA allt saman og allir VERÐA að vera með hvort sem þeim líkar betur eða verr. Ríkið RÆÐUR ÖLLU sem fólk gerir og spyr engann hvað því finnst og notar vald laganna til að...

Re: Rökleysur hægrimanna

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Það er gott að þú hefur lausn á vandamálum heimsins. Það vantar fleira fólk eins og þig til að bjarga okkur hinum sem ekkert vita. Vonandi bitnar þessu hugmynd þín þó ekki á mínu frelsi og annara. Jafnaðarmenn eru á móti frelsi. Ég leyfi mér að fullyrða þetta. Hvernig get ég leyft mér að fullyrða svona? Verkin tala og fólk dæmist af verkum þeirra. Jafnaðarmenn, þegar þeir komast til valda, taka eignir manna og gefa öðrum sem á ekki jafn miklar eignir. Og ef einhver segir nei þá brýtur hann...

Re: Command könnunin

í Unreal fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þá getum við alveg sleppt því að hafa þetta map með því ekkert lið mun velja það… er ekki markmiðið að finna borð sem klönin gætu hugsað sér að spila? Til þess að uppfylla skilyrðin þarf mappið að vera nógu stórt til að rúma 6á6 og vera nógu jafnt báðum megin til að koma með einhverjar spennu í leikinn. friður potent

Re: Wtf??

í Unreal fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er flott eins og það er núna. Þetta hefur oft verið til umræðu og fólk vill hafa TL í DM (með fáeinum undantekningum þó). Á skjálfta er TL í DM og allir sáttir við það (langflestir allavega). Veit að þetta er ekki svona annarstaðar en þetta hefur fest hérna. CTF er það sem flestir spila og DM með TL er frábær æfing til að bæta dráps-skillið, sem er svo hægt að nota í CTF. Að nota TL í DM er þess vegna bara hið besta mál. Þetta eykur hraðan og gefur DM nýja og skemmtilega vídd.. ef þér...

Re: Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ríkið eins og það er í dag ætti að vera ólöglegt. Og ef það hefði verið “fundið upp” í dag þá væri það án efa ólöglegt. Ríkið, eins og við þekkjum það, er í einokunar og valdstöðu. Ríkið á ekki að skipta sér af markaðnum, nema þegar einhver brýtur grunnrétt einstaklinga. Það er einmitt það sem ríkið á að vernda og ekkert annað. Ríkið á ekki að eiga neinar eignir, einstaklingar eiga að eiga eignir. Einstaklingar eiga svo að nota sýnar eignir (sjálfan sig, landeignir eða hluti) til að lifa af....

Re: EKKI SAMÞYKKT??? Well I´m still "free to speak my mind anywhere!!"

í Unreal fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Mér finnst Unreal virkilega balanceraður leikur. Sum vopn eru mjög öflug, en eiga ekki allstaðar við. Ég hallast að þessu með TLinn, að setja einhvað batterí í hann sem hleður sig upp… annars er maður orðin svo vanur því að nota það núna að ég er ekki alveg viss um að ég myndi fíla það öðruvísi. Þegar UT2 kemur út þá er vonandi að það sé búið að stoppa meirihlutan af þessu cheesi sem hægt er að gera í UT núna, hvernig sem farið er að því. Ég held samt að aðalmálið verði utvélin og útlitið á...

Re: Leiðrétta Striker bull enn eina ferðina.

í Unreal fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég get ekki séð að það skipti neinu máli hvaða reglur eru á simnet, það er ómögulegt fyrir suma aðila að virða eitt né neitt. respect to those to deserve it? Ert þú í aðstöðu til að dæma um það? Þó svo að ég beri mikla virðingu fyrir þér Rad þá finnst mér þetta frekar barnalegt. Það á að virða alla, ekki bara þá sem þér þykir eiga það skilið. friður potent

Re: Um 20.000 útlendingar á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Er búin að lesa öll svör við þessum korki og ég get ekki betur séð en að það séu hreinlega nornaveiðar í gangi. Þó svo að ég, og greinilega aðrir hér, sé ekki sammála ritter í einu og öllu þá er það minnsta sem hægt er að gera að sýna smá virðingu. Við erum að tala um hlutina og málefnalegan hátt og svona skítkast eins og hefur verið hér í gangi gefur ekki rétta mynd af einu né neinu og ýtir undir enn meira bull. Sýnum smá stillingu hérna og tölum um hlutina á málefnalegan hátt. Óþarfi að...

Re: 50% íbúa Danmerkur múslimar eftir 40 ár

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Can't beat them, join them, can't join them.. breed'em out. Þetta er svona nokkurnvegin það sem er í gangi. Það er hinsvegar eitt í þessu: afhverju geta þau ekki “join us”? Kannski erum við ekki með nógu góð gildi í gangi, við viljum hafa okkar fyrir okkur og það á enginn að fá að taka það af okkur. Samt gerum við ekki annað en að taka frá hvort öðrum og dreifa því útum allar trissum og fólki í dag virðist vera alveg sama. Það er þannig að fólk vill flytja til landa sem eru frjálsari en þau...

Re: Um 20.000 útlendingar á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Lög landana sem innflytjendur fara til eru vandamálið, ekki fólkið sem flytur til þerra. Ég skil vel að fólk sé reitt þegar það er að borga mat og húsnæði fyrir fólk sem kemur og sest að í þessum löndum og einnig okkar. Málið er að það eiga ekki að vera lög sem segja að aðrir verði að borga mat og húsaskjól fyrir þá sem ekki eiga efni á því. Ef fólk vill hjálpa og getur það, þá er það hið besta mál. En að skilda fólk til að borga, gefa sína vinnu og eignir til fólks sem ákvað það að flytja...

Re: Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Það getur vel verið að Sjálfstæðisflokkurinn sé þetta sem þú segir að hann sé, ég ætla ekki einu sinni að reyna að mótmæla því. En þetta er samt eini flokkurinn sem er markvisst að minnka afskipti ríkisins af markaðnum, og það er skref í rétta átt, þó þeir taki því rólega og hafi það gott í leiðinni. friður potent

Re: Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég get nú ekki séð að það sé einhvað annað betra í boði. Á frekar að kjósa flokka sem vilja jafna auð landsmanna og þá skiptir engu hvort tilteknir einstaklingar unnu fyrir þeim auðæfum eða ekki. Taka frá einum til að gefa öðrum í nafni réttlætis. Ég veit bara ekki til þess að það sé til meiri hræsni og lágkúra en það (þó svo að hún sé án efa til). Ég er ekki að segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé mikið betri en aðrir flokkar, en að mörgu illu er þetta skársti kosturinn í stöðunni. Það er bara...

Re: Könnunin...

í Heimspeki fyrir 24 árum, 6 mánuðum
banana.. ekki nema að þú eigir salat? friður potent

Re: óendanleikinn aftur

í Heimspeki fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég held að við getum alveg skilið óendanleikan, þó við gerum það kannski ekki núna. Það er yfirleitt þanngig að þegar við svörum spurningu þá fáum við aðra. Þegar við erum komin “nógu langt” þá fáum við spurningu sem við höfum svarað áður (það er ekkert skylirði að spurningin verði að vera ný) og erum komin í hring. Þá ættum við að vita allt þó svo að það sé kannski ekki endir á spurningunum. Með þessu er ég ekki að meina hvað við gerum þegar við erum búin að svara öllum spurningum, heldur...

Re: Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er bara sorglegt. Ég skil ekki alveg ástæðuna sem liggur að baki svona ákvörðunum. Það væri gaman að vita hver hún er (og reyndar alveg nauðsynlegt). Þó að ég sé sjálfur trúaður þá skil ég ekki svona vinnubrögð. friður potetnt

Re: Um 20.000 útlendingar á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Hvaða “gríðalegu vandamál” eru þetta sem þú talar um? friður potent

Re: Fuglar sem borða myndir.

í Heimspeki fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Það gæti verið ég en ég skynja ákveðið vonleysi í þessu (og reyndar öðrum greinum sem þú hefur sent inn). Það getur vel verið að heimurinn farist á morgun eða á þriðjudaginn, ég trúi því hinsvegar ekki. Á meðan ég anda að mér þá veit ég að ég get haft einhvað til málanna að leggja. Nú veit ég ekki afhverju þú skrifar svona svartsýnar (get ekki skilið það öðruvísi) greinar hér. Þú hlýtur að vera að leita að einhverju, annars myndirðu ekki skrifa. Væri ekki fljótlegra að segja fólki að hverju...

Re: Flugdrekar fljúga ekki.

í Heimspeki fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Sumir flugdrekar eru litlir aðrir stórir. Í þessa stóru þarf marga menn til að halda niðri, ef ekki bara að tjóðra þá. En hvað myndi gerast ef við mydnum ekki halda aftur af honum heldur leyfa vindinum að feikja honum einhvert, og kannski okkur með. Gera það stóran flugdreka úr öllum þeim flugdrekum sem við höfum gert þannig að hann geti hrifsað okkur öll með, það hátt að við sjáum allt og skiljum hver okkar tilgangur, ef einhver er í þessu öllu saman. Ég, fyrir mitt leyti, trúi því að við...

Re: Lífið er lygi!

í Heimspeki fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Kannast ekkert við þessa kalla en ég þori að veðja að þeir voru mjög sniðugir. Það hinsvegar breytir engu í raun og veru hversu sniðugir þeir voru því þeir svöruðu engu í raun og veru, nema að allir pæla í öllu sem þeir skynja. Allir þessir menn, eins og þeir sem stunda þetta áhugamál, eru að leita að einhverju sem er fast. Það eina sem er fast er maður sjálfur, það er það eina sem fólk getur gengið út frá án þess að missa vitið. Ef þú ert lygi þá er það vandamál sem enginn getur leyst nema...

Re: Snilldar grein af SAMT.is

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
heyr heyr!! Nú trúi ég sjálfur á Guð. Og mín fjölskylda, eins og svo margar aðrar, gerum okkur dagamun á þeim dögum sem þessi trú okkar boðar. Samt sem áður má ég ekki og get ekki ætlast til þess að þeir sem ekki trúa á sama Guð og ég fylgi mínum hefðum og trúarbrögðum í einu og öllu. Og krafist þess að þjóðfélagið stoppi hreinlega á meðan ég geri mér dagamun samkvæmt minni trú. Þeir sem ekki trúa (eða trúa á einhvað annað) hafa fullan rétt á því að gera það sem þeim dettur í hug á þessum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok