Hin 12 okt. sendi Stiker (þessi sem er í uppáhaldi há okkur adminum eða þannig) inn eitthvað þar sem hann var að tala um bann á einhverjum félaga sínum og fannst það voða óréttlátt.

Það hefur ekkert bann verið í gangi í ca. viku eða svo. Eini maðurinn sem hefur verið bannaður síðan Balli og Loftur hættu sem admin-ar var einhver noname (ekki þekkt nick) sem hefur ekki beðist afsökunar á sinni hegðun enn í dag. Sá maður var ekki að fara eftir reglu 3 sem er á server-um simnets. Þessar reglur geta allir séð og eiga allir að vera kunnir áður en þeir spila á okkar server-um. Það er einnig hægt að sjá þessar reglur hér: http://www.simnet.is/unreal/serverinfo.htm

En þessi ákveðna regla sem um er rætt í þessu ákveðna tilviki hljóðar svo:

3. Use tasteful player names and tags. Do not use offensive or questionable nicknames or clantags. Examples of this are anything involving expletives, sexual references, racial/ethnic/religious/sexual.

Þeir sem ekki skilja þetta eru líklega of ungir til að spila leikinn.

Þetta ákveðan bann átti sér þannig stað. Ég fer inná server undir öðru nick-i en ég er vanur að vera með. Spila þar í smá stund og rek svo augun í að einhver er þarna sem kallar sig “Nigger”. Svo ég sendi út texta sem admin (gert í gegnum admin tól) hljóðandi eitthvað á þessa leið “Nigger change your nick and rejoin” svo kick-aði ég honum. Eftir nokkrar sekúndur kemur hann inn aftur og með sama nick og áður en nokkur nær að segja skapaðan hlut segir hann eitthvað á þessa leið “Go fuck your selfs”. Í því sama var þessi maður bannaður og það bann átti ALDREI að fara af nema að þessi viðkomandi aðili bæðist afsökunar í gegnum unreal@simnet.is svo var ekki gert. En í ljós kom að þessi IPtala sem þessi maður/kona var með var ekki föst og því voru aðrir leikmenn hjá sama internet þjónustuaðila að lenda í banni sem þeir áttu ekki skilið og því var þetta bann tekið af.

Eins og þið sjáið er ekki auðvelt að banna einhvern.

Að lokum.
Ég held að sumir ættu bara að halda sumum hlutum fyrir sig heldur en að gaspra eitthvað sem þeir vita ekkert um hér út á korkinn og gera þar með allt vitlaust í menningunni.

Alli