Ég var að velta því fyrir mér hvort þið (restin af skáldunum hérna) væruð ekki til í að senda inn uppáhalds lagatextana ykkar? Það væri athyglisvert að sjá hvernig texta þið fíluðuð, hvers konar tónlist þið hlustuðuð á og hvort einhver partur af ykkar innblæstri kemur frá þessum lagahöfundum? Ég skal byrja. Uppáhalds lagatextinn minn er úr lagi með hljómsveitinni Tool, af plötunni Lateralus. Textasmiðurinn er sjálfur söngvarinn (Maynard James Keenan) og hafa textarnir hans veitt mér mikinn...