kæri guð…

ég veit að þú ert kannski upptekinn
við að sinna öllum þessum alheimi
öllum þessum milljörðum
einmana trilljörðum
sólkerfa…

ég veit að í hverju sólkerfi eru þúsund
milljón hnettir með mögulegu lífi
og kannski eru milljarðir
sálna á hverjum hnetti
sem biðja til þín…

ég veit að allar þessar sálir hafa óskir
óteljandi margar mismunandi óskir
sem þú þarft að fara yfir
grannskoða og lesa
neita eða veita…

hmm… kæri guð
vildi bara biðja um eitt fyrir mig…

ehmm…sko ég vildi…
æææiii…
sleppum þessu…

amen
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.