aleinn í horninu situr hann feiminn
sköllóttur og bólugrafinn
spikfeitur og dreyminn
og líflaus líkt og stytta…

fær sér sopa af ódýrum bjórnum
reykir eina rettu
blæs frá sér reyknum
með wannabe cool grettu…



rífur af sér flöskubotnagleraugun
með fitugum höndum
og blæs frá sér andfýlunni…

tekur af sér úrið og hringana
teygir sig ofan í buxurnar
og spilar vasabilljarð í mínútu…

ráfar upp frá einmana borðinu
borgar fyrir bjórinn og pakkann
og hendir fimmhundruðkalli á dansgólfið…



fer út af nektardansstaðnum
og inn á næsta klósett
tekur í hurðarhúninn…

lýkur sér af á klósettinu
þrífur sér ekki um hendurnar
tekur í hurðarhúninn…

drífur sig skömmustulegur
út af skemmtistaðnum
tekur í alla hurðarhúna…



…nokkrum sekúndum seinna kem ég inn
til að skemmta mér og pissa…



…og tek í alla hurðarhúna…


-pardus-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.