þetta virðist vera kunnuglegt…

ég hlýt nú að fara að nálgast…

þetta virðist vera kunnuglegt…

ætli ég fari ekki að nálgast…

þetta virðist svo ansi kunnuglegt…

hugsar litli gleymni gullfiskurinn
meðan hann syndir hring eftir hring
innan um kúkaklepra
og klósettpappír…

í holræsunum
í leit að búrinu sínu…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.