ég er agnarlítið sandkorn í eyðimörkinni
sem hafði þann heiður að sitja næst þér
fyrir mörgum mánuðum síðan…

stormsveipur tók okkur
og færði okkur í sundur…



bíð enn eftir næsta sandstormi
til að finna þig aftur…

mun bíða að eilífu
eftir réttri vindátt…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.