ég hugsa að allt væri betra
ef líf mitt væri vídeóspóla
og tilveran myndbandstæki…



ég gæti þá ýtt á pásu
þegar hamingjan er á skjánum
spólað áfram
þegar leiðinlegu kaflarnir koma
eða til baka
til að upplifa eitthvað aftur…



en í augnablikinu
langar mig bara
að leigja aðra spólu…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.