Hvað er málið með svona stráka? Ef þú hefðir sagst vilja stunda kynlíf án þess endilega að byrja saman, þá væri hann ábyggilega slefandi yfir þér núna - hringjandi í þig í tíma og ótíma. Það að þú vildir byrja með honum fyrst hefur honum ábyggilega fundist þó nokkuð yfirþyrmandi og ekki treyst sér í það. Þú ættir nú bara (bara mitt ráð) að gleyma þessum strák og halda áfram… hann er greinilega ekki nógu góður fyrir þig! Ef strákar geta ekki beðið nógu lengi, þá eru þeir ekki þess virði. kv. pardus