Við ljósgullinn vornætur himin
ber hvíta sólvængjaða svani
á flugi yfir dimmblá og djúp heiðavötn
og hugur minn fagnar með svananna söng
um sumarsins nýfæddu drauma.