Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: ást og hatur

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mjög gott… það er virkilega þunn lína milli þessara tveggja hugtaka. Má ekki gleyma því að sem betur fer fer hatrið aftur yfir í ást oft á tíðum.

Re: vín, gleði, aldrei aftur.....

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hmmm… hver kannast ekki við þetta!? Fínt ljóð og skemmtileg endurtekning sem breytist svo í lokin :) Ótrúlegt að maður skuli vakna grútþunnur á laugardags- og sunnudagsmorgnum… hugsa svo hálfa vikuna að maður vilji ALDREI drekka aftur - svo fer maður á fimmtudegi eða föstudegi og kaupir sér 2 kippur! :þ Ekki sniðugt samt :S

Re: Rakt og rómantískt

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hehehe… ég hreinlega dýrka svona klæmin ljóð (hmmm… langt síðan ég samdi eitt slíkt - kannski maður ætti?) En allavega, skemmtilegar og mjög svo lýsandi myndir… vil helst ekki ímynda mér allt of mikið gömlu sjómannsfrúna með víbradorinn sinn… brrr… en þér tókst samt að kveikja á slíku í litla kollinum á mér >;) Lory: Ég held að hann meini með þessari setningu að hún hafi verið að dreyma um aðra karlmenn og leikið sér með víbradorinn (kinnrjóðir draumar) en þegar kallinn kemur heim...

Re: Orusta litla/stóra mannsins.

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er glæsilegt ljóð ;) Boðskapurinn skilar sér vel og þetta kemur skemmtilega út sem skammarræða ;)

Re: Hvað Fannst Erlendum Gagnrýnendum um St.Anger?

í Metall fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég verð að vera ósammála þeim sem segja að Metallica sé komin aftur í gamla gírinn. Á fyrstu plötunum (Kill'em all, Ride the lightning og Master of Puppets) voru mögnuð gítarsóló… getur einhver bent mér á eitt slíkt á St. Anger? Þessi plata er svo sem ágæt (gef henni 7 af 10) en mér finnst hún ekki venjast neitt þó ég hafi hlustað nokkuð mikið á hana… núna er ég horfinn aftur til gömlu góðu gítardagana og sleppi ekki MOP úr spilaranum!

Re: Hvert skal haldið?

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hreinlega dýrka myndlíkingar, þetta ljóð var uppfullt af myndlíkingum :) Dálítið erfitt að átta sig… er þetta um sumarið og þegar ritstíflan hverfur? Stefnuleysið og allt það sama sem ritstífla? Allavega verkar sumarið svoleiðis á mig - enda er ég búinn að hrúga inn ljóðum ;) Mjög flott ljóð hjá þér, fíla svona ;)

Re: Varnaðarorð um hinstu lausn

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Vá… takk fyrir hrósin! Gaman að koma loks með eitthvað sem vekur svona hrifningu! :)

Re: Tilgangslaus - Ekki Neitt

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Úfff… þetta eru bæði þung ljóð! Sko, þú mættir nota meira af ljóðrænum orðum og myndrænum í fyrra ljóðinu, þetta hljómar mjög eins og venjulegt samtal (ekki ljóð) en er annars ágætt. Seinna ljóðið fannst mér mun betra því þar notaðirðu myndlíkingar (strokleðrið) og það kom betur út. Aftur á móti mættirðu skipta ljóðinu betur upp (hafa eins konar erindi ef því er að skipta) - liti betur út þannig. Annars… sendu endilega fleiri ljóð inn, við tökum vel á móti þér og við bítum ekki - nörtum bara ;)

Re: Tárið

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mjög sorglegt en fallegt. Við grátum auðvitað öll einhvern tíma og ábyggilega oftar en einu sinni. Þú ert efnilegur :)

Re: Spiritual awakening.

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hef aldrei verið neitt sérlega hrifinn af enskunni þegar kemur að ljóðum, frekar af okkar ástkæra máli… en þetta var bara helvíti flott! Myndrænt og hefur mikla merkingu í sér.

Re: Gamle dage

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hehehe… snilld! Maður var aðeins farinn að ryðga í dönskunni en hún rifjaðist strax upp. Ég er svona að spá, víst að Johannes langaði til að… jaaaa… gera þetta með hana (og var að tala í myndlíkingum - auðvitað), hvernig stóð þá á því að hlaðan brann í rauninni? Mér er spurn? Allavega, kynlíf er ekki ónáttúra :þ

Re: Fjandans fjötrar

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Frábært skáldefni… vel samið, flott efni og snyrtilega unnið :) Sammála öllum hér að ofan… manni verður hálf-kalt og heitt í senn!

Re: Vonsvikni fuglinn

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Flott og sorglegt… “ef viljinn er fyrir hendi er allt hægt”. Höfum vængina viljann vantar stundum. “ef viljinn er blaktandi skar” - flott lína :)

Re: Sjálfsskoðun við hafið

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
þó húðin mín hafi“Д nánast frosið - (átti að vera “hafi”)

Toolfan

í Rokk fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Í tímaröð: (verð að hafa 10 plötur) 10. Queen - Best of platan 09. U2 - Joshua Tree 08. U2 - Achtung Baby 07. Metallica - Black Album 06. Marilyn Manson - Antichrist Superstar 05. Tool - Ænima 04. Tool - Lateralus 03. Pink Floyd - Echoes (Best of) 02. Led Zeppelin - Remasters 01. Tool aftur - Núna er það bara Lateralus og Ænima í spilaranum - Snilldarsnilldarhljómsveit! Farinn að hallast að því að þeir séu ein besta hljómsveit allra tíma!

Re: Guð minn...?!?

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jæja… mér líður svo miklu betur að hafa gert ljóð sem er betra en það síðasta, líka ágætis takmark að ná að semja betur en 5 ára börn gera ;) Mér fannst þetta nú reyndar vera meistaraverk frá mér (eitt af því betra sem ég hef gert) þannig að ég og þú erum greinilega ekki á sömu bylgjulengdinni! Aftur á móti tel ég það vera ótrúlega líklegt að ég þekki þig á einhvern hátt, einhver vinur minn sem hefur skráð sig nýlega til að djóka með ljóðin mín - endilega settu saman stöku og reyndu að gera...

Re: Strönd minninganna

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sérlega flott, sérstaklega lokaorðin: …Ég hætti að minnast Mundi allt í einu…. Að strönd minninga minna var einu sinni grá. Eg hafði bara, Málað hana gullna. Byrjar með svartsýni en endar með bjartsýni… snilld!

Re: Hálar brautir

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Úff… maður fær kuldahroll af því að lesa þetta. Mjög flott ljóð, myndrænt og sorglegt.

Re: Tryllingur við Tjörnina

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sammála Sólufegri, flott stemmning og skemmtilega orðað ljóð.

Re: Í fjötrum

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
ohhh…jæja… það þarf stundum snilling til að fatta snilling :þ (bara djók… fyrir þá sem ekki ná því). Maður ætti kannski að dýpka sig aðeins í ljóðagerð, svona til þess að geta komist nærri því sem þú hefur hælana?

Re: Í fjötrum

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er ótrúlega gott ljóð - ég hef sagt þetta áður svo sem en það á við núna; “eitt það besta í langan tíma!!!” :) Sko… ég lít á boðskapinn í þessu svona: Strákurinn vill leiða stelpuna út í eitthvað sem er varasamt eða hættulegt (til dæmis dópneysla eða… jaaa… eitthvað) og hún vill ekki koma. Hann suðar og nauðar í henni en hún gefur sig ekki og fer. Því næst vitum við af stráknum þar sem hann er ennþá í þessu hættulega (til dæmis í óreglu), stelpan slapp og hann er núna aleinn (úti í...

Re: Ástin

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Frábær myndlíking :) Þetta er svo satt fyrir suma… þó ástin sé nú ekki alltaf svona. Mjög gott ljóð - góð hugmynd!

Re: Afmælissonnetta til Bjarka vinar míns

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Frábært ljóð! Maður myndi nú verða klökkur ef vinur mans semdi svona ljóð um mann :)

Re: Snædísin

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Virkilega flott hjá þér :) En það er eitt sem ég myndi vilja spyrja um; Þegar þú talar um hörpu, spilar hún þá á hana eins og hjarta þitt? Geymir sem sagt hjarta þitt og spilar á það um leið? Skemmtilegt efni - var ekki annað ljóð frá öðru skáldi sem var svipað (eða þessi orð: “sem hörpuna mína geymir”?)

Re: Ómerkt gröf

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mjög flott… ég hef aldrei séð þetta ljóð áður þannig að ég held að þetta sé ekki stolið (þó vitanlega milljón manns hafi ort um svipað efni - ég þar á meðal líka) Þú ert orðin virkilega gott skáld cocobana, endilega haltu áfram á sömu braut :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok