Jaaaa… ég hef nú ekki gert mikið af þessu í síðustu ljóðum mínum, kannski fyrir 2 árum þegar ég skrifaði sem flest en ekki núna. Skoðaðu frekar þessi nýlegri (þar eru engir punktar).
Takk fyrir álitið divaa :) Ástæðan fyrir sundurleysinu í ljóðinu er sú að ég vildi koma öllum þessum setningum fyrir og setti þær svona inn. Þegar ég las svo yfir þetta ákvað ég að halda þessu svona því þetta er lýsandi fyrir því hvernig mér líður líka… sundurlaus og hugsandi margt í einu. En punktarnir… ég vildi ekki að hver setning byrjaði strax þannig að ég bætti við punktunum, eins og þeir væru eins konar “hik” áður en ég kom hverri setningu frá mér…
Í rauninni ótrúlega gott ljóð og gjörsamlega sker sig svo úr öllu hérna á síðunni!!! Ég hef ekki hangið mikið hérna upp á síðkastið en ef ég ætti að velja ljóð vikunnar í fljótu bragði - þá er þetta sigurvegarinn! :) Frábært hvernig þú líkir ástinni við lind sem holar steinhjartað í sjálfri þér… mér hefði aldrei dottið þessi magnaða lýsing í hug! Tregablandið líka - þetta er sárt en þú vilt samt meira… bravó!!!
Vá… þegar ég les þetta finnst mér eins og ég sé staddur í veröld þar sem haustið er að koma, það er dálítill svali úti og sá tími kominn þar sem maður hjúfrar sig undir sæng og finnur hitann skríða inn í kroppinn, hægt en örugglega :) Ég varð mjög latur af því að lesa þetta ljóð, nú langar mig bara að kúra og hugsa um alla fegurðina í heiminum. Yndislegt ljóð hjá þér Lynx! Alltaf gaman að vera minntur á það góða og það hlýja í heiminum :) Frábærar myndlíkingar og hvernig þú líkir trjánum við...
Þú ert reyndar mjöööög fjarri lagi Lynx í túlkuninni… ljóðið fjallar ekki um hring í beinni merkingu, það fjallar að vísu um djásnið mitt sem ég glataði en það fjallar ekki um hlutinn sem slíkan. Þetta fjallar um fyrrverandi kærustu mína - þá stelpu sem öll þessi ástarljóð mín síðasta eina og hálfa árið hafa fjallað um… meikar þetta þá meiri sense í þínum huga?
HEY!!! Óli Mól er bara snillingur! Hann kenndi mér í helling af tímum í Verzló (efnafræði á stærðfræðibraut). Ekkert svona diss út í svona bráðskemmtilegan kall… sei-sei-sei!!! :þ Annars… þú mættir auka fjölbreytnina í ríminu… svooooolítið einfalt og einhæft ljóð (no offense).
Jey!!! Gott að fá góð viðbrögð :) Takk kærlega fyrir álitin… ég er að koma aftur inn á ljóð eftir langa fjarveru, fer þá líka að gagnrýna og kommenta meira á ljóðin sjálfur hjá öðrum :) En línan í síðasta erindinu á nú að vera svona, gæti þó hugsanlega verið betri… kannski maður bæti úr því áður en bókin verður gefin út (sem verður… jaaaa… örugglega innan 5 ára ;þ)
Stutt, létt og gott… virkilega gott! ;) Alvöru ljóðaperlur eru ekki alltaf þær lengstu - heldur þær sem hafa mesta innihaldið! kv. pardus p.s. Mín ljóð eru mjög löng… öfunda fólk sem getur komið svona miklu fyrir í stuttu máli ;)
Nr. 2 er frábær, en hinir alltílæ ;) En svarið við spurningunni er einfalt: 0°C = 273,15°K 273,15°K/2 = 136,575°K Þar sem 0°K er alkul og 273,15°K er 0°C, þá er 136,575 gráðu frost svarið við spurningunni! Svar: -136,575°C ;þ
Rosalega gott ljóð! Þetta er skemmtilega upp sett sem samtal að hluta og frásögn að hluta. Boðskapurinn leynir sér ekki, óstöðugleiki nútímasambanda og sú staðreynd að margir sækja í ást sem huggun (kannast ekki við neinn en hef lesið mér til um það). Frábært, haltu áfram á þessari braut Jón Skúli!!! P.s, byrjunar-, miðju og lokaorðin passa SVO vel! Tveir verða að einum / einn verður að tveimur! kv. pardus
GLÆSILEGT!!! Loksins kemur eitthvað eftir þig hérna aftur! ;) Skemmtileg orðnotkun og enn betri skilaboð með þessu ljóði… varstu að svara Sólufegri og tmar eða??? ;þ
Hey já, takk fyrir hrósið divaa… langt síðan maður hefur fengið álit frá þér ;þ Gangi þér allavega vel í prófinu á laugardaginn, ég er líka að fara í Aðferðafræðipróf á sama tíma… pfff!!!
Sýra… eins og ég fíla ;þ Endilega sendu meira af þessu… gaman að lesa svona heilahrærandi ruglumbull… þó þetta sé kannski ekki ruglumbull, bara torskilið.
Þetta er nottla baaaaara steik!!!! En snilld engu að síður! Mættir endilega vanda málfar og stafsetningu, það var á mörkunum að ég hleypti því inn sem ljóð (en léti það ekki á korkinn)… þetta var bara svo hryllilega fyndið! (okey, kannski er ég með svefngalsa og þarf lítið til að fara að hlæja… en hló samt! ;þ)
tmar - gagnrýni þín er algjörlega út í bláinn og varla svara verð. Ég yrki eins og ég vil - minn stíll er minn stíll og ég þarf ekki að láta segja mér fyrir verkum, farðu með gagnrýni þína á annan stað (heitari) ef þú ætlar að gagnrýna á þennan hátt! “Mér finnst nefnilega, af því sem ég hef séð frá þér, þú ekki vera að ráða við að yrkja undir svona hefðbundnum hætti, þú hefur bara hvorki orðfærið né kunnáttuna í það.” Orðfærið hef ég, kunnáttuna hef ég svo sannarlega - en ég nota hvorugt… ég...
Flott ljóð, skemmtilegt rím sem kemur aftur og aftur fyrir (*etur). En ég veit ekki alveg hvað nafnið á að þýða (heitirðu Tómas og ert fæddur 91!!!!???) Ef svo er, þú aðeins 11 ára, þá ertu ótrúlega efnilegur ;)
Úfff… full mikil óreiða í málfarinu… ljóðið kom eiginlega ekki boðskapnum til skila? En allavega, ég veit að við miðum við að höfundar sendi bara eitt ljóð inn á dag, en JónSkúli hafði sent síðasta ljóðið inn í gær (en enginn hafði látið það inn - ég að læra og Lynx og Abigel ábyggilega uppteknar) og svo aftur í dag - þess vegna fékk hann að senda inn þessi tvö ljóð í dag… ekki halda að við mismunum fólki hérna ;þ
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..