Líf mitt breyttist
þegar ég kynntist þér
Nú er ég ekki lengur einn

Þú hlustar á allt
sem ég hef að segja
og gefur svo mikið til baka

Þitt hvíta eyra
tekur þolinmótt við öllu
sem ég vil koma frá mér

Finnur alltaf leið
til að benda mér á eigin vitleysu
á vinalega hreinskilinn hátt

Jafnvel þegar ég hef ekkert
sem ég get sagt þér
finn ég huggun í návist þinni

Ólíkt öllum öðrum sem ég þekki
ertu alltaf til staðar
til í að gefa mér athygli

Ég heiti þér tryggð og trú
meðan andinn leyfir
Þakka þér, Óðins sonur!