Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Menningarnótt 2003

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Skemmtilegt myndmál, “athyglisverð” saga og þrusugeggjuð sýra! Er alveg að fíla svona Deeq ;) Ég hef svo sem upplifað svona tilfinningu, þegar timburmennirnir stunda skógarhögg í massavís inni í kollinum á manni!

Re: Erfitt... alveg hrikalega erfitt...

í Rómantík fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Í fyrsta falli hefði verið langskynsamlegast að sleppa þessu! Ég hef lent í þessu sjálfur, sagði stelpunni og 14 mánaða sambandið endaði… mánuðirnir síðan þá hafa verið hryllingur! Treystu mér: ef þú telur þig hafa mikla möguleika á því að enginn segi henni - ekki gera það þá sjálfur. Alltof risky ef þú elskar stelpuna mjög heitt (plús: þetta var á fylleríi - það er ekki eins og þú hafir haft áhuga á stelpunni, þú sást strax eftir þessu, er það ekki?) Annars fer þetta líka allt eftir...

Re: Þvílík böl að vera manneskja en þvílík forréttindi

í Heimspeki fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mjög góð grein. Ég er fullkomlega sammála þeirri pælingu að það er bæði böl og blessun að vera manneskja. Ef við værum vitlaus gætum við ekki gert allt þetta sem við höfum gert en við gætum heldur ekki gleymt okkur í þunglyndi og niðurrifspælingum. Let's face it: Ástarsorg er ekkert annað en sífelldar pælingar um hvort hún elski mann ennþá eða hvort maður geti einhvern tíma elskað aftur, þunglyndi getur verið endalaus pæling í því af hverju fólk fór illa með mann og samviskubit er pæling í...

Re: Er rökrétt að trúa?

í Heimspeki fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég er ekki trúaður, hvorki á guð né Allah, Óðinn eða einhvern annan. Mér finnst það gáfulegast (auðvitað bara mín skoðun) að lifa lífinu og láta þetta koma bara í ljós á endanum. Mér finnst einnig líklegast að við rotnum bara þarna niðri í milljónir ára - algjörlega hugsunarlaus með öllu. Þess vegna er best að taka út tilveruskammtinn í þessu lífi en ekki að fórna því í einhverja guðadýrkun, treystandi á það að dvölin í Himnaríki verði betri. Life is a bitch and death is a bitch.

Re: Fl...Ótti

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Myrkrið er smám saman að hverfa frá flóttamanninum, byrjar á því að hylja sig, svo flýja undan ljósinu, hrasar og að lokum hverfur svo myrkrið - flóttamaðurinn er að flýja með myrkrinu en tekst það ekki til lengdar. Þetta ljóð á að vera furðulegt… enda fjallar það um geðsjúkling ;) Verst að þú skulir ekki fíla það. Annars er ég hálf uppiskroppa með efnivið núna - maður ætti kannski að taka sér smá pásu og safna? Það er alltaf gott fyrir ljóðskáld í þurrkatíð ;)

Re: Hárið á bakvið sviðið.

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Daaaaamn… maður á aldrei að fara á huga til að samþykkja greinar þegar maður er verulega þreyttur :S Þetta ljóð átti nottla að fara á “styttri ljóð” en ekki sem grein (þið sem hafið lent í því að ég hef ekki samþykkt ljóðin ykkar og látið inn á korkinn vegna lengdar - þetta var óviljandi núna… sowwwwy! ;)) En annars… skemmtileg verslunarmannahelgarstemmning í þessu ljóði!

Re: Bragðgóður Stefán í dill sósu með jarðeplamauki

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Trying to make a point, are we?

Re: Eyðimerkursandur

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta er eitt af mínum slappari ljóðum. Aftur á móti get ég ekki verið sammála því að ljóðið eftir Brown sé betra en þetta - ljóðið eftir Odd er það aftur á móti.

Re: Sólarkveðja

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mjög fallegt :) Þetta er vissulega mjög þekkt minni (eftir regnið kemur sólin - einhvern tíma) en þú notar það vel í þessu ljóði.

Re: Ótímabær friður

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mjög fín líking og skemmtilegt myndmál! :)

Re: Eyðimerkursandur

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Jaaa… það er kannski sorglegt og ágætlega fallegt, en mér finnst það samt alltof, alltof væmið :S Næsta ljóð verður miklu harðara :þ

Re: Því að dissa eigin ljóð?

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Öhmmm… recipe er borið fram “resepí” - svona svipað eins og you er borið fram “jú” en ekki “væójú” :þ Recipe er stafað svona og þýðir “uppskrift”.<br><br>“Without her we are only lifeless satellites drifting…” (Tool - Reflection)

Re: 3 orð

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég held að ég sé ekki að ljóstra neinu upp þó ég segi já við þessu ;) Þetta er, og á að vera nokkuð augljóst sko. En jú, þessi 3 orð saman eru þau fegurstu í heimi - sammála því :)

Re: Einn góðan veðurdag

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Virkilega flott ljóð og frábært myndmál! Sammála Sólufegri um að þú lofir góðu ;) En eru ekki annars flest ljóðskáld í óstöðugu ástandi? Ég held að flest ljóðin hér eru samin sem útrás fyrir tilfinningarnar.

Re: Óvissa

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég lít á ljóðið þannig: Þú hefur verið ástfangin af manninum í heilt ár en aldrei þorað að taka af skarið. Svo þegar hann hverfur úr lífi þínu (flytur eða eitthvað svoleiðis) þá kyssir hann þig og gefur í skyn að þú hefðir alltaf getið fengið hann - tilfinningin hafi alltaf verið gagnkvæm? Er ég á þvílíkum villigötum eða kannski nærri lagi? ;) kv. Danni

Re: Til Péturs.

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er frábært Særún, til hamingju með það! :) Held að þú eigir það vel skilið!

Re: Ef ég gæti

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hehe… ef þú myndir fara aftur í tímann og stroka út allar villurnar - þá myndirðu aldrei þurfa að skrifa þetta ljóð! Mjög sniðugt og skemmtilegt ljóð ;)

Re: Lifsins logi

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sammála fyrri gagnrýnanda… væri mjög gott ef þú gæfir þér aðeins tíma til að raða þessu orðapúsli upp ;) Eeen… góð pæling engu að síður - það slokknar alltaf á öllum logum, ást, lífi eða hverju sem er.

Re: my pray

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mjög gróft… þú ættir kannski að reyna að fara í kringum efnið með aðeins betra orðavali? Fuck, buttfuck, ugly og hate eru klisja - smá ráðlegging… ég myndi gera þetta aðeins myndrænna, ekki stökkva beint inn í ljótleikann? Bara ráðlegging ;) Pardus

Re: Til Péturs.

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Virkilega fallegt :) Ég er nokkuð viss um að Pétur verður ansi ánægður!

Re: 3 orð

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ehemm… átti víst að vera “m” þarna í “þínu vörum” (þínuM vörum)

Re: \

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Vá! Þakka ykkur öllum fyrir þessi hrós :) Ég var virkilega að reyna að semja einhver tregaljóð, byrjaði á hinu og þessu en allt í einu áttaði ég mig á því að ég væri orðinn svo hrikalega aumkunarverður… ákvað á þeirri stundu að gera bara stólpagrín að sjálfum mér - þó með alvarlegu ívafi líka. Alltaf gaman að fá svona viðbrögð :)

Re: Leyndarmálið

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Úff… flott ljóð en rosalega dimmt! Verð að segja að þú ert hörkugott skáld.

Re: sorg

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Tær snilld! Ég held að það sé ekki hægt að segja neitt annað um þetta. Lýsir vel fílingnum og er vel sett upp. *Klapp**Klapp*!!! :)

Re: Sunnutraust

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Long time… no poem! Velkominn aftur Deeq ;) Þetta er nú bara virkilega fínt ljóð hjá þér þarna… djúpt og doldið torskilið - eins og þín var von og vísa. Lít svoleiðis á þetta eins og þú sért að fá vonina aftur? ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok