Sælir hugarar

Málið er að um daginn fór ég á ball með vinkonu minni og hitti þá strák sem ég þekkti ekki beint en vissi alveg hver var. Við tengjumst aðeins því að góður vinur hans og besta vinkona mín eru saman.
En ég var eitthvað að dansa við hann og fékk sopa af drykknum hans og svona og síðan allt í einu kyssti hann mig. Allt í lagi með það, og eftir það þá vorum við saman þetta kvöld og við fórum svo heim til hans (en við gerðum ekkert sérstakt þar, kúruðum bara)..
Ég skemmti mér mjög vel með honum og fannst hann skemmtilegur og fyndinn, og svo virtist hann geðveikt góður og var ekki að reyna neitt eða eitthvað svoleiðis. Mér leið bara geðveikt vel með honum.
Ég hafði samt frétt af því að hann væri að dúlla sér með einhverri smástelpu, en hann sagði að það væri allt búið og það hefði bara verið eitthvað tímabil hjá honum sem væri löngu búið, og ég tók því bara sem gott og gilt..
En daginn eftir þegar ég fór heim þá kyssti hann mig bless og ég var alveg alsæl, hafði áhuga á honum eftir þetta og vonaði að það væri gagnkvæmt.
Hann fór svo á sjó um kvöldið en kom þremur dögum seinna, og þá hafði ég samband við hann og spurði hvort hann vildi hitta mig. Hann var alveg til í það og það endaði með því að ég kom til hans þetta kvöld. Ég var svolítið feimin við hann fyrst en síðan fórum við að spjalla og svo eitthvað að fíflast og dúlla okkur hjá honum og þá var allt í lagi..;)
Ég spurði hann síðan hvort við værum saman eða hvort við værum bara eitthvað að leika okkur og þá sagðist hann vilja kynnast mér betur og sjá svo til, og mér leist bara mjög vel á það..
Þegar ég fór heim frá honum þetta kvöld þá hann kyssti mig aftur bless, en í þetta sinn oftar en einu sinni hehe :)
En þegar ég var komin heim þá sendi hann mér sms og spurði hvort ég vildi spjalla við hann á meðan hann fengi sér að borða. Ég var alveg til í það.. Hann spurði mig síðan frekar persónulegra spurninga, eins og hvað ég myndi vilja gera með strák ef ég mætti gera hvað sem er og svoleiðis (ég er hrein og hann veit það)..
Ég sagðist helst vilja vera í sambandi þegar ég gerði það fyrst og hann sagði bara að það væri fínt..
En síðan daginn eftir þá sá ég hann á rúntinum með vini sínum og þá var eins og hann væri eitthvað hræddur við mig og heilsaði mér ekki eða neitt svoleiðis.. Svo smástund eftir það þá sendi ég honum sms og spurði hvort hann vildi fara á rúntinn með mér og vinkonu minni en þá sendi hann ekkert til baka. Mér fannst það svolítið skrýtið og brá svolítið við það.
Síðan um kvöldmatarleytið sagði vinur þessa stráks mér að hann hefði spurt hvort hann (strákurinn) og ég værum eitthvað saman, en þá sagði hann bara að þetta hefði bara verið eitthvað fyllerí og ekkert til að taka mark á. Það var mikið áfall fyrir mig og ég varð mjög leið þegar ég heyrði þetta..
Síðan daginn eftir þetta frétti ég að hann hefði verið á rúntinum með einhverjum smástelpum kvöldið áður.
Einnig heyrði ég að hann hefði bara verið með mér til að svekkja einhverja smástelpu sem var með vini hans kvöldið áður en hann var með mér..:(
Ég var mjög leið þennan dag út af þessu, því að ég var orðin frekar hrifin af þessum strák og er það enn, og ég er að reyna að gleyma honum en það er erfitt. En svo fór ég að hugsa; Allt í lagi, ef hann vill frekar vera með einhverjum ógeðslegum smápíkum sem eru ekki einu sinni komnar á kynþroskaskeiðið og eru alltaf með einhverja gelgjustæla heldur en mér, ósköp venjulegri og fínri stelpu sem er á hans aldri og alls ekki á gelgjunni, þá er það bara hans missir! Bara fuck him skiljiði??
Ég vil bara fá að vita hvað ykkur finnst um þetta allt saman og hvort þetta sé ekki rétta hugarfarið hjá mér til að gleyma honum.? Ég meina, maður á alltaf að hugsa svona: Ef hann vill mig ekki, þá missir hann af miklu! Er ég ekki að gera það rétta?
Og líka eitt enn: Hvað er málið með stráka sem eru rosa hrifnir af svona smápíkum? Af hverju vilja þeir þær frekar en okkur hinar?
Vinkona mín spurði mig um daginn hvort ég væri kannski bara til í að vera vinkona hans, því að hann á soldið marga stelpuvini, en ég veit ekki hvort að það sé best, því að svo byrjar hann kannski með einhverri stelpu og ég myndi þá eiga erfitt með að sætta mig við það, og svo er ég ekki viss um hvort ég myndi vilja vera vinur stráks sem fer svona illa með stelpur, ég meina hann var að dúlla sér með 1 eða 2 öðrum þegar hann var með mér!
En það væri allavega æðislegt ef þið gætuð allavega svarað einhverri af þessum spurningum sem ég er að spyrja ykkur.
Takk fyrir að nenna að lesa þetta :)
Kveðja,
friend
Ég finn til, þess vegna er ég