Sæll deTrix25, Ég hef ákveðna reynslu af þessum bransa, og sýnist á öllu að menn byrja með hreint borð í samskiptum við yfirvöld. Ef þetta traust bregst á einhvern hátt, þá finnst mér ekki skrýtið að viðkomandi aðili sé ekki lengur tekinn með einhverjum silkihönskum, enda gefur auga leið að það þarf kannski að hafa varann á þegar hann er annars vegar. Varðandi Jórvík, þá finnst mér sorglegt hvernig þeir eru að enda, og sérstaklega að fjölskyldur þurfa að líða fyrir mistök heimilisfeðranna....