Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

otri
otri Notandi frá fornöld 190 stig

Re: Flugslys á Reykjavíkurflugvelli - söguleg uppt.

í Flug fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Í mínum huga er notkunin á orðinu “Fórst” er þegar vél krassar það illilega að hún “Ferst með manni og mús”, þ.e. allir um borð láta lífið. Reyndar getur verið að Brotlending í þessu tiltekna dæmi sé ekki rétta orðið, það er rétt. Heppilegra gæti verið að segja “Hlekktist á í flugtaki” Í þessu tiltekna dæmi ef ég man rétt þá var Beechcraft flugvél í flugtaki að vetrarlagi og það var snjór á vængjunum á henni þannig að í raun fór hún aldrei að fljúga. Ég held hún hafi rétt lyftst frá jörðu og...

Re: Munurinn á Fokker 50 og ATR-42-300

í Flug fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Þetta minnir mig nú á þegar ég var upp á Sandskeiði fyrir nokkrum árum með þotuflugmanni og það varð allt vitlaust þegar hann sagði um sviffluguna: “Já, þetta eru spoilerear þarna á vélinni”. Svifflugmaður brást hinn versti við og svaraði um hæl: “Þetta eru ekki spoilerar, þetta eru LOFTBREMSUR”. Þeir körpuðu síðan í nokkrar mínútur um hvort væri hvað og skildu ekki í sérstökum vinskap.

Re: Þjónusta Símans

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Já, ég styð allsherjar boycott á Simnet! Það fyrsta sem þið getið hætt að fara inn á er hugi.is, er hann ekki rekinn af Símanum Internet annars?????

Re: Munurinn á Fokker 50 og ATR-42-300

í Flug fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Í dag eru allir flugmenn á ATR þjálfaðir í því að bregðast við mikilli ísíngu. Það felst aðallega í því að slökkva á autopilot við þessi skilyrði. Fokker getur líka lent í mikilli ísingu eins og ATR og ég man ekki betur en að síðasta vetur hafi Fokker frá FÍ næstum krassað yfir Breiðafirði í mikilli ísíngu, allavega voru tveir sveittir sem lentu vélinni í bænum. Varðandi þægindi fyrir farþega, þá hef ég bæði flogið sem farþegi með ATR/FOKKER. Mér finnst fara betur um mann í ATR, það eru...

Re: Flugslys á Reykjavíkurflugvelli - söguleg uppt.

í Flug fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég myndi ekki segja: “Beechcraft fórst í flugtaki á 02 ” heldur brotlenti. Reynum að minnka hasarinn í kringum flugóhöpp og köllum þau því nafni sem við eiga hverju sinni. Ég myndi t.d. segja í þessu tilviki “Brotlenti”.

Re: Hvenær kemur arftaki C-150/152 ?

í Flug fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Um 100.000 evrur, þ.e. 9.000.000 ISKR otri

Re: fammhald

í Flug fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Fyrstu vangavelturnar þínar varðandi val á vélinni er að þú heldur að það sé erfitt að fá varahluti í þessar vélar. Ég bendi þér á að Socata hefur framleitt TB vélarnar síðan 1978, 23 ár, samfleytt. Á þessum tíma eru þeir búnir að framleiða um 2200 vélar af TB-9, TB-10, TB-20, TB-21TC og TB-200. Það er ca. 100 vélar á ári. Varahlutir í Socata eru ekki eins ódýrir og í Cessnu 150 en ekki eins dýrir og t.d. í Becchcraft Skipper. Yfirleitt tekur um 3 til 10 daga að fá varahluti í þessar vélar....

Re: Flugslys 3 maí 1943

í Flug fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ef þið viljið hjálpa þessum aðila eitthvað þá mæli ég með að þið talið við Eggert Norðdal, en hann veit ALLT um flugvélar sem voru hér á stríðsárunum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok