“Rollout” á Eclipse E500 sex sæta $850,000 þotu átti sér stað sl. laugardag í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Albuquerque. Meira en 1500 manns, viðskiptavinir, undirverktakar, hluthafar, starfsmenn og fleiri voru vitni að fyrstu opinberu sýningu vélarinnar. Í síðari hluta júnímánaðar gaf fyrirtækið ekki upp heildarpantanir, en samkvæmt grein í Wall Street Journal síðasta föstudag, heldur fyrirtækið því fram að það hafi meira en 500 pantanir frá kaupendum sem hafa greitt óendurkræfa innborgun....