Sælir, Auðvitað skiptir máli hvað félagið heitir, FÍE á nú einu sinni þennan “hundakofa” með öðru einkahlutafélagi. Einu sinni átti Flugklúbbur Reykjavíkur heima “on top” en var fluttur í FÍE heimilið, þar sem hann gufaði síðan upp. Ég er þeirrar skoðunar að þessir laugardagsfundir og annað félagslíf eigi heima í félagi sem heitir t.d. Flugklúbbur Reykjavíkur, hvar sem hann yrði til húsa. FÍE á að vera, og var lengi vel (stofnað á fjórða áratugnum) Íslandsdeild AOPA, sem eru gífurlega öflug...