Ég er þeirrar skoðunar að þessi umræða sé algerlega fráleit. Jú jú, sumir vilja lesa bókina á málinu sem hún var samin á, þeir um það, en það er út í hött að amast við því að bókin sé þýdd. Ég minni á að mörg nöfnin tók Tolkien úr íslensku og þýddi yfir á ensku. Af hverju, vegna þess að hann samdi bókina fyrir Englendinga. Frodo, Gandalf, Sam og Gollum eru aftur á móti ekki Englendingar og þess vegna út í hött að krefjast þess að þeirra nöfn séu ensk. Myndum við vilja kalla Andrés Önd Donald...