Ágæti lesandi

******************** Hér að neðan gætu leynst spoilerar fyrir þa aula sem ekki hafa séð FOTR og þá sem eru spenntir að horfa á stærri DVD útgáfuna *************************************

Ég var að fá útborgað um síðustu mánaðarmót og ákvað að fjárfesta í stærri DVD pakkanunum af FOTR. Umbúðirnar lofuðugóðu svo og myndin, svo að ég var gríðarlega spenntur að sjá hverju hefði verið bætt við.

ÉG og félagi minn byrjuðum að horfa á hina “nýju” mynd og vitir menn hún var stórkosleg! Breytingarnar hafa gert ótrúlega mikið fyrir myndina!
Það sem ég tók fyrst eftir er að byrjun myndarinnar er miklu betri. Þar er sýnt meira frá Hobbitunum og atriðin eru einhvernvegin miklu heilsteyptari. Ekki hoppað svona mikið úr einu í annað. Þú færð betur á tilfinninguna að þeir séu að leggja af stað í ferð. Það er miklu skemmtilegra.
Ég býst nú ekki við mörgum svörum um þetta en ég mæli með þessari útgáfu! og það er synd að hún hafi ekki verið sýnd í bíó!!!

kveðja