Það skiptir ekki máli hvaða hugmynd er notuð til að ná völdum, aðferðin er sú sama: “Ástandið er slæmt núna. Svona ætti það að vera. Ef þið styðjið mig í einu og öllu þá mun hugmyndin verða að veruleika.” Hver hugmyndin er skiptir í raun ekki máli, heldur maðurinn sem ætlar að framkvæma hana. Kommúnismi er því miður bara fallegur draumur sem mun aldrei virka í mannlegu samfélagi. Kveðja, Ingólfur Harri