Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mimir
mimir Notandi frá fornöld 45 ára karlmaður
402 stig

Fáðu sem mest út úr þínu atkvæði (12 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fyrir fjórum árum var ég í miklum vandræðum með hvaða bókstaf ég ætti að setja minn fyrsta kross við í alþingiskosningum. Ég vissi reyndar alveg hvaða flokkur samrýmdist mínum skoðunum sem best í þeim málum sem mestu skipta en ég fór að spá í hvar atkvæðið mitt mundi hafa mest áhrif. Flokknum sem ég átti sem besta samleið með, VG, gekk nefnilega ekki allt of vel í könnunum og ég taldi að kannski væri ég bara að fleygja atkvæði með því að kjósa hann og því kaus ég Össur í staðinn. Sem betur...

Hversu oft hefur þú (23 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þessa síðustu daga kosningarbaráttunnar hafa stjórnarflokkarnir lagt höfuðáherslu á að þeim einum sé treystandi fyrir stjórn landsins og að þeir sem kjósi einhverja aðra séu nánast föðurlandssvikarar, eða það má helst skilja á hamförunum sem eiga að ganga yfir okkur ef núverandi stjórn fellur. Þarna treysta stjórnarflokkarnir á gullfiskaminni kjósenda. Sjálfur treysti ég því að þeir hafi misreiknað minni okkar. Það getur hins vegar verið að við þurfum aðeins rifja upp með sjálfum okkur...

Óheilbrigð skynsemi íhaldsins (33 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Eins og alltaf fyrir kosningar spretta fram á varir stuttbuxnastráka ýmsar fullyrðingar sem er ætlað að rýra traust almennings á andstæðingunum. Nánast undantekningalaust vantar öll rök eða heimildir á bak við þessar fullyrðingar og þó það sé oft ekki mikið mál að hrekja þær þá er það auðveldara, sérstaklega fyrir okkur unga fólkið sem þekkir minna til stjórnmálasögunnar, að bara trúa þeim. Ein þessara fullyrðinga er á þann veg að Steingrímur J Sigfússon hafi greitt atkvæði gegn...

Hver er maðurinn? (103 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
· Ég er lýðræðislega kjörinn forseti þjóðar minnar þó svo að meirihluti kjósenda hafi kosið annan mann sem forseta. · Ég vil koma á lýðræði í Írak. · Til þess að gera það ætla ég að leggja fram ályktun í Öryggisráði SÞ þar sem kosið verður um hana á lýðræðislegan hátt. · Þeim þjóðum sem styðja ályktun mína verður ríkulega launaður greiðinn meðan þær þjóðir sem standa gegn mér eða sitja hjá skulu fá að finna fyrir refsiaðgerðum mínum. · Ef samfélag þjóðanna hafnar aðgerðum mínum þá mun ég,...

Eins og litlar stelpur að leika sér (30 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Í dag rifjaðist upp fyrir mér þegar ég varð vitni að því þegar litlar stelpur voru að leika sér og hvað gerðist þegar inn í hópin kom óvelkomin stelpa. Ekki gekk að leyfa henni ekki að vera með þar sem það hefði kallað á skammir frá foreldrunum. Í staðin var brugðið á það ráð að breyta leikreglunum jafn óðum þannig sú óvelkomna lenti alltaf í versta hlutverkinu. Að lokum fékk hún auðvitað leið á leiknum og hætti (að eigin frumkvæði). Þetta er svo sem ekki frásögu færandi og ekki óalgengt að...

Sjálfstæðis- og lýðræðisímynd Evrópubúa (13 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Nú tala ESB sinnar varla um annað að hvað ESB geti ekki verið annað en lýræðið uppmálað þar sem þar eiga aðild rótgrónar lýðræðisþjóðir. En það er tvennt ólíkt lýðræði innan ríkis eða lýðræði milli ríkja. Innan ESB er mjög ójöfn valdsdreifing milli ríkja. Og vegna stækkun sambandsins eru stóru stofnþjóðirnar farnar að hafa áhyggjur af stöðu sinni og nota því öll möguleg ráð til þess að auka völd sína á kostnað annara þjóða. Annað sem aðildarsinnar gera er að spyrja af hverju svona margar...

AÐILD EÐA DAUÐI (37 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þannig tala ESB sinnar um aðildina. Þeir setja dæmið þannig upp að við séum á fjórðu hæð í brennandi húsi. Eini möguleikinn sem þeir sjá er að stökkva út um gluggann og bara vona að varanleg örorka verði ekki allt of mikil. En það er enginn eldur í húsinu og öll skelfingin er einungis af völdum brunaboða sem aðildarsinnar sjálfir hafa sett í gang. Nú er ég ekki að segja að allt sé fullkomið hjá okkur, fjarri því. Ég er heldur ekki að segja að ekkert eigi að gera til þess að bæta stöðu okkar...

Ástæða þess að D-listi er enn með (57 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég verð að játa að ég var hér um bil búinn að afskrifa Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík og fannst öll spenna vera horfin úr þessu. En Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið öllum á óvart og er kominn ansi nálægt R-listanum. Og það sem kemur meira á óvart er hvernig þeim tókst það. Ég held að sumir innherjar geti eignað sér hluta af heiðrinum. En hvernig tókst þeim að halda sér inni í leiknum? Það er allavega ljóst að það var ekki með því að tala svo mikið um hvað þeir ætla að gera ef þeir komast...

Laufa frelsaði mig frá vinstrivillu. (41 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Laufa mín. Ég þarf bara að þakka þér kærlega fyrir bjarga mér frá vistrivillunni. Þetta er alveg rétt hjá þér sem þú segir í þræðinum hér fyrir neðan, það er brjálaði að vera að kvarta eitthvað meðan fólk í sumum löndum á ekki einu sinni sjónvarp!!! Það er ekkert nema ósvífni hjá mér að vera að rífa kjaft vegna þeirrar vandvirkni ríkisstjórnarinnar að spurja forseta hæstaréttar hvað sé það allra minnsta sem hægt sé að bjóða öryrkjum án þess að fá strax dóm á sig. Alveg eins er það rangt að...

Stöðvum vitleysuna strax! (47 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Klassísk leið þeirra sem leiðast út í glæpi er þannig að fyrst sannfæra þeir sig um það sem þeir séu að gera sé ekki glæpur. En síðan sannfæra þeir sig um að ganga lengra og lengra með því að segja að þannig séu þeir að tryggja sig fyrir afleiðingum upprunalegu mistakana. Til þess að “fela” fyrsta glæpinn er nauðsinlegt að ganga lengra og lengra. Sömu aðferð er nú notuð af stuðningsmönnum ESB og ég er ekki frá því að þeim hafi tekist að sannfæra sjálfa sig allvel. Fyrst staðhæfa þeir að EES...

Forgangsröðum - sprengjur vs matur (10 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Undanfarnar vikur og mánuði hefur flugumferð yfir Afganistan verið meiri en nokkurn tímann áður. Þarna haf stórar sprengjuvélar, orustuþotur og herþyrlur flogið fjölda leiðangra til þess að sprengja hryjuverkabúðir, draga allt súrefni úr hellum, ráðast á bílalestir og matarskemmur og drepið um 4000 óbreytta borgara. Ég ætla ekki að reyna að reikna út hvað allt þetta kostaði en mér finnst það svolítið skrítið að sjá fólk þarna svelta, vegna þess að ekki er hægt að koma matnum til þeirra. Það...

Afrek þorpsfíflsins, Bush (307 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ef það er einhver maður sem oftar hefur verið nefndur í fréttum ársins en Osama bin Laden þá er það George W. Bush Bandaríkjaforseti. Hann tók við forsetaembættinu 20. janúar 2001 og er því tilvalið að líta á nokkur valin verk hans nú um áramót, næstum ári síðar. Hann beið ekki lengi með að taka umdeildar ákvarðanir. Sú fyrsta var að stöðva greiðslur til félaga sem framkvæmdu fóstureyðingar eða veittu ráðgjöf í þeim efnum. Það er svolítið kaldhæðnislegt að afkastamesti böðull seinni tíma í...

Lýsandi dæmi um hroka Bandaríkjamanna (33 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég hnaut um sömu ræðu Bushs og greatness. Það vita væntanlega margir að ég er ekki stuðningsmaður utanríkisstefnu Bandaríkjanna né þeim hroka sem einkennir hana. Á mánudag útskýrði Bush fyrir mig af hverju. Í fyrr nefndri ræðu leggur Bush grunninn að innrás í Írak. Hann segir: "Hann [Saddam Hussein] verður að hleypa eftirlitsmönnum aftur inn í landið sitt til þess að sýna okkur að hann sé ekki að framleiða gjöreyðingarvopn." Segið mér nú, er ég bara að bulla eða er það ekki hreinn og beinn...

Tungutækni á villigötum (10 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Nýjasta tískuorðið í dag er tungutækni. Þar er t.d. verið að tala um að kenna tölvum að tala og skilja íslensku. Þetta er vissulega mikilvægt mál en er flest ekki komið í notkun ennþá. Það sem Menntamálaráðuneytið er að gera á sviði tækninnar, sem nýtist Íslendingum í dag, er að kaupa aðgang að Britanica Online og fleiri alfræðisöfnum fyrir alla Íslendinga. Flestar þær upplýsingar sem þar er að finna er einnig hægt að nálgast ókeypis annar staðar nema þær sem eru það sértækar að mjög fáir...

Bandaríkin og umheimurinn (15 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég var að skrifa ritgerð í sögu um Bandaríkin. Og svona fyrst ég er búinn að skrifa hana þá er ágætt að leyfa henni að fljóta hingað. NB: Þetta er skrifað fyrir tæpri viku síðan, áður en talíbanar lögðu á flótta. Kveðja, Ingólfur Harri - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - BANDARÍKIN OG UMHEIMURINN Í september síðastliðnum urðu Bandaríkin fyrir áfalli…tvisvar. 11. september síðastliðinn var fjórum farþegaþotum rænt í Bandaríkjunum og breytt í fljúgandi risasprengjur. Tveimur þotum...

Fall krónunnar er okkur sjálfum að kenna (20 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Nú er enn komin upp sú hugmynd að kasta Krónunni og taka upp Evruna. Það á að leysa öll okkar vandamál og færa hverjum einasta Íslendingi gæfu og hamingju. Af hverju erum við þá ekki löngu búin að þessu? Kannski vegna þess að til þess að taka upp Evruna verðum við að ganga í ESB. Nei takk. Auk þess verðum við að vera með efnahagsmálin í lagi. Við verðum sem sagt að koma efnahagsmálunum í lag áður en við getum komið þeim í lag með því að taka upp Evruna! Við skulum athuga af hverju Krónan er...

Eru mannréttindi bara fyrir suma? (39 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Muna ekki allir eftir myndinni The Siege með Brúsa og D. Washington. (Þeir sem eiga kannski eftir að sjá hana vilja kannski sleppa því að lesa næstu málsgrein.) Það var einmitt um hryðjuverk í New York og viðbrögð við þeim. Ég man ekki betur en að Bin Laden hafi staðið á bak við hryðjuverkin. Þá komin herinn og braut á mannréttindum og myrti grunaða. Boðskapur myndarinnar eins og svo margra bandarískra mynda var að allir eigi rétt á sanngjörnum réttarhöldum og að allir eigi rétt á...

Erlent fjármagn (16 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú á að selja Símann einhverjum erlendum kjölfestufjárfesti, gefa honum meirihlutavald og tækifæri á að kaupa það sem seinna verður selt. Lögð er áhersla á að þetta verði erlendur aðili. Er þetta ekki frekar slæm hugmynd. Ég skil það vel að það sé gott fyrir efnahagslífið að fá erlent fjármagn, en það hlýtur að eiga helst við í útflutningsfyrirtækjum. Hugmyndin með því að fjárfesta peningana sína er að hafa gróða af þeim. Sem sagt að geta fengið meiri pening út en maður lætur inn. Í þessu...

Kortlagning netverja. (13 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Netið er einn helst vettvangur skoðannaskipta í dag og eins og BB benti á í frægum vefpisli sínum, þá er mikið um að menn tjái sig í skjóli nafnleyndar. Í gær kom upp í fjölmiðlum mál þar sem starfsmaður Símanns Internet er sakaður um að hafa lesið tölvupóst viðskiptarvinar. Þó ekkert hefur verið sannað þá er Símanum mikið um að verja sig og lofa rannsókn, enda veltur mikið á trausti hans. Málið er að enginn er öruggur um neina leynd á netinu. T.d. er þessi vefur kjörinn staður til að...

Til hamingju Íslendingar (13 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ÞAÐ HEFUR LENGI tíðkast víðast hvar í Evrópu að þingmenn og ráðherrar segi af sér af minnsta tilefni. Á Íslandi er þessu alveg öfugt farið. Hérna dettur þeim ekki í hug að segja af sér fyrr en lögbrot séu hér um bil fullsönnuð og vantraust þingsins yfirvofandi. En það er líklega ekki hægt að áfellast ráðamennina eina því almenningur krefst ekki afsagnar fyrr. Þarna eitthverstaðar á milli Íslands og Evrópu liggur rétta leiðin. MÉR FINNST að þingmaður eða ráðherra eigi að segja af sér þegar...

Sleppið blekkingartilraunum evrópubandalagssinnar (55 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er margt sem ég hef að athuga við rök ykkar evrópubandalagssinna en það er sérstaklega eitt sem fer í taugarnar hjá mér. Restin verður svo að bíða betri tíma. Þið tönglist á öllum mannréttindalögunum sem við fengum með EES samningnum og kallið það voðalega góð rök með samningnum. Þið haldið því líka fram statt og stöðugt að við eigum að ganga inn í ESB vegna þess að vextir munu lækka. Þetta eru engin rök með ESB eða EES. Þið eruð að gleyma því, eða kannski frekar að látast ekki vita það,...

BENSÍN - Samsæriskenning (0 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er alltaf gaman af samsæriskenningum: 1. Maí og þar rétt fyrir féll krónan mikið. Svo stöðvaðist fallið stuttu eftir mánaðarmót og hún styrktist jafnvel svoldið. Svo núna aftur, rétt fyrir mánaðarmót fellur krónan. Bensínverð er miðað við meðalverð bensíns á heimsmarkaði yfir mánuðinn. Það verð er í dollurum. Svo um mánaðarmótin eru dollararnir reiknaðir yfir í krónur miðað við þáverandi gengi. Mánaðarskammturinn af bensíni fyrir Ísland kostar smá slatta. Því hefur það líklega einhver...

Til hamingju Davíð? (37 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum
Ég vil bara óska Dabba til hamingju með starfsafmælið. Það er örugglega gaman hjá honum þessa dagana. * Hann er búinn að vera forsætisráðherra í 10 ár. * Gengið er í sögulegu lágmarki. * Bensínverð í sögulegu hámarki. * Viðskiptahallinn brjálæðislegur. * Verðbólgan stöðugt að aukast. * Og allir að þakka honum fyrir árangurinn. Það mátti ekki heyra annað á ríkisrás 2 í gær að 90% væru voða ánægðir með hann. Eru þið á sömu skoðun? P.S. Sendi inn svipaða grein sem lenti á korknum. Eftir hverju...

Skotárásir? Hin raunverulega ástæða. (28 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum
Ég hef svolítið verið að velta þessum skotárásum í skólum og vinnustöðum fyrir mér. Við erum líklega öll sammála um það hversu hræðilegar þessar árásir eru en ég held að við ættum að líta aðeins á þetta með augum gerandans. Ég held að aðal ástæða fyrir þessum árásum sé slæm líðan þeirra sem þær fremja. Mér skilst að flestir þeir sem geri þetta hafi verið mikið strítt og lagðir í einelti. Eins og kom fram á öðrum þræði hérna þá leiðir einelti stundum til sjálfsmorða. Sá sem er tilbúinn að...

Launamál (31 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum
Mikið hefur veriði rætt um launamál æðstu manna ríkisins. Margir vilja hækka launin umtalsvert til þess að fá þá hæfustu til að stjórna landinu. Háværastur er líklega Xavier en þegar málin beinast að launum kennara þá er hljóðið annað. “Hvað leikskóla-, grunnskóla og framhaldsskólakennara varðar þá er til nóg af kennurum og leiðbeinendum sem að sætta sig við þau laun sem að þeim er boðið og því óþarfi að vera að borga þeim hærra kaup.” Hérna er ekki verið að leita að hæfasta fólkinu heldur...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok