Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Þjóðkirkjan og hjónabönd samkynhneigðra.

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Góð grein, Geiri85. Athyglisvert að sjá svona álit hjá samkynhneiðum manni. Ég er sammála því að það á ekki að breyta trúarbrögðunum eftir duttlungum fólks. þetta eru nú einu sinni trúarbrögð. Ef fólk vill gera róttækar breytingar getur það sagt sig úr kirkjunni, gengið til liðs við önnur trúarbrögð eða stofnað sín eigin. Ég sá um daginn viðtal við nýráðinn feminískan guðfræðiprófessor. Hún vill leggjast í feminíska söguskoðun og endurmat á öllum fyrri gildum kirkjunnar, af því að...

Re: Grein Aristotelesar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, afsakaðu dónaskapinn. Ég er kannski of smitaður af umræðunni á Barbelith: http://www.barbelith.com/underground/topic.php?id=13599

Re: Grein Aristotelesar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Upplýsingar um þetta: http://www.templarhistory.com/baphomet.html

Re: Grein Aristotelesar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Aha, ég var bara að prófa þig :) Og viti menn, þetta var ekki alveg rétt. Kristna riddarareglan Musterisriddararnir (Knights Templar) voru brenndir á báli vegna ásakana um að þeir tilbæðu hyrndan guð sem nefndist Baphomet. Sú mynd sem er þekktust af þessu fyrirbæri er myndskreyting fyrrverandi prestsins og galdramannsins Eliphas Levi eftir lýsingum ofsækjendanna. Sumir telja að Baphomet sé brenglun á nafninu Muhammed, en riddararnir áttu víst ágætis kynni af múslimum í krossferðum sínum....

Re: Sjálfsstyrkingarnámskeið

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Brian Tracy, er það ekki e-ð viðskiptadót? Píramýdasvik? Viltu ná árangri í lífinu? —> Dale Carnegie (www.dalecarnegie.is) Þjáistu af kvíða eða þunglyndi? —> “Jóga gegn kvíða” í Yoga Studio (www.yogastudio.is) My ten cents.

Re: Grein Aristotelesar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þá vitum við það, en hver var Baphomet, Baphomet?

Re: Grein Aristotelesar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Divaa: Takk :) Já gjörðu svo vel. Aristoteles: Heh, mér brá líka þegar þú nefndir Lucifer sem erkiengil. Það átti sem sagt að vera Rafael. Annars finnst mér skondið að þið skuluð nota erkienglana úr gyðingdómi í wicca trú sem á að vera svo heiðin, keltnesk og forn. Það sleppur svo sem enginn í gegnum vestræna galdrahefð án þess að rekast á kabbalah, lífstréð, hebreska stafrófið og ýmis gyðingleg tákn. Er fólk kannski að leita langt yfir skammt? Rósakross og Golden Dawn galdrakerfið er byggt...

Re: Grein Aristotelesar

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Galdrar eru meira e-ð sem gerist í höfðinu á þeim sem fremja þá. Fyrir utanaðkomandi hljómar það sem sönnun á því að þeir séu vita gagnslausir, en fyrir flest galdrafólk er þetta alveg nóg og meira en það. Markmiðið með þeim er að víkka hugann og komast í snertingu við sitt innra sjálf/Guð/verndarengil eða hvað sem fólk kallar þetta. Eða þannig skil ég þetta. Sumir líta svo á að þeir séu að eiga við utanaðkomandi öfl, en margir telja sig bara vera að gera tilraunir með eigið sálarlíf,...

Re: Dulspekiverslun

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Betra Líf í Kringlunni er það eina sem ég veit um í áttina að þessu, en þar er frekar mikið af fluffy nýaldardóti. Best er að panta bækur af Amazon.com .

Re: 10 góð Ol Skool lög til að hita mann upp

í Danstónlist fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Tango remixið af Disturbance með Hyper On Experience er algjör snilld… en old skool? Ég held að það myndi frekar flokkast sem darkcore. Hvernig er það, má ekki segja hardcore lengur eftir að hardcore rokkið reis upp frá dauðum? Þetta var alltaf kallað hardcore í gamla daga (mellow tónlistin kallaðist softcore), og spúkí tónlistin ‘93-’94 kallaðist darkcore. Jungle var svo hardcore með reggí/dub áhrifum, sem höfðu verið viðloðandi tónlistina frá upphafi, en urðu mest áberandi um ‘94/’95 ásamt...

Re: Eintóm leiðindi

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ykkur að segja eru þetta ekki mínar skoðanir í dag. Þetta er kenning sem ég kom með fyrir nokkrum árum (þegar ég var bitur og vængbrotinn unglingur), sem snýst um það að snúa hugsuninni við og hugsa orsakasambandið öfugt, en mér fannst að hún mætti alveg koma fram í þessari umræðu til þess að skapa líflega díalektík. Ástæða þess kann að virðast torskilin en mér finnst gaman að kröftugum rökræðum.

Re: Kvart og kvein vegna kvart vegna femínista...

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég held að þú hafir verið að svara einum slíkum. Lestu greinarnar sem Gunnis er búinn að senda. Annars er ég alveg sammála, það er orðið hundþreytt þetta væl hjá andstæðingum femínista. Síðasta grein og umræða um þetta mál var mjög ómálefnaleg, og er ég ekki saklaus af því. Margt af því sem þær hafa fram að færa hefur fullan rétt á sér, nema kannski þegar ætla að vera siðferðispostular fyrir Ísland og önnur lönd (ólympíuleikana á Grikklandi) sem eyðileggur mikið fyrir trúverðugleika þeirra....

Re: Tilgangur lífsinns

í Heimspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég mæli með því að þú lesir hana á ensku. Hún er til á mjög skiljanlegri ensku, þar sem mikilvæg orð eru látin standa á sanskrít (og að sjálfsögðu skýringar aftast). Ég byrjaði líka á íslensku bókinni en fannst íslenskan forn og of mikið um þýðingar á orðum sem hefðu betur verið látin standa óbreytt. Ég keypti enska útgáfu í Bóksölu stúdenta á 608 krónur (http://www.boksala.is/cgi-bin/boksala.storefront/3f398 7c901c963e0273fc104d08806a9/Search/Run). Mæli með henni.

Re: Net samband...

í Rómantík fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mórall sögunnar er að það er ekki þess virði að fella tár yfir manneskju sem þú hefur aldrei hitt í eigin persónu.

Re: Eintóm leiðindi

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Æ, það er nú gott að Aladdin-ævintýri gerast enn í dag. En fallegt.

Re: Eintóm leiðindi

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég nefndi einmitt þá staðreynd að karlar eru í heildina með hærri laun, og þurfti enga tölfræði til að sanna það enda almenn vitneskja og búið að margtönnlast á því í fréttum. En hvort kemur á undan, hænan eða eggið? Það þarf ekki að vera svona svart á hvítu hvort er orsök og hvort er afleiðing. Ég er alls ekki að segja að konur eigi alla sök á þessu en hugsanlega gæti þeirra viðhorf hægt á breytingum. Þú virðist geta alhæft um allar konur út frá þínum eigin skoðunum. Athyglisvert. Ekki taka...

Re: Eintóm leiðindi

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég hef greinlega hitt á veikan punkt. Ég er reyndar einhleypur, en barnsskórnir? Ef þú hefðir litið á upplýsingarnar um mig hefðirðu séð að ég er 23 ára (en þetta á ekki að fjalla um mig persónulega). Ég var að tala um hjónabönd, ekki skot og one-night-stand þar sem útlit og persónuleiki er e.t.v. það eina sem skiptir máli. Ekki segja mér að fólk taki þessa hluti ekki með í reikninginn þegar lengra er haldið. Einmitt, sambönd þróast og sum eru dauðadæmd ef ákveðnar forsendur eru ekki fyrir...

Re: Sigur Rós.

í Rokk fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nýja lagið kom út á Svefn-g-englar smáskífunni.

Re: Eintóm leiðindi

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Svo er eitt. Ég vil ekki vera með neina fordóma, en mér hefur sýnst að konur velji sér yfirleitt eiginmenn sem séu með hærri laun en þær. Það er ekki endilega alltaf þannig að hann sé aðal fyrirvinnan eins og tíðkaðist áður, en samt sem áður með hærri laun. Það mætti halda að þetta sé bara af því að karlar séu yfirleitt með hærri laun og því “standi engir aðrir til boða”, en mér hefur sýnst að það sé ákveðin krafa um þetta frá (mörgum ef ekki flestum) konum frekar en hitt. Kannski er þetta...

Re: Bækur

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Fullt af ágætum bókum á 2. hæð í Máli og Menningu Laugavegi. Einnig er allt til á <a href="http://www.amazon.com/exec/obidos/tg/listmania/list-browse/-/3QLA51J52PKCB/qid=1060596140/sr=5-3/ref=sr_5_3/103-1607850-9906227">Amazon</a>.

Re: Tilgangur lífsinns

í Heimspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Gott svar hjá þér nologo. Á Vesturlöndum er allt of mikið einblínt á markmið og ávexti verkanna í stað þess að lifa hér og nú og njóta ferlisins, erfiðleikanna, góðu tímanna, stríðsins ytra og innra með okkur. Reynum að LIFA lífinu í stað þess að pæla stöðugt í markmiðum þess. Hamingjan og tilgangurinn felst í ferlinu. Um leið og markmiðunum er náð tekur ekkert við nema stöðnun og dauði, nema við finnum okkur ný ferli, ný vandamál til að glíma við. Lífið er stöðugt strit og verðum aldrei...

Re: Tilgangur Lífsins

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég nenni ekki að “rökræða” um tilgang lífsins við unglinga með höfuðið fullt af hormónum. Það er ekki til neitt svona einfalt svar við þessu. En ef maður hugsar þetta á líffræðilegu nótunum myndi ég segja að þróun væri skárri tilgangur. Með þennan einfalda tilgang þinn gætum við alveg eins verið einfrumungar í hafinu, þróun og fullkomnun skiptir engu máli ef tilgangurinn er bara að fjölga sér. En þetta er dæmigerð hugmynd sem unglingur fær, sem er ekki farinn að hugsa út fyrir...

Re: Tilgangur Lífsins

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Með þetta lífsviðhorf hefðir þú átt að fæðast sem kanína eða rotta.

Re: Ýmind stelpna

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Farðu bara í megrun. Síðan hvenær eru feitar konur “venjulegar?” Í alvöru talað, það er miklu auðveldara að breyta sjálfum sér heldur en að breyta fegurðarstöðlum alls heimsins. Fita er ógeðsleg. Ég vil ekki vera nastý en þetta er bara mitt einlæga álit. Mér finnst mjög undarlegt ef allir eiga bara að sætta sig við það sem er óheilbrigt og vekur viðbjóð frekar en að fólk reyni að bæta sig.

Re: Hinsvegin?

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er hinsegin, ekki “hinsvegin”.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok