Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: svart eða atlas

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mæli tvímælalaust með Visa frekar en Eurocard. Ég var narraður til að fá mér Atlas kort þegar skólinn ætlaði í útskrifarferð, og hef verið að bölva þessum 5000 krónu árgjöldum æ síðan. Af einhverri leti er ég samt ekki búinn að skipta. Það er svosem allt í lagi að fá þessa 5000 kr ferðaávísun ef maður er að fara til útlanda en þá er maður í rauninni bara að fá árgjaldið mikla til baka, en Visa held ég að séu með lítið sem ekkert árgjald. Svo geturðu farið í Netklúbb Flugleiða ef þú ert með...

Re: Í guðs helvíti !

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Lucifer er dregið af luc-/lux á latínu sem þýðir ljós, en -fer endingin þýðir beri. Lucifer þýðir því ljósberi. Þetta er staðreynd málsins, en þú getur trúað þinni persónulegu skoðun ef þú vilt.

Re: Manngerðir

í Heimspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mér finnst ég vera örlítið heimskari og svolítið skítugur eftir að hafa lesið þessa grein. Ég vil fá þessa mínútu aftur!

Re: Paradís þegar tíminn endar

í Heimspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nei, vegna þess að hold er miklu fullkomnara efni heldur en járn, það andar, endurnýjast, ryðgar ekki o.s.frv. ,,Sá sem eykur þekkingu sína, eykur kvöl sína.´´ Þú talaðir annars staðar um “,,ignorance is bliss-líferni´´ sem Guð vildi í góðmennsku sinni leyfa öðrum að áhlotnast.” Viltu ekki bara fara aftur á leikskólann og velta þér um í sandkassa með þitt Nýja testament og leyfa okkur hinum að afla þeirrar þekkingar sem okkur þyrstir í og velta fyrir okkur hlutunum frá fleiri sjónarhornum en einu?

Re: Í guðs helvíti !

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ertu að tala við mig Frodmundur? “djöfullinn í þér sem dró upp kæruleysið aftur. Deyfir áhugann og lífsviljann”… Hvað ertu að tala um eiginlega?

Re: The Filth!

í Myndasögur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég keypti fyrstu 6 blöðin og nennti ekki að lesa meira. Invisibles er miklu betri að mínu mati. Frábær höfundur Grant Morrison. Vissirðu að Grant Morrison skrifaði sögu um Hitler? Hún er til skönnuð á netinu: http://homepage.ntlworld.com/fish1000/index/lostandfound.htm . Ég var að finna þetta í dag.

Re: Vandamál hjá unglingum í dag

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
gall, Andaðu rólega og teldu upp að tíu. Áfengi er heimskuleg dægradvöl sem ég tek þó þátt í stundum. Ég hata Harry Potter. Ég vildi bara benda unglingnum (taktu það líka til þín 16 ára gutti) á að “unglingavandamálið” er ekki bara unglingavandamál heldur hegðar fullorðna fólkið sér eins og ofvaxnir krakkar þegar krakkarnir eru farnir að sofa. Eitt af því merkilegasta sem maður lærir við það að vaxa úr grasi er að það er ekkert að læra. Fólk er ennþá jafn glórulaust, bara misduglegt við að fela það.

Re: Vandamál hjá unglingum í dag

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég sagði ekki að fólk drykki bara áfengi til þess að verða fullt, heldur vegna áhrifanna hvort sem þau eru stór eða lítil. Ég kannast alveg við tilfinninguna að fá sér einn bjór eða eitt rauðvínsglas eftir erfiðan vinnudag/skóladag, en það hefur slakandi áhrif. Svo eru sumir sem hafa keypt hugmyndina um að eitt rauðvínsglas á dag sé gott fyrir hjartað eða e-ð álíka og gera það að vana. Þú ert kannki ein af þeim (?)

Re: Vandamál hjá unglingum í dag

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Er lífið virkilega orðið það leiðinlegt að það þarf að sljóvga skilningarvitin eða eitra sig til að það sé gaman?” Að flestra mati, já. Fólk drekkur sig fullt til þess að losa um hömlur og gera það sem siðferðiskennd þeirra myndi annars banna þeim, til að verða ófeimnara, til að drekkja sorgum eða til að flýja veruleikann og sjálft sig. Ef einhver segir þér að hann drekki af því að áfengi sé gott en ekki vegna áhrifanna er hann að ljúga að sjálfum sér, þér eða hvorum tveggja. Veruleikinn er...

Re: af hverju er allt bannað?

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nutmeg heitir múskat á íslensku og fæst í öllum matarverslunum, eða ferskmalað í Heilsuhúsinu.

Re: Íslenskir bílstjórar og kunnáttuleysi

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“70 líka hægt því það keyra flestir í kringum 100 töluna þar sem er 70 km hámarkshraði” Þú hefur greinilega ekki verið stöðvaður fyrir hraðaakstur. Ég hélt líka að það væri eðlilegt að keyra á 70 km hraða þar sem er 50 km hámarkshraði, þangað til ég var stoppaður af lögreglunni og þurfti að greiða himinháa sekt. Langar ekki að lenda í því aftur.

Re: Opið bréf til tíkarinnar.is

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, þetta er alveg rétt. Ekki segjum við þingkarl eða talskarl.

Re: Hver stígur fyrsta skrefið?

í Rómantík fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er svo blindur á body-language og þessi lúmsku skilaboð sem stelpur senda út og halda að menn taki eftir, að ég verð oftast að fá sterk skilaboð um að hrifningin sé gagnkvæm áður en ég tek næsta skref. Svo er ekkert mál að hringja næst þegar boltinn er farinn að rúlla. Mér finnst að kvenfólk mætti alveg gera meira af því að taka fyrstu skrefin og ganga á eftir mönnum. Þessir riddarasiðir miðalda eru alveg glataðir. Og varðandi þessa meintu feimni kvenna. Er þetta ekki bara þjóðsaga? Í...

Re: kynlíf

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Upprunalega jógaspekin er mjög gnostísk í eðli sínu og fjandsamleg efninu. Það er auðvitað misjafnt hvað fólk setur sér há markmið, en þeir sem tileinka lífi sínu jógaiðkunum á Indlandi eru flestir skírlífir. Þá er ég ekki að tala um þá sjálfskipuðu gúrúa sem koma til Vesturlanda til þess að græða peninga heldur hina “heilögu” sadhúa, baba og jóga á götum Indlands. Þeir eru ekki að hugsa um að fjölga manneskjum heldur að losna úr hringrás endurholdgana. Ég er kannski búinn að lesa of mikið...

Re: AniMA (félag í mótun)

í Anime og manga fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sniðugir að nota sama nafn og félag sálfræðinema í Háskólanum. Eða ekki.

Re: Í guðs helvíti !

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Skemmtileg grein. Ef YHVH er sá guð sem vill að við séum sofandi vakandi og brögðum ekki á tréi lífsins og tréi skilningsins þá er hann ekki minn guð. Gnostísistar trúðu reyndar að snákurinn hefði verið sendiboði annars og æðri guðs en þess sem skapaði jörðina. En hinn upprunalegi YHVH er ekki þessi grimmi guð sem vill halda okkur í blekkingarvef, sem aðventistar og vottar og fleiri trúa á. Lífstréð í kabbalah gyðinga er táknmynd fyrir lífstréð í aldingarðinum, og af því mega allir bragða....

Re: Jóga ódauðleikans

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þegar ég sagði ‘fólk’ meinti ég auðvitað fólk sem stundar jóga en ekki fólk almennt.

Re: Jóga ódauðleikans

í Dulspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Eitt í viðbót. Þessar siðareglur sem flestir jógakennarar mæla með eru einmitt ákveðin varúðarráðstöfun til þess að maður sé í fullkomnu jafnvægi þegar/ef kundalini ormurinn skríður upp til höfuðs. Blóðþyrstar kjötætur og kaffidrykkjumenn verða örari og aggressívari, en það getur leitt til geðveiki þegar/ef menn ná þessu kundalini upp. Einnig verða þeir sem stunda jóga og hugleiðslu varir við að þeir verða meira vakandi og þurfa minni svefn, sem gerir koffein og önnur örvandi lyf óþarfa og...

Re: Jóga ódauðleikans

í Dulspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Góð grein. Þegar ég las hana fyrir ári var hún eitt af því sem vakti áhuga minn á jóga. Reyndar finnst mér hún ekki eins góð núna og þegar ég las hana fyrst. “Jógahugleiðslukerfi krefjast nefnilega oft alls kyns meinlætalifnaðar; maður verður að hætta að borða kjöt, hætta að lifa kynlífi, hætta að drekka kaffi, vera síbrosandi, væminn í hugsun, vera með allskyns slagorð á takteinunum og óþolandi leiðinlegur.” “Fólkið sem stundaði það virtist vera sí-prumpandi baunaætur; það var plöntufólk og...

Re: Tungumál

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er sammála því að tungumál verður að geta þróast. Og það sem fólkið talar og skilur er tungumálið. Annað gleymist. T.d. ætluðu einhverjir fræðimenn að þýða enska orðið internet sem alnet eða lýðnet, en það var ekki þjált og allir sögðu internet eða net þannig svo varð úr að nú heitir þetta internet/net. Það eru nú orðnir svo margir sem “þjást” af þágufallssýki að það verður bráðum viðurkennt sem ásættanlegt málfar. En víst við erum orðyn sona geggt lýberal eigum við ekki bara þúst að...

Re: þetta slær allt út!!!!

í Hugi fyrir 22 árum, 10 mánuðum
27? renndu niður korkinn og sjáðu hvað það er búið að bætast við á listann.

Re: þetta slær allt út!!!!

í Hugi fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Kreoli, Ég og Hockeygir19 erum nú þegar búin að safna saman í lista með 69 undirskriftum, þannig að það er óþarfi að byrja á nýjum frá grunni. Kíktu á þetta: http://www.hugi.is/forsida/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=1227215&iBoardID=53&iStart=10

Re: Myndlistaráhugamál

í Hugi fyrir 22 árum, 10 mánuðum
69 komnir á listann… Amon angela86 Animal Arasaka atOmyc Ayo Battlecat bettyfly bhss chacha cisa Dbd diejoe DisaD Dragonb EkztaC erty Gexus Glaurung gong Greymantle hamrotten HjaltiG hockeygirl hockeymonkey hockygir19 Hokeypokey hotbutter isjs Jakol16 kaxus kisalitla kokos larandria lilia lodsteinn maddisnill martasmarta Metalfreak molo nologo Oskar2 Osmodian paac Pixie ramax rattata Redfish sigurjong skratt2 smariholm som svartipetur Swandys8 Sweet tatum ThorX tralla UBS uddabudda vatn...

Re: mesta nördaáhugamálið ?

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Enska deildin og Ítalski boltinn

Re: Karlar!!!

í Djammið fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvernig væri að kaupa bara bjórinn sjálf næst? Já, þegar karlmaður býður þér bjór er hann að reyna við þig. Punktur. Og þegar þú segir já ertu að gefa honum undir fótinn, hvort sem þú meinar e-ð með því eða ekki. Er svona erfitt að skilja þetta? “…íslenska menn, þeir eru SVÍN! Allir káfandi og potandi, á meðan vesalings túristarnir stóðu þarna með veggjunum svo gapandi hissa” Það naumast þið eruð segulstál á drulludela. Ætli þessir “útlendingar” hafi ekki bara verið við hinir sem hegðum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok