Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Draumur um betra líf á Íslandi...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ríkið okkar er alltaf á hausnum, kannski að eyða í vitleysu að einhverju leyti en nei, ég held að við hefðum ekki efni á þessu. Þó þetta sé fjárfesting, þá fjárfesting í hverju? Að fleiri mennti sig? Sýnist þér okkur vanta menntað fólk á Íslandi? Í Danmörku er fólk endalaust í skóla til að nota sér þetta góða kerfi. Algengt að fólk taki tvær gráður en svo er það bara atvinnulaust vegna þess að það er ekki þörf fyrir svona mikið af menntuðu fólki.

Re: Draumur um betra líf á Íslandi...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það mætti stjórna þessu með persónuafslætti og prósentu. Ef prósentan og persónuafslátturinn eru höfð há er hægt að taka meiri skatt af hátekjumönnum án þess að snerta við launum þeirra lægst launuðu. Hátekjumenn borga þá hærra hlutfall og lágtekjumenn lægra og þeir í miðið bara svipað.

Re: Draumur um betra líf á Íslandi...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Smá gallar við þessar hugmyndir. Það eru fyrirtækin sem borga lágmarkslaunin og þeim gengur ekkert rosalega vel þessa dagana. Ef fyrirtæki fara á hausinn við að reyna að borga hærri laun, þá missa allir þeirra starfsmenn vinnuna en getur líka verið að fyrirtækið þurfi að minnka við sig sem þýðir kannski að þeir þurfa bara að segja upp nokkrum og setja álagið á þá sem eru eftir í staðinn. Það er því ekki eins auðvelt og það lítur út fyrir að hækka lágmarkið uppí 120 þús. með einu pennastriki....

Re: Er femínismi á villigötum?

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Frelsið er dýru verði keypt en ef einhver kona vill aftur inná heimilið, þá verður hún bara að gera það sem þær gerðu hérna í gamla daga. Bara ná sér í vel launaðan kall og gerast svo húsmóðir.

Re: Enn um vændi og femínisma

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Við búum nú á eyju þannig að það á ekki að vera mjög erfitt fyrir okkur að hafa eftirlit með ólöglegum innflytjendum.

Re: Enn um vændi og femínisma

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér finnst hann ekki vera að hvetja konur til að selja sig. Mér finnst hann vera að segja það sem margir vita að það er til fólk sem hefur ekkert á móti því að vinna við vændi. Á að banna því að vinna við þetta þó einhverjir aðrir séu neyddir til þess? Mér finnst að það ætti frekar að hafa eftirlit með því að það sé enginn neyddur til þess heldur en að reyna að banna þetta alfarið.

Re: kötturinn minn

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er bara gangur lífsins að það deyr allt einhvern tímann og gæludýr líka en vonandi verður hún langlíf.

Re: Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það lagar ekkert nauðgara að láta hann sitja einhver ár í klefa. Hann kemur einhvern tímann út og þá kannski bara verri. Ákveður kannski að drepa nú fórnarlömbin sín líka til að þau kjafti ekki frá. Ég var að horfa á þátt um fangelsi um daginn þar sem sýnt var frá Arizona. Einhverjir muna kannski eftir því að Íslensk stjórnvöld neituðu að framselja Bandaríkjamenn sem átti að dæma í Arizona vegna þess sem álitnar voru ómannúðlegar refsingar þar. Alla vega voru fangarnir þarna hafðir í svart...

Re: Miðjarðarhafs

í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það eru líka margir hér úti sem bara gefa skít í kúrana og fara í magaaðgerð til að grenna sig. Það var talað við 2 systur í imbanum í gær sem fóru í svona aðgerð, 14 og 16 ára og vógu 127 og 145 kíló. Nú 6 mánuðum síðar líta þær út eins og eðlilegar manneskjur. Að vísu ekki grannar en alla vega mun grennri en þær voru. Annars sá ég einhverntímann eitthvað um rannsókn á frumbyggjum Ástralíu en þeir fitna einmitt alveg ógurlega af vestrænu fæði. Skv. þeim á það að henta mannfólkinu best að...

Re: Réttlæting reykingamannsins

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef það er réttlætanlegt að banna reykingar á vinnustöðum til þess að fólk sem reykir ekki sé ekki tilneytt að anda að sér reykmettuðu lofti, er þá ekki líka réttlætanlegt að banna reykingar á skemmtistöðum vegna fólksins sem starfar þar? Annars pirrar það mig ekki þegar fólk er að reykja í kringum mig en mér finnst ferleg fýlan sem kemur af fötunum manns þegar maður fer á skemmtistaði.

Re: Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef menn sem hneigjast til ungra drengja eru hommar, þá eru menn sem hneigjast til ungra telpna gagnkynhneigðir og segðu það bara ef einhver er að bögga þig :) Hins vegar held ég að þetta sé hvorugt heldur alveg sér á parti.

Re: Elsti hugarinn

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er galli í þessari leit. Hún birtir bara notendanöfn sem byrja á tölum nema þú setjir bókstaf og * í nafngluggann. T.d. ef þú leitar að a* sem notendanafn og notar útilokun, þá kemur upp að notandinn aardvark er 80 ára, ef maður notar b* kemur notandinn BaraKukur sem er 82 ára. Ekki nennti ég að fara gegnum allt stafrófið að leita að elsta en þetta eru ábyggilega mest stolnar kennitölur.

Re: hjálp einhver

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það ætti að virka að fá hann lánaðan hjá vinkonu þinni því diskarnir eiga að vera eins. Af hverju prófarðu það ekki bara?

Re: Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
En það eru ekki allir barnaníðingar fórnarlömb. Ég held að þetta hafi eitthvað með kynhneigð að gera. Það er líka til fólk sem finnast hlutir kynæsandi, t.d. skór, regnföt eða allur andskotinn. Svo er til fólk sem finnst það kynæsandi að valda sársauka eða þola sársauka. Til er fólk sem finnst húsdýrin okkar mest sexý og sumir eru fyrir lík. Hins vegar endar frelsi mannsins þar sem frelsi hins aðilans byrjar og þannig er nú það að börn, dýr og lík geta ekki beint gefið upplýst samþykki til...

Re: Enn um vændi og femínisma

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hafa þetta eins og í Hollandi og leyfa vændi en banna dólga. Þá geta vændiskonurnar bara kært í lögguna ef einhver vondur kall er að ræna peningunum þeirra. Ég held að það sé til fólk sem virkilega vill vinna við þetta og mér finnst bara rugl að banna þeim það. Hins vegar finnst mér full ástæða til að banna þrælahald af öllu tagi.

Re: Barnaníðingur

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það getur alveg skipt sköpum fyrir börn að vera óhemjur ef þau lenda í einhverju svona. Meðan þæga barnið lætur barnaníðinginn leiða sig í burtu án þess að æmta eða skræmta þó því standi ekki á sama myndi óhemjan æpa, klóra og bíta og gera honum mun erfiðara fyrir. Hann vill væntanlega ekki vekja athygli og er því líklegri til að sleppa barni sem lætur mjög illa. Ég veit til þess að krakkar hafa rekist á svona dóna og vita bara ekki alveg hvað þau eiga að gera, maðurinn kannski hótar þeim...

Re: HELSTU DÁNARORSAKIR Í DAG

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er náttúrulega ekkert skrítið því fyrir svona 25 árum voru engar tölvur, engar leikjatölvur, ekkert video og ein rás á sjónvarpinu sem sjónvarpaði 3 tíma á kvöldi, aðallega skandinavískum vandamálamyndum en mjög litlu barnaefni og tók sér frí alla fimmtudaga og allan júlí. Það var sem sagt ekki mikið annað að gera fyrir börn en að fara út að leika sér eða hjóla. Í dag er framboð af afþreyingu fyrir börn bara allt annað og meira þannig að þau þar af leiðandi hreyfa sig minna. Vissulega...

Re: nú er ég alveg...

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gætirðu hafa skrifað grein eða sent inn könnun sem var samþykkt? Ég held að það fyrir utan að senda mynd sem er 8 stig sé það eina sem eru enn stig fyrir. Ofurhugalistinn gefur svolítið skakka mynd vegna þess að þegar þeir flestir komust á lista þá voru stig fyrir allt.

Re: Almenn tillitssemi

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér finnst bara gott hjá þér að segja því að fara í heimsókn í næsta hús. Hundurinn er hluti af þinni fjölskyldu og ef þeim er eitthvað illa við hann, börn þín eða maka, þá getur það bara verið heima hjá sér eða heimsótt einhvern annan. Það gæti verið að þú tapaðir vináttu einhverra ættingja að einhverju leyti en þá eru þeir varla þess virði.

Re: Þjóðsöngurinn, 3,7kr

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Leysa þetta með því að láta sjoppustarfsmenn bara hafa vasaútvörp sem þeir geta kippt úr öðru eyranu ef þeir þurfa að afgreiða einhvern. Ég heyrði líka að þeir hefðu ætlað að rukka eitthvað fyrirtæki fyrir bílútvörp sem voru í fyrirtækisbílunum þeirra og fyrirtækið ætlaði að láta breyta þannig að útvörpin væru laus og gefa þau starfsmönnum frekar en að borga. Veit ekki hvernig það fór. Annars eru víst ekki stefgjöld á tónlist sem er meira en 100 ára gömul þannig að klassík er í lagi....

Re: Spurninginn um Idol þættina

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað kaupirðu ekki eftir að hafa ekki séð einn einasta þátt?

Re: Barnaníðingur

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Því miður þá er nú bara mjög líklegt að einhver svona náungi búi í hverfinu þínu þó það sé kannski ekki þessi. Besta leiðin til að taka á því er að vara strákinn þinn við. Fara aldrei neitt með ókunnugum, ekki í bíl, ekki labbandi, ekki inn til þeirra og ef einhver segir eitthvað dónalegt við hann eða vill fá að snerta hann, þá hlaupa strax heim. Þetta var sagt við mig og ég held að ég og mínir bekkjarfélagar hafi engan veginn skilið nákvæmlega hvað það væri sem hætta væri á að þetta fólk...

Re: HJÁLP !!!

í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Kældu þetta í svona korter á dag, þá meira ég með að láta kælipoka eða bara frosnar baunir eða eitthvað á þetta. Keyptu þér líka úlnliðsband í apóteki. Best er að það sé stillanlegt vegna þess að teygjudraslið víkkar oft of mikið og hættir að halda við.

Re: veit einhver?

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað gerði OgVodafone við öll tjöldin sem Tal átti á lager. Kannski breyttu þeir bara nafninu og selja þau enn. Þau voru held ég á 2000 kall eða eitthvað mjög lítið en líklega ekki sérlega endingargóð eða mjög vatnsheld eða þannig. Annars skaltu bara hringja í fullt af tjaldabúðum og spyrja hvað ódýrasta kostar.

Re: Nauðgun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað meinarðu eiginlega með að vera laminn? Ég legg þann skilning í það að það sé að vera laminn í hakk sbr. líkamsárás. Ekki eins og t.d. þegar vinnufélagi minn danglar vinalega í mig með spýtu til að bjóða góðan daginn ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok