Í Edmonton, Kanada þar sem ég bý er flugvöllur rétt fyrir norðan miðbæinn, ca. 2 km í burtu. Hann heitir að sjálfsögðu Edmonton City Centre Airport og það er byggð allt í kringum hann, skólar og verslanamiðstöðvar en að vísu er hann ekki notaður fyrir áætlunarflug en um það bil allt annað; sjúkraflug, herinn, fyrirtækisvélar, einkavélar, litlar leiguvélar og kennslu. Í Toronto þar sem ég bjó áður er líka flugvöllur við miðbæinn, ca. 2 km fyrir sunnan og heitir hann auðvitað Toronto City...