Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Hreinlæti tannlækna...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Geturðu ekki bara beðið hann að nota hanska?

Re: Tannlæknir....

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sumir eru líka mjög óheppnir með tennurnar og skemmast mikið sama hvað þeir gera og aðrir mjög heppnir. Ég burstaði svo til aldrei tennurnar þegar ég var lítill og þegar ég var 15 meðan sjúkrasamlagið borgaði ennþá allt fór ég loksins til tannsa og þurfti að gera við alla jaxla en það hefur eiginlega bara haldið sér furðu vel og mest þurft að skipta um fyllingar í þeim annars lagið þegar komin er málmþreyta í þær gömlu.

Re: Bolti í gamla konu

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þú sérð hana segðu þá bara að þér þyki þetta leiðinlegt. Var hún annars eitthvað ill?

Re: Tannlæknir....

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er fyrirbyggjandi að fara til tannsa einu sinni á ári og láta tékka vegna þess að þá getur hann gert strax við meðan skemmdirnar eru litlar. Ég svo sem þekki það alveg að hafa varla efni á því en ef þú ferð á hverju ári áttu ekki að lenda í einhverjum tugum þúsunda nema þú sért með mjög lélegar tennur. Þú getur líka skráð þig hjá tannlæknadeild HÍ ef þú ert fátækur því þeir gera þetta ódýrt, þori ekki alveg að segja frítt en alla vega mun ódýrara en aðrir.

Re: forvitni spellvirki

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þú nærð honum, þá skaltu mála nafnið þitt á ennið á honum með olíumálningu :)

Re: Leyfi til ad tjalda.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Getur ekki bóndinn bara sagt að náttúra landsins bíði tjón af? Nú ganga ekkert allir útilegumenn neitt sérstaklega vel um, skilja eftir rusl hér og þar, brenndan svörð eftir einnota grill eða varðeld o.s.frv. Á bóndinn að þrífa það upp? Hins vegar held ég að það væri sniðugast fyrir bændur sem eru á móti tjaldgestum að setja bara upp eigið tjaldsvæði og rukka þar inn. Hann gæti valið ljótasta hlutann af landinu sínu og skv. lögunum, þá er honum heimilt að beina fólki þangað.

Re: Hvað er menning og hver borgar fyrir hana?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Og er það ekki bara nákvæmlega eins með aðalinn okkar í dag? Lifir það ekki flest á okkur? ;)

Re: sims on line og og fleiri....

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Livin' it up var fyrsta viðbótin og kom aðallega með held ég nýja hluti í leikinn. House Party var næsta viðbót og bætti við að þú gætir haldið partý. Það er hægt að kaupa DJ græjur, dansgólf og eitthvað fleira partýdót, veisluborð sem er hægt að panta kokk fyrir partýið og eitthvað. Svo fullt af nýjum hlutum og nýju fólki. Þar bætist líka við mæminn ef partýið er leiðinlegt en Drew Carey kemur ef það er gott. Man ekki hvort trúðurinn kom þar eða hvort hann var kominn í Livin' it up. Á eftir...

Re: Peningar svinl!!!

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er líka partur af leiknum að láta peninginn endast. Byrja á að byggja lítið hús og eiga bara ódýrasta draslið en svo eftir því sem fólkið vinnur meira þá getur það keypt flottara og stækkað við húsið eða flutt í stærra.

Re: Peninga svindl

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hér er listi sem ég á inni á diskinum hjá mér og það eru pottþétt til fleiri. Ég tek enga ábyrgð á gæðum þessara svindla. Ég nota almennt bara peninga og move_objects nema ég hef prófað autonomy og speed og virkaði fínt. Cheats for the SiMs To get the cheats to work type CTRL+SHIFT+C then type them in. rosebud - Replaces klapaucius if you have the Sims Updater or Livin' Large installed. klapaucius - Gives you 1000 Simoleons ! - Repeats the last entered cheat (For example, typing !;!;! enough...

Re: Kanada?

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er alla vega ekki áfangastaður á heimasíðunni þeirra. Það eru vestanhafs Baltimore/Washington, Boston, Minneapolis, New York og Orlando. Ábyggilega ekki margir sem vilja fara til Halifax. Er eitthvað í Halifax? :)

Re: Hvað er menning og hver borgar fyrir hana?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Aðallinn og hver sem er annar er fullkomlega frjáls að því að styrkja listamenn enn í dag með sínum aurum. Hins vegar er ég frekar á móti því að ég sé látinn styrkja listamenn nauðugur viljugur.

Re: Hvað er menning og hver borgar fyrir hana?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Af hverju vita 10% betur hvað er list heldur en hin 90%? Ef 90% þjóðarinnar hlusta á popptónlist og hengja upp hjá sér fallega málaðar myndir af fjöllum og vötnum, er það þá ekki alla vega jafn mikil list, ef ekki meiri en kúbeinið uppi í lofti? Af hverju eigum við að vorkenna voðalega mikið listamönnum sem geta ekkert selt og borga undir þá? Ef ég væri lélegur smiður og smíðaði bara stóla sem detta í sundur, þá kemur enginn og styrkir mig, heldur væri mér líklega bent á að finna mér aðra vinnu.

Re: Au-pair í gegnum smáauglýsingar (?)

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú verður að spyrja útlendingastofnun. Þeir eru á <a href="http://www.utl.is/">http://www.utl.is/</a

Re: Trúar jafnrétti!!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef heyrt að fermingin hafi verið fundin upp til að veita prestunum aukatekjur. Margir kristnir söfnuðir hafa ekki fermingar og tíðka ekki barnaskírnir heldur hafa skírn þegar fólk hefur aldur til að velja það sjálft.

Re: Trúar jafnrétti!!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
13 ára krakkar eru ennþá börn og mér finnst ekki vera hægt að halda þau ábyrg fyrir einhverjum yfirlýsingum sem þau gefa þá. Mér finnst þess vegna sem fermingin sé marklaus, enda margir sem fermast fyrir gjafirnar og margir sem verða seinna trúlausir þó þeir hafi trúað þegar þeir voru börn. Mér finnst að það ætti ekki að vera hægt að skrá börn í trúfélög fyrr en þau eru nógu gömul til að gera það sjálf og fermingin ætti að miðast við það líka. Hins vegar er það rétt að þegar maður er búinn...

Re: Kók vs Pepsí?

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Bara bæði betra. Eiginlega finnst mér kók betra þegar ég kaupi litla flösku og ætla að drekka það strax en pepsi betra ef ég ætla að kaupa tveggja lítra og geyma það í ísskápnum og opna oft þangað til það verður gamalt og flatt. Mér finnst nefnilega gamalt kók það versta sem til en en gamalt pepsi heldur sér betur.

Re: Furðuleg lög í Bandaríkjunum!

í Húmor fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sumar af þessum síðum eru með linka á lögin og það er bara nýlega búið að vera í fréttum að lög sem banna endaþarmssamfarir í Texas stóðust ekki fyrir hæstarétti og þeir verða að breyta þeim. Sjá t.d. http://www.abcnews.go.com/sections/us/Politics/scotus_s odomyruling030626.html Þetta er sem sagt ekkert allt skáldað upp en kannski eitthvað af því.

Re: Furðuleg lög í Bandaríkjunum!

í Húmor fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er fullt af svona síðum á netinu. Prófaðu bara að leita að stupid laws eða dumb laws. Hér er ein svona síða: http://www.checkoutthisstupidwebsite.com/laws.html

Re: Kanada?

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það var maður sem var að reyna að fá í gegn flug frá Íslandi til Calgary og Vancouver og tókst en flugfélagið hætti við eftir að flugið var rétt byrjað, sjá <a href="http://www.vf.is/?Object=101&ID=10241">http://www.vf.is/?Object=101&ID=10241</a> Þannig að núna er ekkert beint flug nema kannski ef einhverjir hópar redda sér í leiguflug. Það væri hentugast að fara í gegnum einhverja borg sem Flugleiðir flýgur til í Bandaríkjunum eða gegnum London ef það er ódýrara.

Re: hjálp!!

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Margir kettlingar eru ofvirkir en hann ætti að róast eitthvað með tímanum.

Re: Smá spurning um

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gæjarnir á hundarásinni tala mikið við hundinn þegar þeir eru að kenna honum að ganga við hæl og alltaf þegar hann ætlar að toga eða stoppa, þá beygja þeir og þá verður hann að fylgja með. Alltaf hafa tauminn í sömu hendinni svo hann læri að ganga öðru megin. Það er auðveldara til að byrja með að beygja þannig að hann sé utar í beygjunni og svo lærir hann hina beygjuna seinna. Og náttúrulega alltaf hrósa honum þegar hann togar ekki og beygir með þér. Prófaðu að taka svona æfingar á einhverju...

Re: Smá spurning um "lengjanlegar" hundaólar.

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú eða í þessu tilfelli eigandinn verður að velja hvort hundurinn á að ráða eða sá sem labbar með hann. Vel uppaldir hundar kunna að ganga við hæl sem þýðir að þú hefur hann í stuttum taumi og hann gengur við hliðina á þér án þess að toga eða stoppa. Hin leiðin er að þú ert með hundinn í stuttum eða löngum taumi og reynir að hafa við honum þegar hann togar eða lætur hann draga þig áfram en stoppar þegar hann vill stoppa.

Re: Veit einhver...

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þú ert með heimasíma hjá Símanum þá kostar 14,90 kr./mín. að hringja í gemsa frá Símanum (upphafsgjald 3,45 kr.) og 17,70 kr./mín. í Og Vodafone gemsa (upphafsgjald 3,84). Ef þú ert með heimasíma hjá Og Vodafone þá kostar 13,90 kr./mín. að hringja í alla gemsa. Upphafsgjald 3,45 á þeirra gemsa en 3,80 á aðra gemsa. Þessi kvöldtaxti byrjar kl. 19 hjá báðum fyrirtækjum og endar kl. 8 að morgni.

Re: Draumur um betra líf á Íslandi...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki að tala um að breyta kerfinu neitt heldur bara að hækka skattprósentuna úr 38 í t.d. 45 og hækka persónuafsláttinn á móti þannig að lágtekjufólk yrði skattlaust lengur og hátekjufólk borgaði aftur meira. Svo væri kerfið bara áfram eins og það hefur verið. Eina væri að ef þú hefur megnið af tekjunum þínum fyrri hluta ársins en svo litlar tekjur seinni hlutann að þú fullnýtir ekki persónuafsláttinn, þá færðu endurgreitt frá skattmann árið eftir en það er líka þannig núna. Ef það...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok