Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði. Ég afsaka copy/paste´ið.


FRÉTTAVEFUR FYRIR SUÐURNES • HAFNARFJÖRÐ • GARÐABÆ • ÁLFTANES

23.6.2003 21:29:52
Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði
Konu var nauðgað á hrottalegan hátt í Hafnarfirði fyrir tveimur vikum. Sá sem grunaður er um verknaðinn var strax færður í fangelsi en hann hlaut dóm fyrir fjölda afbrota í lok maí á þessu ári.

Lögreglan í Hafnarfirði verst allra frétta af málinu, segir það í rannsókn og segir það afar viðkvæmt. Þar fékkst það þó staðfest í dag að hinn grunaði er í fangelsi. Hann hóf afplánun á sex mánaða fangelsisdómi sem hann var dæmdur til í lok maí, þann sjöunda júní, strax eftir að hann var tekinn til yfirheyrslu vegna nauðgunarinnar.

Í dómi Hæstaréttar var hann fundinn sekur um þjófnað, tilraun til þjófnaðar og fjársvik. Hann á að baki langan sakaferil. Hann hefur hlotið 19 refsidóma frá árinu 1983, en enginn þeirra hefur verið fyrir nauðgun.

Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 hitti hinn grunaði konuna á öldurhúsi í Hafnarfirði. Hann mun hafa farið með henni og vini hennar heim til hennar og að sögn nauðgað henni þegar vinur hennar fór.

Konan var mjög illa leikin líkamlega þegar hún leitaði sér hjálpar hjá nágranna, alblóðug og hafði verið misþyrmt hrottalega en lögreglan í Hafnarfirði vildi ekki gefa upplýsingar um ástand hennar í dag.

Aðkoman að íbúð hennar var, samkvæmt heimildum, hrikaleg. Allt brotið og bramlað, blóð um alla veggi.

Lögreglan í Hafnarfirði er búin að ræða við öll vitni og málið er enn í rannsókn. Meðal annars hefur tæknideild lögreglunnar í Reykjavík aðstoðað við rannsókn málsins.

Frá þessu var greint á Stöð 2 í kvöld.
(Frétt af Vísi.is)

Já, það hlaut að koma að þessu. Íslenska samfélagið hefur litið vægum (já, vægum!!) augum á nauðganir allt og lengi. Þetta er dropinn sem fyllir mælirinn!
Hvað haldið þið að þessi nauðgari fari í langt fangelsi? 2 ár? Lýsingarnar á þessarri nauðgun eru hrikalegar. En, það sem er ekki skrifað um er hvað maðurinn gerði við sálina hennar. Það er verra en rústuð íbúð og blóð á veggjunum. Það sem hann eyðinleggur í sál hennar varir að eilífu. Hluti af hjarta þessarrar kona dó þennann dag og hún fær hann aldrei aftur.
Ég vil hvetja alla sem eitthverja skoðun hafa á fangelsisdómum nauðgara og barnaníðinga að svara þessu og tjá ykkur.
Nauðgarar og barnaníðingar eru ekki hræddir við íslenska dómskerfið! Eigum við að sitja á rassgatinu og bíða eftir að þetta breytist eða eigum við að gera eitthvað í þessu!?!?!?!
“Fögur kona gleður augað.