Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Réttlæting reykingamannsins

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er fín hugmynd með reykherbergin. Loka þetta meira af. Þetta er einmitt svo fáránlegt eitthvað með kaffihúsin að þú getur verið með reyklaust borð en það gildir bara fyrir borðið þitt því næsta við hliðina er kannski reyk.

Re: Tjáningarfrelsi

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað var þetta fólk eiginlega að gera? Voru þau að gala frammí ræðuna? Ef svo var, þá get ég alveg skilið að fjarlægja þau því þá eru þau í rauninni bara að ræna auglýstri dagskrá til að græða athygli. Tjáningarfrelsi þýðir að þú getir tjáð þig að vild en það þýðir ekki að þú getir gert það hvar og hvenær sem er. Ef þau stóðu bara þarna voða prúð með skilti, þá finnst mér nú frekar óþarfi að vísa þeim í burtu.

Re: Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ok, hvað vilt þú þá gera við þessa aumingja ógæfumenn sem nauðga konum eða börnum trekk í trekk? Halda áfram að setja verðmiða á glæpinn, kannski eitt ár fyrir stykkið og leyfa þeim bara að halda áfram endalaust?

Re: Of hátt verð á hundum!!!!!!!!!!!!!!!

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er bara framboð og eftirspurn. Meðan fólk er til í að borga svona hátt verð fyrir þessa hunda, þá er þetta gangverðið. Ef enginn væri að kaupa myndi verðið lækka.

Re: Tollur

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hringdu bara í tollinn. Þeir geta sagt þér hvaða tollur er á því tæki sem þú ert að spá í. Það virkar þannig að tollurinn kemur ofan á verðið á tækinu hingað komnu, það er þegar búið er að leggja sendingarkostnaðinn við og svo kemur VSK 24,5% ofan á allt saman.

Re: Fyrir börn sem eiga foreldra sem eru skilin.

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Vildir þú frekar að þau byggju ennþá saman en rifust stanslaust? Stundum er skilnaður bara eina lausnin. Svo er náttúrulega ástæða fyrir að þau senda þig á milli og það er vegna þess að þau vilja bæði hafa þig. Ég þekki dæmi þar sem foreldrar hafa skilið og pabbinn flutt að heiman og ekki skipt sér neitt af börnunum, ekki hitt þau eftir það. Myndir þú frekar vilja að þú byggir bara hjá öðru en hittir hitt aldrei?

Re: Dómar Kynferðisafbrotamanna.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eins og ég man eftir þessu Hafnarfjarðarmáli þá held ég ekki að hann hafi fengið dóm en held að það hafi margir vitað af þessu. Hann var að tæla inn til sín unglingsstráka, gefa brennivín og sýna klámmyndir og taka þá í görnina í leiðinni. Ég efast um að hann hafi verið kærður vegna þess að strákarnir hafa ábyggilega kennt sjálfum sér um að hafa lent í þessu og ekki viljað segja neinum. Það var jú fórnarlamb sem drap hann en samt held ég að hann hafi ekki dáið beint út af skotinu heldur olli...

Re: Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sumarbústaðanauðgarinn fékk held ég 3 ár og hann hafði meira að segja flúið land áður en hann náðist aftur og fékk ekkert meira út af því. Sólbaðsstofuræninginn fékk 8 ár í pakka fyrir held ég 3 nauðganir og sólbaðsstofuránið. Hann er ábyggilega kominn út núna og ég held að hann hafi ekki fengið neitt auka þó hann hafi strokið af Hrauninu. Kanadamenn eru líka með frekar væga dóma í mörgum tilfellum en þeir eru með alveg glæsileg lög sem gera þeim kleift að dæma menn í fangelsi til óákveðins...

Re: Réttlæting reykingamannsins

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég veit ekki hvort starfsmenn í fiskvinnslu komast upp með að taka sér reykpásur fyrir utan almennar pásur en ég er að vinna á smíðaverkstæði og margir sem reykja þar og þeir láta sér sumir ekki nægja að reykja í pásum heldur læðast á klóið til að reykja þess á milli. Það er reyndar bannað að reykja á klósettunum en meðan það er ekki falin myndavél þá er eiginlega ekki hægt að gera neitt í því.

Re: Atvinnuleysi - bætur og misnotkun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Kannski ert þú bara í svona sérstaklega heiðarlegum vinahóp eða jafnvel bara að enginn sem þú þekkir hafi hreinlega haft tækifæri til þess að gera þetta. Ég þekki eitthvað af fólki sem hefur unnið svart, þar af alla vega einn sem var á bótum á meðan. Líka einn sem kom sér á örorkbætur þó það væri ekkert að honum, sami aðili stundaði það líka að svindla á tryggingafélögum. Ég kannast líka við konu sem sér um fataúthlutanir hjá hjálparsamtökum ásamt fleirum og hún er fyrst að næla sér sjálf í...

Re: ?

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já. Ef þú eyðir simsa, þá þarftu fyrst að seiva því ef þú ert t.d. búin að láta hann fá stöðuhækkun eða eitthvað frá því þú seivaðir síðast getur hann misst hana aftur og líka punkta sem hann er búinn að vinna sér inn. Þú eyðir í húsgagnaskjánum eða byggingaskjánum, ferð svo í fyrsta skjáinn þar sem þeir búa í og klikkar á myndina af simsanum sem þú eyddir. Þá birtist hann með grænt í öllu.

Re: Scary Movie...

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Meinarðu þessi <a href="http://us.imdb.com/Name?Wayans,%20Shawn">http://us.imdb.com/Name?Wayans,%20Shawn</a>?

Re: Vantar 1 mkr til bílakaupa.

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú getur prófað að fara bankann þinn og biðja um lán með veði í bílnum. Taktu með launaseðla til að sýna að þú getir borgað af því. Þú færð væntanlega ekki lánað fyrir honum uppí topp en alla vega hjálpar eitthvað. Annars held ég að þú lifir það alveg af þó þú fáir ekki þennan bíl.

Re: Varúð: Eldri borgarar í umferð !

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég sagði aldrei að það ætti að hækka hann uppí 20. Ég hef enga skoðun á hvort ætti að hækka hann eða ekki. Þeir verstu eru byrjaðir að keyra eins og bavíanar 15 ára og próflausir en það er samt ekki ástæða til að lækka hann eða hvað?

Re: Varúð: Eldri borgarar í umferð !

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er ekki bara reynsla heldur líka þroski. Einhver sem er 20 ára er ekki eins líklegur til að keyra eins og bavíani til þess að ganga í augun á félögunum og einhver sem er 17, jafnvel þó þeir séu báðir nýkomnir með bílpróf.

Re: Mikið um ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hundar eru ekkert heimskari en kettir. Þú getur bara rétt spáð í hversu margir kettir verða fyrir bíl hvort þeir séu svo gáfaðir fyrst þeir fatta ekki einu sinni að kíkja í kringum sig áður en þeir hlaupa út á götu. Ég hef meira að segja séð kött liggja úti á götu í rólegheitum, hann rétt svo hafði sig á lappir og labbaði burt þegar ég flautaði á hann. Ástæðan að hundar eru í bandi er að kettir láta fólk yfirleitt í friði en hundar oft ekki auk þess sem hundar eru flestir stærri. Margir eru...

Re: Aldursmunur í samböndum

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég þekki slatta af fólki sem hefur verið í svona samböndum og aldurinn skiptir í rauninni mjög litlu máli. Það fer allt eftir einstaklingunum og þeirra þroska. Þess vegna geta sambönd jafnaldra klikkað vegna þess að það er mikill munur í þroska en ef þroskaður yngri og óþroskaður eldri fara í samband getur það gengið fínt. Þegar fólk er búið að ná fullum þroska, þá er aldursmunur eiginlega alveg hættur að skipta máli. Ég held að það séu bara fordómar hjá þér að finnst eitthvað vera á móti...

Re: Ofsækjandi HJÁLP!!!!

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú verður að koma honum í skilning um að þú hafir ekki áhuga. Þú getur prófað að skrifa það í bréf ef þú heldur að hann hlusti ekki. Þú getur líka prófað að tala við foreldra hans um að tala við hann eða hótað honum lögsókn ef hann hættir ekki. Ég veit ekki hversu alvarlega löggan tekur þetta en þú átt að geta fengið nálgunarbann ef þetta er mjög mikið. Samt er löggan þekkt fyrir að taka fólk ekki alvarlega og liggur við að maður þurfi að vera frægur til að fá aðstoð hjá þeim.

Re: Varúð: Eldri borgarar í umferð !

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nei, fólk yfir 65 þarf ekki að fara í próf árlega. Ökuskírteinið sem þú færð 2 árum eftir bílpróf gildir til 70 ára. Eftir það máttu endurnýja það fyrst í 4 ár, síðan í 2 ár í senn til áttræðs og eftir það í eitt ár í senn. Hins vegar þarf ekki hæfnispróf nema lögreglustjóri telji ástæðu til þess, bara mynd og læknisvottorð. Mér finnst að allir ættu að vera skikkaðir í hæfnispróf á svona 5 ára fresti. Þá held ég að það væri best tryggt að ná fólki af götunum sem á ekki að vera að keyra, sama...

Re: Hvað?

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Að þú munt væntanlega ekki fá skilaboð frá þessum notanda, hvort sem hann svarar þínum greinum eða sendir þér.

Re: Varúð: Eldri borgarar í umferð !

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sorrý en ef þú keyrir aftan á þá ertu of nálægt eða ekki að fylgjast með. Það er engin afsökun fyrir því þó kellingin sjái drauga fyrir framan bílinn og snar hemli. Það hefði sko nefnilega líka getað verið barn. Annars bráðfyndið að keyra aftan á mömmu sína :)

Re: Tölvuleikir og pabbarnir!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
En foreldrar borða samt ekki nammi fyrir framan börnin sín alla daga, er það nokkuð? :)

Re: 1,6 milljón fyrir barn

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Af hverju getur sundkennarinn ekki neitað að taka við einhverjum hópi? Ef yfirmaðurinn minn lætur mig hafa verkefni sem ég get ekki gert einn, þá segi ég það. Nú er ég bara að vinna á smíðaverkstæði þannig að ég ber ekki ábyrgð á neinum krökkum, bara eigin heilsu og mér dettur ekki til hugar að eyðileggja á mér bakið við að lyfta einhverju drasli einn sem ég ræð ekki almennilega við. Ef þetta yrði til þess að ég yrði álitinn latur og rekinn, þá get ég bara fengið mér aðra vinnu og ennþá með...

Re: Baða Ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég baða köttinn minn aldrei enda held ég að hún myndi myrða mig ef ég reyndi það. Það var reyndar eitt skipti að ég þvoði henni smá með þvottapoka vegna þess að hún var veik og var búin að slefa yfir allar framlappirnar á sér og skottið og var frekar ógeðsleg. Fyrir utan það er hún alltaf voða fín. Hún er líka inniköttur og verður þess vegna ekkert blaut eða skítug.

Re: Hjálp!! plís kíkið á

í The Sims fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Free will er hvort þeir ákveða sjálfir að gera eitthvað. Ef þú hefur hann ekki á, þá bara bíða þeir þangað til þú segir þeim hvað þeir eiga að gera.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok