Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Nauðgun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvernig veistu að fólk sem hefur verið nauðgað “fær oftast flashback” en fólk sem hefur lent í líkamsárás ekki? Er þetta vísindalega sannað?

Re: Hlutabréf

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þegar vel gengur vilja margir kaupa í fyrirtækinu og því hækka hlutabréfin í verði en þegar illa gengur lækka þau. Ef vel gengur greiðir fyrirtækið líka út arð. Ef þú hefðir t.d. keypt hlutabréf í Eimskip fyrir 10 milljónir fyrir ári síðan á genginu 4,72 gætir þú selt þau í dag fyrir 13.453.389 kr. á genginu 6,35. Einnig hefðir þú fengið um 190 þús. kr. í arð vegna þess að fyrirtækinu hefur gengið vel og því grætt um 3,5 milljónir alls. Ef þú hefðir keypt í ACO-Tæknival í staðinn á genginu...

Re: Fórnarlömb mýflugna

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er frekar mikið bitinn en það hjálpar ef þú setur á þig flugnafælukrem áður en þú hættir þér nálægt þeim. Ég hef ekki prófað B-vítamínið. Síðast þegar ég fór í útilegu hér í Kanada var ég svo mikið bitinn að ég taldi um 70 bit bara á annarri löppinni fyrir neðan hné en reyndar var ég mest bitinn á löppunum. Ég hef líka eitthvað ofnæmi fyrir bitunum þannig að þau bólgna öll upp en flestir sem hér búa og stunda útilegur eru ónæmir.

Re: Nauðgun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Vá, einhver hefur gleymt að taka lyfin sín í morgun. Sagði ég að það mætti nauðga þeim? Ekki held ég það. Ég sagði bara að þær virtust ekki eins illa settar og þú hefur málað á vegginn og veit að sú sem ég þekki vel er ekki það illa sett. Auðvitað fara einhverjar konur mjög illa út úr svona en greinilega ekki allar. Og má ég svo spyrja hversu marga þú þekkir sem hafa lent í líkamsárás og hvort þú vitir hvernig þeim líður og hvaða erfiðleika þeir ganga í gegnum?

Re: Atvinnuleysi - bætur og misnotkun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Maður þarf ekki að koma leiðinlega fram, bara spila sig heimskan. Það getur enginn ásakað þig fyrir eitthvað sem þú ræður ekki við, t.d. heimsku :) Konur sem eru heima með börn nota mikið að segja að þær þurfi x vikur til að finna pössun áður en þær geta tekið vinnuna sem leiðir þá oft til þess að atvinnurekandinn ræður einhvern annan sem getur byrjað strax. Svo er það bara misjafnt eftir verkalýðsfélögum hvað þau eru dugleg að senda fólk í viðtöl.

Re: Spurninginn um Idol þættina

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég fíla þessa þætti og horfi bæði á American Idol og Canadian Idol. Þau eru bæði með aldursmörk 16-26 ára ef ég man rétt. Það er ekki rétt sem sumir hérna segja að keppendur séu bara rakkaðir niður. Þeir sem halda að þeir séu góðir en eru ekki eru rakkaðir niður og hlegið að en þeir sem eru virkilega góðir komast áfram og fá athygli. Ef þú getur eitthvað sungið, alla vega nóg til að komast í topp 5, þá færðu líklega nóga athygli til að skapa þér tækifæri í bransanum.

Re: Nauðgun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Slakaðu á manneskja. Þú hélst því fram að það væri ekki sambærilegt að vera laminn eða nauðgað vegna þess að fórnarlömb nauðgana fengju áfallaröskun og eina sem ég gerði var að benda á að fórnarlömb líkamsárása, þ.e. þeir sem eru lamdir geta líka fengið hana. Hins vegar gleymdi ég alveg að benda þér á það að það eru alls ekkert öll fórnarlömb nauðgana sem fá áfallaröskun. Stelpa sem ég þekki vel sagði mér að henni hefði verið nauðgað en hún var sko ekki með áfallaröskun og virtist nauðgunin...

Re: Eitt sem strákar gera..

í Rómantík fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þeir eru annað hvort að pæla í þér eða ímynda sér hvernig þú lítur út nakin :)

Re: Ástin mín er í Japan (;_;)

í Rómantík fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér finnst svo sem alveg skiljanlegt að hún vilji ekki koma til Íslands nema hafa vinnu því ef sambandið hjá ykkur gengur ekki upp, þá er hún bara búin að fara til einskis og verður að fara heim eftir að hafa eytt fullt af pening og tíma í vitleysu. Það þarf ekki að þýða að hún elski þig eitthvað minna, sumir eru bara alltaf með annan fótinn á jörðinni og verða alltaf að hafa backup plan og vaðið fyrir neðan sig. Veistu hvort hún sótti um hjá au-pair skrifstofu að komast til Íslands og hvað...

Re: The Sims 2

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hann hljómar spennandi. Mér hefur alltaf fundist frekar dularfullt þegar simspar sem er t.d. annað svart og hitt hvítt eignast alveg kolsvört börn eða skjannahvít en ekkert þar á milli. Líka af hverju ættleidd börn eru alltaf hvít. Mér finnst að það ætti að vera random.

Re: Mig vantar hjálp

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Láttu þau kynnast með því að tala saman, borða, horfa á sjónvarp og fara í heitan pott saman. Þegar sambandið er komið upp í svona 50 geturðu farið að flirta og gert þau ástfangin. Þegar sambandið er komið í 100 skaltu láta þau hittast, borða og gera eitthvað skemmtilegt og svo propose. Gerðu þetta heima hjá þeim sem býr í betra húsinu því þar munu þau búa.

Re: Atvinnuleysi - bætur og misnotkun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ertu að reyna að halda því fram að það svindli enginn á bótunum? Ég veit sjálfur dæmi þess að fólk hefur verið að vinna fulla vinnu svart en skroppið í hádeginu einu sinni í viku til að stimpla sig og sækja bæturnar. Ég þekki ekki persónulega dæmi um húsmæður sem eru á bótum en hef heyrt um það og líka fólk sem er í skóla og á bótum. Eina sem það þarf að gera er að mæta í atvinnuviðtöl sem þeim er sagt að fara í og koma það illa fyrir að þau séu ekki ráðin.

Re: 1,6 milljón fyrir barn

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já, aumingja sundkennarinn. Hann stendur sem sagt á bakkanum meðan barnið tekur af sér kútinn, buslar útí djúpu og drukknar. Hvað var hann að horfa á þessa mínútu sem þetta var að gerast? Ekki að maður geti held ég drukknað á einni mínútu. Það tekur um 4-6 mínútur að drukkna ef ég man rétt. Mér finnst alla vega líta út fyrir að hann hafi gert mistök. Auðvitað geta allir gert mistök þó yfirleitt leiði þau ekki til þess að einhver deyji en alla vega þurfa sundkennarar og aðrir sem eru í...

Re: Dómar Kynferðisafbrotamanna.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þeir eru greinilega nýbúnir að breyta þessu með blekkingarnar. Það var alltaf 14 til 16 ára. Smá misræmi í því að ef maður tælir undir 18 ára til kynmaka með gjöfum, þá varðar það 4 ára fangelsi en ef maður borgar í reiðufé þá er það bara 2 ár. Annars er þessi refsirammi alveg nógu rúmur. Hann er bara aldrei notaður að fullu. Hvenær hefur þú til dæmis heyrt um mann dæmdan í 12 ára fangelsi fyrir kynmök við yngri en 14 ára? (og það er rangt hjá DV, hámarkið þar er 12 ár en ekki 14). Maðurinn...

Re: iTrippið mitt ;D

í Apple fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hugsa að hann geti bara tekið yfir útvörp sem eru ákveðið nálægt þannig að hans merki er sterkara en það sem útvarpið er að fá frá sendinum sem er yfirleitt langt í burtu. Mér finnst þetta sniðugt dæmi en hefur ýmsa óæskilega möguleika, t.d. að koma eigin boðskap á framfæri, pólítískum, trúarlegum eða hvað. T.d. gæti Krossinn fengið sér slatta af iTrippum og sent útsendara sína þangað sem líklegt er að fólk sé að hlusta á útvarp ;)

Re: Jólin mín

í Hátíðir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki beint í jólastuði núna enda sumar og steikjandi hiti þessa dagana. Hins vegar voru mín jól öðruvísi að því leyti að heima hjá mér var alltaf borðað kl. 6. Við fórum í bað og í sparifötin kannski kl. 4-5 og rétt fyrir 6 þegar var mest að gera í eldamennskunni hjálpuðum við bróðir minn til að leggja á borð, blanda jólaölið, hita baunirnar og svoleiðis og svo að bera á borð. Við fengum að opna eina gjöf fyrir mat þegar við vorum litlir en svo hættum við að hafa áhuga á því. Við...

Re: Nauðgun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Menn geta líka orðið hræddir um líf sitt ef þeir eru lamdir. Þeir geta líka fengið áfallaröskun og telja sig aldrei örugga, þora varla út úr húsi o.s.frv.

Re: Nauðgun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ævilangt fangelsi á línuna strax væri of dýrt fyrir þjóðfélagið. Mér finnst alveg sjálfsagt að reyna að endurhæfa menn sem brjóta af sér og gera þá hæfari til að lifa í sátt við annað fólk í þjóðfélaginu. Ef það tekst, þá græðum við góðan þjóðfélagsþegn og losnum við að borga undir hann. Það er líka önnur ástæða fyrir að gefa mönnum séns og það er ef þeir eru dæmdir saklausir sem getur nú alltaf komið fyrir.

Re: Enn og aftur um aldursmun para

í Rómantík fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég þekki sambönd þar sem munar 10-12 árum og hefur gengið fínt. Þegar fólk er komið með ákveðinn þroska og ef bæði vilja það sama þá skiptir þetta ekki máli. Það er allt annar munur á 18 og 30 eða 28 og 40. Kannski ættum við bara frekar að tala um aldursmun í prósentum :) Annars var amma mín 21 ári yngri en afi og hún sagði að það væri helst til mikið enda kallinn orðinn gamall og veikur meðan hún var enn á besta aldri.

Re: Dómar Kynferðisafbrotamanna.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hugsa að eins og kerfið er í dag, þá fengi sá fyrri bara dóm fyrir morð en hinn fengi morð + mannrán + nauðgun + líkamsmeiðingar og allt annað sem þeir gætu klínt á hann. Samt frekar ólíklegt að hann fengi meira en 20 ár án skilorðs en hinn fengi kannski 16 og skilorð eftir 2/3

Re: Nauðgun

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ofbeldisbrot, þar á meðal kynferðisbrot eru öllu alvarlegri en flest önnur því þau hafa mun verri afleiðingar fyrir fórnarlambið. Ef einhver stelur frá Símanum, þá hækka símareikningarnir kannski um 1 kr. á mann. Ef einhver stelur frá mér, þá borga tryggingarnar það vonandi og það er fátt það sem maður á í eignum sem verður ekki bætt með peningum. Ástæðan fyrir að taka síbrota ofbeldismenn af götunum hefur lítið að gera með fælingarmátt enda er ég alveg sammála því að þessar refsingar hafa...

Re: Linkurinn "Live Nude Cats"

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég held að þetta sé bara svartur húmor og í rauninni verið að gera grín að klámi. Saklausar myndir af köttunum og svo einhver steiktur texti. Ef þú kíkir á credits sérðu kynningu á köttunum hans sem heita Ella og Borders.

Re: Hrottaleg nauðgun í Hafnarfirði.

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sumir þeirra eru væntanlega fórnarlömb og aðrir ekki. Hins vegar er of seint að stoppa það sem var gert við þá 20-30 árum áður en það er ekki of seint að stoppa það sem þeir ætla að gera við aðra. Mér finnst að það ætti að reyna að setja þá í meðferð en það hefur bara sýnt sig að það er mjög erfitt að lækna þessa tegund afbrotamanna af sinni áráttu og þeir eru mjög gjarnir á að brjóta af sér aftur. Steingrímur Njálsson var á sínum tíma sendur í meðferð til Svíþjóðar og ekki batnaði hann...

Re: Bowling for Columbine

í Hugi fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ekki veit ég hvort hún er til á leigum en þú getur pantað hana á <a href="http://froogle.google.com/froogle?q=Bowling+for+Columbine">http://froogle.google.com/froogle?q=Bowling+for+Columbine</a> Góð mynd. Man samt ekki hvað lagið heitir. Ég sá bara myndina í bíó, á hana ekki.

Re: Réttlæting reykingamannsins

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Íþróttaslys eru tryggð á sama hátt og vinnuslys þannig að þú átt rétt á slysadagpeningum og að fá greiddan sjúkrakostnað ef þú ert óvinnufær í 10 daga eða meira. Þú hins vegar færð þetta ekkert sjálfkrafa. Þarft að vita að þú eigir rétt á þessu og sækjast eftir því eins og er líka um margt annað í kerfinu. Þú getur séð meira um þetta á http://www.tr.is/main/view.jsp?branch=104822
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok