Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Og ég myndi segja það sama við þennan menntaða forritara úr HÍ. Ef hann vill halda áfram í tölvubransanum þá er langbest að skella sér í skóla í einhvern tíma þar til markaðurinn lagast. Atvinnurekandi ræður frekar mann sem hefur eytt tímanum í skóla að bæta við sig í menntun heldur en mann sem er búinn að vera atvinnulaus í marga mánuði eða hefur verið að vinna á bensínstöð, já, eða leikskóla.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þú vilt frekar hengja þig en að fara í nám þá ræður þú því en ég myndi nú persónulega frekar velja seinni kostinn. Atvinnurekendum er illa við að ráða fólk sem hefur verið atvinnulaust mánuðum saman og myndu þá frekar taka einhverja sem eru nýútskrifaðir. Ég trúi alveg að þessi 19 ára hafi fengið þessa vinnu en ég trúi því seint að hann hafi fengið hana á eigin verðleikum þó hann segi það ábyggilega. Myndir þú segja í viðtali ef þú hefðir fengið vinnu í gengum klíku? Ég held ekki.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef mamman er fyllibytta, þá skiptir ekki máli hvað það er mikill kommúnismi, hún myndi samt redda sér brennivíni og ef hún þyrfti myndi hún skipta matvælum sem hún fengi frá ríkinu fyrir brennivín. Hins vegar eru til barnaverndarnefndir og ef fólk getur ekki séð um börnin sín vegna drykkju þá eru þau tekin af þeim. Annað, finnst þér nóg að borga bara þá skatta sem ríkið rukkar þig? Fyrst þú trúir að það ætti að jafna meira stöðuna í þjóðfélaginu, ættir þú ekki að reyna að stuðla að því með...

Re: Veiðileyfi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Meðan lausaganga katta er leyfð, þá verður maður bara að grípa til sinna ráða. Þú getur þess vegna sett net fyrir gluggana eða prófað að kaupa kattafælusprey í dýrabúðum og spreyja í kringum þá.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Með þetta dæmi sem þú tókst, þessi einstæða móðir fær aukalega meðlag með 3 börnum uppá 3x16 þús. á mánuði. Væntanlega líka barnabætur og vaxtabætur. Hún gæti líka sleppt því að eiga bíl og keypt rauða kortið og ég held ekki að bílatryggingar séu svona ódýrar. Hins vegar er ég alveg sammála því að fólk getur verið alveg jafn miklir letingjar í skóla þó það þurfi að borga. Síðan hvenær hefur krökkum ekki verið sama hvað foreldrar þeirra þurfa að borga og það eru jú foreldrarnir sem borga...

Re: Veiðileyfi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég held að það sé ætlast til að þú látir kettina til meindýraeyðisins sem líklega setur þá í Kattholt eða skilar þeim til eigenda. Annars finnst mér gleymast í þessari umræðu með fólk sem hefur gaman af blómum. Kettirnir eru svo góðir að grafa yfir skítinn sinn í blómabeðunum en geta þá líka rótað upp blómum í leiðinni eða manneskjan sem á blómabeðið er að vinna í garðinum og kannski planta og grípur um kattaskít. Ekki sérlega geðslegt.

Re:

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Tvö vandamál. Ef maður hefði einhvern tímann verið grunaður um kynferðisafbrot, þá væri líf hans ónýtt vegna þess að eins og þú vilt hafa það þá myndi þetta alltaf fylgja honum, enginn myndi ráða hann í vinnu, hann gæti hvergi búið o.s.frv. Hins vegar að segja hvar þeir búa eins og er sums staðar gert erlendis eftir að búið er að sleppa þeim úr fangelsi. Ef það hefði tekist að endurhæfa manninn og hann væri hættur þessu, á hann þá ekki rétt á að reyna að lifa eðlilegu lífi? Ef fólk kemur...

Re: Veiðleifi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég held að það vanti nú eitthvað mikið í þig. Hesta inní borg? Hvernig heldurðu að malbikið fari með hófana á þeim? Af hverju flytur þú ekki frekar útí sveit? Og meðan ég man, þá er líka fullt af fólki sem er með ofnæmi fyrir gróðri og loðnum dýrum og unir sér best í steyptu umhverfi með kannski fiska sem gæludýr :)

Re: part of ofvirkur!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fyrst hann er svona lítill, ef hann er alveg í kasti geturðu prófað að halda honum þétt svo hann geti ekki farið neitt. Þá brjálast hann fyrst en svo róast hann. Eða á alla vega að virka svoleiðis :) Annars verður þú bara að prófa þig áfram.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Lastu eitthvað af því sem ég skrifaði? Ég veit ekkert um þennan strák en mér finnst mjög ólíklegt að einhver sem er 19 með enga menntun fái vinnu nema hann sé hreint ótrúlega heppinn, t.d. starfsmannastjórinn ætlaði að fara heim með allar umsóknirnar og missti þær allar í poll og hans var eina með vatnsheldu bleki eða hann var sá eini sem komst í viðtalið vegna þess að allir hinir lentu í að bíllinn þeirra bilaði á leiðinni. Svona heppni er vægast sagt frekar ólíkleg þannig að ég hallast...

Re: Hvernig deitar maður í sims?

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér fannst það erfiðara að búa til pör eftir að ég fékk mér Hot Date. Ég t.d. átti hjón sem voru með sambönd í 100 og þegar ég keypti Hot Date fóru þau að hata hvort annað og enduðu með að vilja ekki sofa saman lengur.

Re: part of ofvirkur!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Láttu hann bara hlaupa og öskra. Þá þreytir hann sig kannski. Þú gætir líka prófað að fara út að hjóla og láta hann hlaupa á eftir þér ;) Annars hef ég heyrt að ef þú vilt að ofvirkt barn taki betur eftir því sem þú ert að reyna að segja við það, þá áttu að halda í hendurnar á því meðan þú talar við það.

Re: Veiðleifi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er nákvæmlega málið að ef þú ert með dyr beint út, þá verður þú að fara varlega um dyrnar ef þú vilt ekki að hún sleppi og treysta öðrum fjölskyldumeðlimum til að gera það sama.

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Í rauninni er ábyrgðin líka neytandans þar sem þú gætir aflað þér upplýsinga um fyrirtæki og keypt ekki vöru sem er framleidd í þróunarlöndunum. Hins vegar efast ég um að það myndi gera þróunarlöndunum eitthvað gott. Er ekki verksmiðja með lúsarlaunum betri en ekki neitt?

Re: Veiðleifi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hundar ósjálfstæðir? Þú hefðir átt að hitta hundinn sem ég átti þegar ég var krakki. Auðvitað sækir kötturinn í að komast út. Forvitnin er að drepa þessi kvikindi og þeir verða að skoða allt. Málið er bara að passa að þeir komist ekki út. Ég er með flugnanet á gluggunum sem er úr vír og mín sleppur sko ekki út um það. Ég þarf heldur ekki að hafa miklar áhyggjur af að hún sleppi út um dyrnar því ég er í blokk. Hún bíður stundum eftir mér þegar ég kem heim og skýst út úr íbúðinni og hleypur...

Re: Stöð 2

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fyrst þegar stöð2 byrjaði þá ætluðu þeir að hafa helminginn af dagskránni ólæstan með auglýsingum og hinn helminginn læstan með engum auglýsingum. Þeir græddu greinilega ekki nógu mikið á því eða öllu heldur kannski töpuðu of miklu þannig að þeir voru fljótir að læsa öllu og setja auglýsingar í allt. Annars borga ég um 1340 kr. ísl. á mánuði fyrir minnsta kapalpakkann sem inniheldur 32 rásir. Reyndar eru nokkrar af þeim einhverjar óspennandi frétta/viðskipta/upplýsinga/sjónvarpsmarkaðsrásir....

Re: Vírus skannari

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hér: <a href="http://www.grisoft.com/us/us_dwnl_free.php">http://www.grisoft.com/us/us_dwnl_free.php</a

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er ekkert frekar að tala um þig heldur um einhvern sem heldur því fram að hann þurfi enga menntun vegna þess að einhvern annar með enga menntun hafi verið ráðinn. Veistu að þessi strákur hafi ekki líka verið í klíku? Ef ég er rosa klár en hef enga menntun og ég labba mig inní atvinnuviðtal og segi það, þá er frekar ólíklegt að atvinnurekandinn trúi mér. Ef ég hins vegar á vini eða frændfólk sem þekkir atvinnurekandann og getur vitnað um að ég sé rosa klár þá horfir málið öðruvísi við. Ég...

Re: Veiðleifi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú gætir sagt það nákvæmlega sama um sveitahunda sem hefðu verið vandir á að vera frjálsir úti. Það er ekki hægt, það er í eðli hans, fólk hefur gaman af að hitta hund á förnum vegi, það getur klappað honum o.s.frv. Þegar Reykjavík var að byggjast upp, þá var þetta þannig. Hundar hlupu lausir um göturnar í hópum en seinna þótti fólki að þetta gengi ekki í borginni og þetta var bannað. Mér finnst alveg sama með ketti. Það passar bara ekkert að hafa ketti lausa í borgum. Þeir bæði valda fólki...

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hélt við værum að tala um hvort IR væri góður undirbúningur fyrir HÍ eða ekki. Í sambandi við strákinn aftur, þá getur það verið að hann hafi bara verið svona klár en atvinnurekandi getur ómögulega vitað hver er klár og hver ekki. Þú getur þess vegna ekki ætlast til að hann ráði einhvern mann sem labbar inn af götunni og segist hafa verið að grúska við tölvur. Ef maður hefur nám á bakvið sig, þá veit atvinnurekandinn nokkurn veginn hvað maður kann mikið. Í sambandi við að hafa...

Re: Étur.................

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Spurðu dýra.

Re: Veiðleifi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég veit ekki hversu mikið er af villiköttum en það hlýtur að vera eitthvað af heimilislausum köttum sem hefur verið hent út eða fólk flutt. Kettir geta vissulega valdið fólki ónæði, t.d. með breimi um miðjar nætur, með því að fara innum glugga, með því að míga utan í hús og með því að skíta í blómabeð eða sandkassa. Hin stóra kattaveiðiherferð Reykjavíkurborgar hér um árið sýndi það greinilega að obbinn af þeim köttum sem eru að hrella fólk eru ekki villikettir heldur heimiliskettir. Kannski...

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég átti ekki í vandræðum með stærðfræðina í IR. Alls ekki. Held að lægsta stærðfræðieinkunnin mín þar hafi verið 8 eða 9. Það fólk sem var með mér í bekk í IR var misjafnt og sumt af því var að falla. Hins vegar voru það bestu nemendurnir úr IR sem héldu sig eiga erindi í HÍ. Þrír strákar þaðan fóru í verkfræði og féllu allir illa strax fyrstu önnina og hættu. Einn þeirra heyrði ég að hefði fengið taugaáfall og endað á geðdeild. Tveir aðrir fóru í tölvunarfræði og brilleruðu í tölvufögunum...

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég fór sko einmitt hina leiðina. Ég fór í bóknám og var hvattur til þess af fjölskyldu enda gekk mér vel í skóla. Ég fór svo að vinna en komst að því að kyrrsetuvinna á bara ekkert við mig þannig að ég endaði með að fara í iðnnám. Það er fullt af fólki sem telur sig vita í hverju öll störf felast og hefur fordóma gagnvart hinu og þessu sem það hefur aldrei prófað. Margt iðnmenntað og verkafólk lítur niður á háskólamenntað fólk því það “situr jú bara á sínum feita rassi allan daginn og gerir...

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Annað sem ég á erfitt með að skilja þessi árátta að reyna að beina öllum í bóknám. Sumir hafa bara ekkert að gera í bóknám en þeim er sagt að þeir verði að klára stúdentinn strax vegna þess að annars verði það svo erfitt og þá eyða greyin einhverjum árum flakkandi milli menntaskóla, falla mis mikið á hverri önn og sjálfstraustið fer minnkandi með hverjum skóla. Það er ekkert að því að fara í iðnnám. Tekjurnar eru oft betri en hjá háskólamenntuðum og í mörgum greinum mun auðveldara að fá...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok