Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Slakaðu á. Ég sagði aldrei að þeir væru heimskir. Þeir eru einmitt mjög gáfaðir að vilja fá stjórnkerfi sem gefur þeim meira í vasann. Það vildi ég líka meðan ég var í námi en skipti mjög fljótt um skoðun þegar ég fór að vinna og borga skatta. Finnst þér það virkilega eðlilegt að vilja fórna öllum sínum séreignum til þess að allir geti verið jafnari? Ert þú tilbúin til þess? Þannig er nefnilega kommúnismi í sinni hreinustu mynd, þ.e. enginn á neitt, allir hjálpast að og allir fá eins og þeir...

Re: Strætó

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Reyndar er líka hægt að senda tölvupóst til strætó til að spyrja hvernig maður kemst frá einum stað til annars á ákveðnum degi/tíma og fá svar innan 2ja daga en það er frekar vonlaust hér að labba bara út á stoppistöð og ætla sér að taka næsta strætó sem kemur. Maður verður að vera búinn að tékka hvert maður ætlar að fara og finna rétta strætóinn og tengingar milli strætóa. Þess vegna er oft betra að hringja í strætó en að reyna að finna þetta sjálfur. Hins vegar lærir maður náttúrulega á...

Re: Innan fangelsismúrana

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það heitir ritstuldur og hægt að banna þig af Huga fyrir það og væntanlega skv. lögum hægt að sekta þig þó ég efast um að nokkur nenni að eltast við þig út af einni grein. Þú hlýtur að sjá það að þegar þú tekur texta og setur hann í grein án þess að geta heimilda, þá ertu að láta líta út fyrir að þú hafir skrifað hann sjálfur. Sem sagt að þú ert að stela texta sem einhver annar skrifaði. Þó þér finnist kannski ekkert að því að stela, þá er það samt bannað með lögum.

Re: Photoblocker sprey?

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
T.d. á <a href="http://www.phantomplate.com/">http://www.phantomplate.com/</a

Re: Strætó

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eru þeir ekki einu sinni með vefsíðu eða neitt? Strætó hjá mér er með vefsíðu og það er hægt að sækja kort af borginni og sjá hvaða vagnar ganga hvar en það er bara svo geðveikt flókið auk þess sem þú kannski sérð einhvern vagn sem virðist henta mjög vel en kemst svo að því að hann gengur bara á annatímum á virkum dögum eða eitthvað slíkt. Ég get líka séð áætlun og kort fyrir hverja leið á netinu og svo eru þær á pappírsformi í strætó, frítt en bara bæklingur fyrir hverja leið fyrir sig.

Re: mótmælandinn

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta hlýtur að vera Helgi Hós. Hann er smá sérvitur, ok, kannski mikið sérvitur, en þú ættir bara að spyrja hann hvað hann meini með þessu skilti ef þig langar að vita það. Hann skiptir um skilti reglulega. Síðast þegar ég sá hann var hann með skilti sem stóð á “snjóflóðagvöð” og var hann að versla í Bónus og setti allar vörurnar sem hann keypti í strigapoka. Hann gleymdi næstum skiltinu sínu en varð mjög glaður þegar ég minnti hann á það. Hann barðist í mörg ár fyrir því að fá sig afmáðan...

Re: Strætó

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er kannski ekki alveg sambærilegt að bera saman almenningssamgöngur í þéttbýlum milljónaborgum eða okkar molbúa-höfuðborg sem telur eitthvað rétt yfir 100 þús. Ég bý í Kanada og hér eru áætlanir sniðnar að farþegunum. T.d. eru tveir strætóar ekki svo mikið að keyra sömu götuna á sama tíma eins og maður sér oft heima, kannski 4 í samfloti að keyra Suðurlandsbrautina eða álíka. Strætóskýlin eru svipuð og nýju skýlin sem sett voru upp í Reykjavík nema þau eru lokuð og blæs ekki í gegn alls...

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gunni, hún er að reyna að hjálpa þér. Ef þessi strákur fékk vinnu gegnum klíku, þá eru það ekki rök fyrir því að hans menntun dugi öðrum sem eru ekki í klíku. Ef hann fékk þessa vinnu út á það að hann sé sérlega klár, þá eru það heldur ekki rök fyrir því að hans menntun komi til með að skaffa þeim vinnu sem eru bara meðal klárir. Ég veit alveg að það er fullt af fólki sem fellur í IR. Það er líka fullt af fólki sem fellur í 10. bekk og það er fullt af fólki sem fellur í HÍ en á hverju...

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
“Var það nú ekki hér í denn þegar eftirspurn var eftir fólki með einhverja tölvumenntun - sama hversu lítil hún var?” Ég man eftir lægðinni ‘88 því þá var ég að reyna að komast inní bransann. Ég gat ekki fengið vinnu með það litla nám sem ég hafði á bakvið mig og fór því á tölvubraut IR og ætlaði reyndar bara að stoppa þar meðan atvinnuástandið batnaði. Ég kláraði ’91 og margt af því fólki sem var samskóla mér fór að vinna hjá Tæknival fyrir frekar lág laun. Sumir sögðu að þeir væru þar í...

Re: Komúnistmi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gallinn við kommúnisma er að þeir sem vilja hafa hann er almennt fólk sem getur ekki eða nennir ekki að vinna sér inn pening og vill að bæturnar sínar frá ríkinu séu háar. Fólk sem hins vegar getur og nennir að vinna er ekkert rosalega ánægt með það að það fái bara jafnmikið og einhver sem er í skóla eða einhver sem er á atvinnuleysisbótum og situr heima og horfir á imbann allan daginn. Þess vegna er líklegt að fólk sem lifir við kommúnisma annað hvort hætti að leggja hart að sér vegna þess...

Re: Photoblocker sprey?

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Til að löggumyndavélarnar nái ekki númerinu á bílnum þá er þessu spreyjað á númerplötuna. Ég hef heyrt að hárlakk geri sama gagn en þarf að setja það svolítið oftar á.

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég tók nú líka tölvubraut IR einhvern tímann og átti skólafélaga sem fengu vinnu í bransanum og suma sem gerðu það mjög gott. Fer bara mikið eftir hæfni og heppni hvers og eins og náttúrulega líka atvinnuástandi á hverjum tíma. Ég hins vegar hélt áfram í námi og fór í HÍ og komst að því að IR var ekki sérlega góður undirbúningur. Alla vega ekki stærðfræðin en það gæti svo sem hafa breyst síðan.

Re: Trúar jafnrétti!!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég býst við að fólk sé bara latt og vilji að skólinn sjái um þetta fyrir það en mér finnst það alls ekki passa í landi þar sem á að ríkja trúfrelsi að skólabörnum sé kennt í ríkisskólum að einhvern ein trú sé sú eina rétta og er kennd Biblían eins og allt í henni sé hreina satt og óumdeilt.

Re: kanínurnar mínar orðnar gamlar

í Gæludýr fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þær eru líklega orðnar frekar gamlar. Ég fann á netinu um kanínur að þær gætu orðið 5-12 ára.

Re: Dýrt !

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fullorðinn eða ekki þá finnst mér alveg eðlilegt að það sé bara eitt gjald á hvert sæti og krakkar taka alveg jafn mikið pláss í flugvélinni. Hins vegar, ertu búinn að tékka á hvað kostar ef þið takið Flugleiði eða Iceland express til Köben og annað þaðan eða ef þið farið í gegnum London? Á Flugleiðavefnum er þetta frá 145 þús. til London fyrir 4 en á Iceland Express er með frá 80 þús. sama (frá 20 þús. á mann). Á http://www.cheapflights.co.uk/ eru ódýr flug frá London og hægt að finna...

Re: LESBLIND? :'(

í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér sýnist þér ganga ágætlega hér á Huga en þú getur kíkt á þessi <a href="http://affino10.emojo.com/hvaderlesblinda/index.cfm?ccs=125&cs=241">einkenni lesblindu</a> og séð hvað af þessu á við þig.

Re: Ósanngjart eða?

í Djammið fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Voruð þið virkilega handteknir? Mig minnir að ég hafi einhvern tímann heyrt að það væri bannað að vera ölvaður á almannafæri en maður getur nú bara farið niðrí bæ um helgar og séð hvað löggan gerir mikið í því. Ertu viss um að þið hafið ekki verið með læti? Stundum þegar maður heldur að maður sé alveg til friðs, þá talar maður kannski nógu hátt til að vekja einhverja frú af værum svefni og hringir hún í lögguna og segir henni að fjarlægja þessar byttur úr nágrenninu. Hins vegar á löggan...

Re: Hlutavréf...again!!

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Labbaðu bara inná verðbréfamarkað og spurðu þá. Annars er þetta áhættusöm fjárfesting. Þú getur grætt en þú getur líka tapað. Það eru t.d. 2 verðbréfamarkaðir í <a href="http://www.simaskra.is/control/index?pid=10409&query=ver%F0br%E9famarka%F0ur">símaskránni</a

Re: spurning

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Kapítalismi byggir á frjálsum markaði og samkeppni. Að það að þú getir eignast mikið með því að vera duglegur hvetji þig til að vera duglegur og þú munir geta stofnað fyrirtæki og ráðið fullt af fólki sem er kannski ekki eins duglegt. Að samkeppni muni bæta hag allra þar sem verð muni haldast lág. Sósíalismi vill meiri ríkisafskipti og meira kerfi. Þar er frekar reynt að jafna kjörin þannig að þeir sem eru fátækir fá styrki frá ríkinu, atvinnulausir og öryrkjar fá bætur o.s.frv. Auk þess...

Re: Trúar jafnrétti!!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Samkvæmt nýjustu námsskrá, þá á að kynna börnum önnur trúarbrögð frekar snemma eða frá og með 2. bekk. Hins vegar er þetta mjög lítilvægt atriði í námsskrá og ég veit ekki hvernig þessi kynning fer fram og hversu mikil hún er. 95% af kennsluefninu virðist ennþá vera kristni sem er kannski 100% rétt fyrir 95% barna á Íslandi en 100% rangt fyrir börn þeirra sem eru ekki kristnir. Mér finnst bara að trúfræðsla með þessum hætti, þ.e. þessi trú er sú eina rétta, alls ekki eiga heima í skólunum....

Re: Nú skal jafna stöðu kvenna og það með lagasetningu

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
“Fékk fólk ekki a.m.k. hér í denn vinnu í gegnum atvinnleysisskrifuna (man ekki hvað hún heitir) án viðtals?” Það eru ca. 10 ár síðan ég var atvinnulaus í smá tíma og þá var það þannig að maður mætti og stimplaði sig einu sinni í viku og fór síðan í stéttarfélagið og sótti bæturnar. Atvinnuleysisskrifstofan fékk síðan að vita um laus störf hjá stéttarfélögunum sem lögðu fyrir að þau væru fyrst boðin sínum félagsmönnum þannig að ef maður t.d. vann síðast í Dagsbrún, þá fékk maður bara störf...

Re: Unglingar =Vandi

í Djammið fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er grein á Deiglunni sem heitir “Leyfi til að tjalda” og er á http://www.hugi.is/deiglan/greinar.php?grein_id=1633009 6 og þar kemur fram að þú mátt tjalda utan tjaldsvæða víðast hvar en náttúrulega engin aðstaða.

Re: Ofbeldi

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Bara best að skvetta vatni á ketti sem maður vill losna við. Þeim er yfirleitt frekar illa við vatn þannig að taktu bara upp super-soakerinn og bíddu svo eftir þeim ;)

Re: Innan fangelsismúrana

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Árni blessaður hefur líklega bara verið úti við heyskap þegar var hringt. Þetta er nefnilega sveitabær og fangarnir vinna þarna.

Re: Innan fangelsismúrana

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þig langar í fangelsi, þá er það ekki málið. Þú þarft bara að fremja einhvern góðan glæp svo þú lendir á sveitaheimilinu Kvíabryggju eða í kvennafangelsinu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok