Ég var á spjallþræði með aðallega ameríkönum að ræða þetta og það var einn frá New York sem meðal annars tók þátt í hreinsunarstarfinu eftir 11. sept. og hann sagði að fólk var að koma með og hengja upp bréf, myndir, minningarorð um látna vini og ættingja og það var ekki eitt einasta bréf sem kallaði á hefnd. Hann var hreinlega bara sár yfir því að það væri verið að nota árásirnar til að réttlæta það að ráðast á almenna borgara í öðrum löndum.