Ef þú heldur að hann sé hugsanlega hættur í neyslu, þá geturðu boðið honum að kíkja í heimsókn annan hvern laugardag eða sunnudag. Ef hann stendur sig í að mæta, lætur vita ef hann kemst ekki og virðist ekki vera í neinu rugli, þá geturðu farið að leyfa að hann taki barnið með í bíltúr eða nokkra tíma. Ef það gengur síðan vel, þá geturðu leyft honum að taka barnið yfir nótt o.s.frv.