Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: SOS geimverur

í The Sims fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mínir hafa verið í burtu í ca. 12 tíma og koma svo aftur frekar þreyttir og skapvondir og hugsa ekki um neitt nema geimverur.

Re: Röð....

í The Sims fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Livin' it up” er bara Evrópska útgáfan af “Livin' large”. Sömuleiðis er “Sims On Holiday” Evrópska útgáfan af “Sims Vacation”. Ég veit ekki betur en að það sé enginn munur á Evrópsku og Amerísku útgáfunum nema í þessum tveimur tilvikum mismunandi nöfn og hef ekki hugmynd um hvers vegna þeir gerðu það. Röðin hjá þér er annars rétt nema þú gleymdir Vacation sem kom á eftir Hot Date og undan Unleashed.

Re: Gnomes...

í The Sims fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég held að það hafi komið í Hot Date

Re: Verslunamannahelgin í öllu sínu veldi

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, það eru margir sem græða vel á að brugga landa og selja krökkum og það er mjög auðvelt fyrir krakkana að fá hann, bara hringja úr gemsanum í bruggarann og hann mætir og selur þeim það sem um var talað.

Re: --- Fangelsi frekar en herinn ---

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mörg lönd í Evrópu eru með herskyldu, meðal annars hin Norðurlöndin. Sums staðar er fólk sett í fangelsi ef það neitar að ganga í herinn og ég veit að það var enn verið að gera það í Finnlandi fyrir ca. 10 árum. Gæti verið hætt núna. Síðan er mis auðvelt að sleppa með því að fá læknisvottorð, t.d. segja að maður sé með astma eða eitthvað og mörg lönd eru farin að leyfa þeim að vinna í staðinn þegnskylduvinnu sem vilja ekki fara í herinn af trúar eða samviskuástæðum. Annars held ég að það...

Re: svart eða atlas

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Reyndar er sagt á svart.is að það sé bara frítt fyrir námsmenn fyrsta árið og eftir það árgjald 4 þús. kall en fyrir aðra en námsmenn er árgjaldið 4600.

Re: Verslunamannahelgin í öllu sínu veldi

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ef foreldrar kaupa áfengi fyrir börnin sín þá eru þau í fyrsta lagi að brjóta lög og í öðru lagi þá tryggir það ekkert að þau viti hvað börnin eru að drekka og hversu mikið. Krakkinn gæti bíttað rauðvíninu sínu fyrir eitthvað annað og/eða keypt sér aukalega af landa og líka verið að fá sopa hjá hinum og þessum. Eina sem foreldrar eru að gera með því að kaupa áfengi fyrir börnin sín er að þau eru að leggja blessun sína yfir að þau drekki.

Re: Gnomes...

í The Sims fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þú selur þá eins og þú selur málverk og húsgögn sem þú vilt ekki eiga lengur, ferð í skjáinn þar sem þú kaupir húsgögn (F2), velur álfana og færir þá í bláa reitinn neðst eða bara ýtir á delete takkann. Það er hægt að hafa ágætar tekjur af álfasölu eða þannig. Eins og með málverkin þá færðu meiri pening eftir því sem þú er kominn með fleiri punkta. Held það sé sama með preserves nema þú færð cooking points þar.

Re: Áfengi um verslunarmannahelgina.

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er náttúrulega mjög ábyrgðarlaust ef það er alveg á herðablöðunum en ég held að þetta gildi nú varla um helming foreldra. Flestir fá sér aðeins í annan fótinn og láta það nægja. Svo er heldur ekki eins slæmt þó tveggja ára barn sé á röltinu í sæmilega barnheldu húsi þar sem það á erfitt með að fara sér að voða eða á tjaldstæði þar sem það gæti labbað út á veg, dottið ofan í læk o.s.frv.

Re: Áfengi um verslunarmannahelgina.

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Með fullri virðingu fyrir afrekum þínum þá held ég að það sé nú smá alvarlegra þegar fólk er dauðadrukkið eða dautt með tveggja ára gamalt barn sem getur farið sér að voða.

Re: Kannski önnur Hermione Granger

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ætli það hafi ekki verið talað um “bubbly” sem getur kannski frekar verið glaðlegur eða málgefinn.

Re: Algjört hneyksli

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það getur verið samviskusamara í vinnu en það er ekki þar með sagt að það sé gott í að hugsa um börn og geti talað við þau til að hjálpa þeim að þroskast. Þess vegna þarf að reyna að hjálpa því og fylgjast með að allt gangi vel.

Re: Greið kötturinn minn.

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hvað búa amma þín og afi eða pabbi þinn eitthvað langt í burtu? Geturðu ekki hringt í þau og sagt þeim frá þessu og spurt hvort þú getir flutt til þeirra með köttinn áður en mannfíflið drepur köttinn eða þig eða kannski bæði. Annars finnst mér að þú eigir ekkert að vera að hugsa um að kæra hann. Þú átt bara að gera það. Ef þessi maður er vondur við þig, þá skaltu hringja í lögguna eða barnaverndanefnd og klaga. Það er allt svoleiðis skráð niður og þá koma þau og tala við mömmu þína og gæti...

Re: svart eða atlas

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Euro býður upp á niður í 75 á mánuði fyrir að skoða gegnum netið en ég sé það ekki hjá Visa þannig að þú skalt tékka á því. Ég var sjálfur að spá í að skipta um viðskiptabanka og þar sem ég bý í Kanada þá má maður varla gera nokkurn skapaðan hlut án þess að það sé færslugjald. Ég var búinn að finna einn sem leit nokkuð vel út þar til ég sá að þeir voru að rukka 30 kr. ísl. á hverja færslu, líka í netbanka. Bankinn sem ég er hjá núna er frekar ömurlegur en alla vega með netbankann frítt.

Re: Meira um jafnrétti og bætta stöðu kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þú gleymir hæst laun og mesta virðingu með hvað minnstri vinnu ;)

Re: Vinnufólk með móral!

í The Sims fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Eyddirðu nokkuð póstkassanum? Annars geturðu í sumum leikjunum keypt vélmenni sem þrífur hjá þér. Man ekki hvort það kom í house party eða hot date. Hann gerir líka við og vinnur í garðinum. Best bara að kveikja á honum rétt áður en fólkið fer að sofa og þá gerir hann bara allt meðan það er sofandi.

Re: Meira um jafnrétti og bætta stöðu kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já og þar er mamma allra verst. Ég held að hún myndi skammast sín að segja hvað maður væri að gera ef það væri ekki nógu fínt svona :)

Re: svart eða atlas

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er ekki víst að BÍ myndi leyfa þér að taka annað kort frítt þegar þú ert búinn að gera það einu sinni en það má reyna. En lastu svarpóstinn minn til tholla um útskriftargjöldin? Ef þú ætlar að spara á að hafa kortið, þá máttu passa þig á útskriftargjöldunum sem eru 95 kr. á mánuði ef þú lætur skuldfæra og 255-270 kr. á mánuði ef þú ætlar að borga með gíróseðli.

Re: Meira um jafnrétti og bætta stöðu kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Það er náttúrlega bara fífl og aumingjar sem velja sér störf sem ekki gefa virðingu og fullt af peningum” Sagði ég það? Ég held nú ekki. Einhverjir þurfa líka að vinna þessi störf en það er ekki nema eðlilegt að færri hafi áhuga eftir því sem launin eru lægri og virðingin minni. Fólk þarf nú líka að þéna nóg til að lifa af því.

Re: Meira um jafnrétti og bætta stöðu kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sókn í virðingu og peninga hlýtur að vera hluti af því af hverju fólk hefur áhuga á einhverju starfi. Segjum að þig langi allra mest til að vinna í sælgætisgerð Nóa Síríus. Myndi það ekki slá aðeins á áhuga þinn þegar þú fréttir að launin eru lág og auk þess myndu allir vinir þínir og ættingjar fitja upp á nefið þegar þeir fréttu að þú ætlaðir bara að vinna í verksmiðju? Og er ekki líka hægt að hafa áhuga á tveimur ólíkum störfum eins og tveimur ólíkum hlutum, t.d. bæði fiðlunámi og...

Re: Meira um jafnrétti og bætta stöðu kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Fólk getur reyndar fengið námslán líka í Bandaríkjunum nema þau eru bara með bankavöxtum og eru líka greidd upp þó nokkuð mikið hraðar en lánin hjá LÍN.

Re: svart eða atlas

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ekki má gleyma að kortin eru líka með útskriftargjald. Hjá Euro er þetta 255 kr. á mánuði ef greitt er með gíróseðli, 95 kr. ef skuldfært og 75 ef fólk fær ekki sent yfirlit heldur skoðar á netinu. Hjá Visa er það 270 fyrir gíróseðil og 95 ef skuldfært. Ansi fljótt að slá út einhvern 300 kall sem átti að spara og tala nú ekki um þegar árgjaldið dettur inn :) Hins vegar finnst mér mjög þægilegt að hafa kreditkort og vildi ekki sleppa því en ég læt mér nægja almennt kort með lægra árgjaldi.

Re: svart eða atlas

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mér hefur fundist þegar ég er erlendis að visa sé algengara en mastercard en kannski bara þar sem ég hef verið. Ef þú ferð á vefi visa og eurocard og skoðar þessi kort, þá er árgjaldið á svarta 4.200 en atlas 5.500 sem þú þarft væntanlega að borga eftir árið ef þú ætlar að halda áfram með kortið. Bæði eru með ferðatryggingar. Atlas er í vildarklúbbi Flugleiða, Einkaklúbbnum, World for 2 og þú getur fengið SMS til að vara þig við ef einhver pantar á kortið gegnum netið eða í síma og þegar þú...

Re: Meira um jafnrétti og bætta stöðu kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Höfðu karlmenn áhuga á kennarastörfum? Ég er bara ekki svo viss um að fólk þarna í gamla daga hafi haft mjög mikið val. Það bara gerði það sem það gat til að fá pening. Nú er ég ekki það gamall að ég hreinlega viti það en ég held að kennarastarfið hafi verið virtara hér áður fyrr og kannski það að kom í ljós að konur gætu unnið það hafi slegið á virðingu þess ;) Ég held líka að það hafi verið betur borgað en ég hef það frá karlmönnum sem vinna við þetta að það gangi mjög illa að fá...

Re: Meira um jafnrétti og bætta stöðu kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ef litli frændi minn hefði áhuga á tölvum, þá myndi ég segja honum að taka tölvubraut IR, klára svo stúdentinn í MH og taka alla auka stærðfræðiáfangana þar og fara svo í tölvunarfræði í HÍ :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok