Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: bwaha!

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jú, það var litli naggurinn sem átti að hafa skotið Kennedy. Af hverju hefði annars átt að náða Jack Ruby? Er það ekki jafn mikill glæpur að skjóta glæpamann? Tala nú ekki um grunaðan mann sem er ekki einu sinni búið að dæma sekan. Ef við ætluðum að leyfa öllum sem telja brotið á rétti sínum að skjóta þann sem þeir telja hafa brotið á sér þá þyrftum við ekkert réttarkerfi, bara fleiri kirkjugarða :)

Re: Að lifa á Íslandi

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég fattaði alveg hvað þú varst að meina. Mér finnst það líka eðlilegt. Við erum líklega bara bæði illa innrætt eða eitthvað :)

Re: Að lifa á Íslandi

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Og fá þau ekki húsaleigubætur? Og hvað er hann að gera með að nota strætó ef hann er ekki að vinna? Af hverju er hann ekki heima að baka brauð og eitthvað til að spara pening? Og hvar er hún að vinna með 70 þús eftir skatta? Ég hélt að það væri ekki hægt. Nú er 70 þús bara rétt yfir skattleysismörkum sem þýðir að launin hennar fyrir skatta myndu vera um 76 þús. Nú er allægsti byrjunartaxtinn hjá Eflingu 81 þús. Grunnlaun í Bónus eru 100 þús. kall. Hún hlýtur að geta gert betur en þetta. Og...

Re: bwaha!

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jack Ruby hver?

Re: einn sem er ósámmála

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
En hvað veistu mörg dæmi þess þar sem fólki sem er strítt út af klæðnaði hefði hvort sem er bara verið strítt út af einhverju öðru ef það mætti í dýrustu og flottustu tískufötum? Ég held að fötin séu bara afsökun. Ef það væri ekkert að fötunum, þá væri bara sagt að þú værir heimskur eða með stór eyru eða uppbrett nef eða bara ljótur eða fýla af þér eða endalaust það sem krökkunum dettur í hug. Ég held hins vegar að skólabúningar séu góð hugmynd og tekur aðeins þrýstinginn af foreldrum að...

Re: Svefntími ungra barna ?

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég segi nú bara leyfðu krakkagreyinu að sofa ef hann er þreyttur. Börn þurfa misjafnlega mikinn svefn og það sem stendur í einhverri bók eða einhver læknir segir passar ekkert endilega fyrir þitt barn. Kannski á hann eftir að verða algjört partýdýr sem fer aldrei á fætur fyrir hádegi ;)

Re: skólabyrjun(FÁ)

í Skóli fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þegar ég var í IR, þá man ég bara ekki eftir því að manni væri eitthvað boðið að breyta nema maður gat náttúrulega hætt í áföngum og svoleiðis. Ég var oft með árekstra og eitt árið var ég með þrefaldan árekstur á einum tíma. Einu sinni lenti ég líka í 3 prófum á sama tíma en leysti það með því að taka 2 hvert eftir annað og eitt sjúkrapróf. Þetta reddaðist jú allt einhvern veginn og maður lifði þetta allt af. Samt leiðinlegt að hafa mikið af eyðum.

Re: Vangaveltur

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef hundur biti mig og ég ætti það skilið, þ.e. ég hefði verið að atast í ókunnugum hundi, labbað upp að hundi sem væri bundinn inni í garði o.s.frv. þá myndi ég ekki vilja láta lóga honum. Ef ég hefði hins vegar ekki átt það skilið, ég er á almennu svæði og hundurinn kemur askvaðandi og bítur mig án þess að ég sé neitt að skipta mér af honum, þá myndi ég kæra. Ef ég ætti börn þá myndi ég kenna þeim það sem mamma kenndi mér, þ.e. láta ókunnuga hunda vera. Ef þau virða það ekki og eru bitin...

Re: Veggjakrot

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það hefur alla vega eitthvað misfarist í íslensku þjóðarsálinni vegna þess að ég hef mikið verið erlendis og bara varla séð svona í neinum mæli alla vega. Einu sinni var ég í Svíþjóð og sá hvar einhver ástfanginn unglingur hafði sett nafnið sitt og kærustunnar á strætóskýli.. með svörtu límbandi. Ég fór bara að hlæja. Íslenskur unglingur hefði sett það með spreybrúsa yfir heilan vegg alla vega. Ég held bara að krakkar geri sér ekki grein fyrir hvað þessi fíflaskapur kostar eða þá að þeim er...

Re: Samtök skattgreiðenda, gegn skattsvikum.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ertu ekki að rugla saman ævintýrum? Nottingham fógeti er í Hróa Hetti en Skytturnar 3 eru hinu megin við hafið í Frakklandi og berjast fyrir kónginn á móti mönnum kardínálans.

Re: net cafe

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Bara á hlýrabol? Vá, ég vona alla vega að hann sé síður svo þú verðir ekki handtekinn fyrir stripp :)

Re: Notaður??

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hundurinn þinn týndist þannig að það er engin leið fyrir þig að vita hvort þetta fólk hafi notað hann eða hvort hann hefur verið búinn að komast upp á einhverja tík áður en þau fundu hann.

Re: Vangaveltur

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef þú kvartar eða kærir, þá er hundinum líklega lógað. Ég man samt eftir dæmi fyrir norðan fyrir nokkuð mörgum árum þar sem hundur beit 7 ára gamalt barn sem hreinlega óð inn í garðinn þar sem hundurinn var bundinn og ætlaði að klappa honum. Það var kært, enda barnið bitið illa en hundurinn vann málið. Dómurinn áleit að hundurinn væri í rétti þar sem hann var bundinn inni í eigin garði og barnið kom óboðið þangað inn. Þetta var reyndar enginn venjulegur hundur heldur hreinræktaður séffer og...

Re: Barna níðingar (í Bretlandi)

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef þeir eru snargeðveikir, þá vita þeir ekki hvað þeir eru að gera. Óvita börn vita heldur ekki hvað þau eru að gera. Ef óvita barn kemst í byssu og drepur einhvern, á þá að taka það af lífi? Mér finnst fólk horfa allt of mikið á glæpinn frekar en þann sem er sakaður um að hafa framið glæpinn. Ljótur glæpur = vondur maður? Hvað ef maðurinn sem er sakaður um glæpinn framdi hann ekki? Og þar að auki er það sannað mál að fallegt fólk fær vægari dóma í réttarkerfinu. Auk þess hefur það komið...

Re: Matur, fljótlegur, hollur og ódýr

í Heilsa fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Fátækt námsfólk o.s.frv. ætti bara að smyrja nesti heima. Þú getur búið til þínar eigin samlokur og kannski tekið með ávexti líka. Ef þig langar í skyr og það fylgir ekki skeið, þá er ekkert mál að ganga um með teskeið í vasanum. Þegar ég var í Iðnskólanum þá var náungi þar sem gekk um með kaffibolla í vasanum til að geta alltaf fengið fría ábót ;)

Re: Gerðu það sjálfur ?

í Heimilið fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Pabbi er smiður þannig að ég ólst upp við að það væri aldrei keyptur fagmaður inn á heimilið og maður lærði alveg helling á að fylgjast með. Svo þegar maður fór að gera eitthvað sjálfur, þá var náttúrulega ekkert mál að fá ráð hjá pabba og verkfæri lánuð en það eru kannski helst verkfæri sem standa svona venjulegu fólki fyrir þrifum. Það er ekki hægt að búast við að fólk kaupi eitthvað dæmi sem á að nota eina helgi en það má náttúrulega fara í BYKO og leigja.

Re: Nágrannar

í Heimilið fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þetta er greinilega svona fólk sem félagsbústaðir ættu frekar að koma fyrir í einu af þessum húsum sem þeir eiga fyrir utan borgina þar sem þau geta haft sitt dópistabæli í friði og ónáða engan. Það er einhver leið til að losna við þetta fólk. Gakktu í húseigandafélagið og leitaðu ráða þar (eða lestu þér til í lögum). Það þarf eitthvað ákveðið margar viðvaranir um hávaða frá húsfélagi og svo er hægt að neyða þau til að fara. Ef ekki, þá er hægt að neyða félagsbústaði til að selja íbúðina....

Re: Gardínur

í Heimilið fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þú getur labbað milli gardínuverslana og fengið flott efni og síðan látið sauma þar fyrir þig en það er líklega dýrt.

Re: Pæling um bekkjarskiptingar

í Skóli fyrir 23 árum, 9 mánuðum
George Bush er reyndar ekki gott dæmi þar sem hann kemur af ríkri fjölskyldu þannig að það hefði verið alveg sama þó hann hefði verið vangefinn (sem hann víst er) ;) Hins vegar er það alveg satt að þeir sem eru duglegir í skóla eru líklegri til að fara í langskólanám og einhvern veginn drepur það niður frumkvæði hjá fólki. Kannski vegna þess að það er búið að mata fólk of lengi eða kannski vegna þess að það vill ekki taka áhættu með stórar námslánaskuldir á bakinu. Á meðan eru tossarnir...

Re: Of snemma

í Skóli fyrir 23 árum, 9 mánuðum
*grát*grát* Ég vona að það komi aldrei fyrir þig að þú þurfir að vinna 8 tíma á dag og fá ekki nema 5 vikur í sumarfrí :)

Re: Áhugamál Aldurstakmarkað er lélegt

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þau geta reyndar gert það með hverju öðru ef þau eru undir 15 vegna þess að undir 15 eru ekki sakhæf :)

Re: Börn og keppnisíþróttir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er nú alveg sama hvort það er verið í keppnisíþróttum eða ekki. Krakkar eru alltaf að keppa samt. Það er valið í lið og það vita allir hver er góður og hver er lélegur og hver er alltaf valinn síðast. Það gerir þeim engan greiða sem eru lélegir að velja þá í lið jafnt og hina, þeir fá þá bara að heyra það frá félögunum að þeir hafi klúðrað.

Re: Fín grein.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég hef aldrei tekið neina ákvörðun í þessum efnum. Ég sef bara hjá þeim sem mig langar til og mér finnst endilega að allir aðrir ættu að gera það sama. Ef þetta hefur verið ákvörðun hjá þér, þá hefur þig langað til að sofa hjá öðrum karlmönnum og ef þig langar til þess, þá af hverju ekki að gera það?

Re: Samtök skattgreiðenda, gegn skattsvikum.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Mér finnst að barnabætur eigi að vera til að hjálpa þeim sem eru blankir. Gallinn við barnaskattkort er að þau hjálpa bara þeim sem eru að borga fullan skatt fyrir. T.d. fengi námsmaður sem er skattlaus vegna þess að hann vinnur jú bara 3 mánuði á ári ekki neitt út úr því kerfi og öryrki sem er hvort sem er skattlaus af því hann fær svo litlar bætur fengi heldur ekki neitt. Hins vegar myndu þeir sem eru með milljón á mánuði njóta þessa til fulls. Og þá langar mig að spyrja.. er ástæða fyrir...

Re: Samtök skattgreiðenda, gegn skattsvikum.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þetta er ekki rétt hjá þér. 14 ára börn eru nógu gömul til að stunda kynlíf. Þetta kemur fram í hegningarlögum. Hins vegar er bannað að tæla þau til kynlífs með gjöfum en ef þau eru viljug, þá er það ekki refsivert.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok