Ofurskvísan Angelina Jolie hefur nú sótt um skilnað við þverhausinn og furðufuglinn Billy Bob Thornton. Ástæðan segir hún óleysanlegan ágreining se parið er að glíma við.

Jolie skilaði inn skilnaðarpappírum í gær og krafðist hún þess að fá forræði yfir syni þeirra sem þau ættleiddu nýverið, og Jolie sér ekki sólina fyrir litla krílinu.

Angelina og Billy Bob hafa verið gift í tvö ár en hafa nú verið skilin að borði og sæng í um 4 mánuði. Ekki héldu nú margir að þetta samband mundi slitna í bráð vegna þess að ást þeirra hefur verið mikið í slúðurpressunni allt frá því að þau byrjuðu að vera saman og meðal annars geymdu þau blóðdropa af hvort öðru í flösku sem þau geymdu á hálsinum á sér. En nú halda margir að sambandið hafi slitnað vegna litla krílisins sem þau ættleiddu.
HELLO!