Jason Priestley í lífshættulegu slysi Leikarinn Jason Priestley Slasaðist alverlega um helgina þegar hann var að keppa á kappakstursbíl sínum og keyrði á vegg á um 180 Kmh. Jason sem var að keppa í Indy keppninni hefur oft tekið þátt í svona keppnum áður, hefur hann verið að keppa frá árinu 1998.

Að sögn lækna er hann að komast til meðvitundar aftur en í slysinu fékk hann heilahristing, hryggbrot, ásamt því að nefbrotna og önnur smávægileg meiðsli.

Læknar Jason´s telja að hann muni ná sér að fullu, hann var fluttur á háskólasjúkrahúsið í Kentucky og gistir þar enn. Hann er ekki í öndunarvél og kemur svona stundum til meðvitundar en aðeins í smá tíma.

Priestly er þekktastur fyrir leik sinn í vinsælu sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210, Þar lék hann persónu að nafni Brandon Walsh.