Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Regludýrkun vélritunarkennara

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég þekki menn sem eru þó nokkuð fljótir með 2-3 puttum þannig að mér finnst að hver ætti bara að nota það kerfi sem hentar þeim. Sjálfur nota ég nokkurn veginn rétta fingrasetningu og næ kannski svona 60-70 orðum á mínútu á góðum degi sem er alveg nóg fyrir mig. Ég vinn ekki við vélritun þannig að almennt er hausinn seinni að finna út hvað ég ætla að skrifa heldur en puttarnir að koma því á skjáinn.

Re: hart á tekið

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Manndráp af gáleysi er væntanlega skrefi frá því að vera slys og skoðast sem slíkt. Árni stal ekki 6 milljónum af gáleysi eða fyrir slysni þó það hafi kannski verið gáleysi sem olli því að hann náðist. Þar endar sú samlíking. Morðingjar sem drepa einhvern planað fara yfirleitt í steininn í 16 ár.

Re:

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég held ég myndi alla vega ekki vilja að barnið mitt svæfi heima hjá 45 ára gömlum manni sem vill hafa það í rúminu sínu, jafnvel þó hann segist sjálfur sofa á dýnu á gólfinu. Jafnvel þó hann haldi að hann sé 12 ára þá er hann fullorðinn maður með kynhvöt og þó það geti vel verið að hann hafi aldrei misnotað eitt einasta barn þá eru barnaníðingar innréttaðir á sama hátt, að þeir líta á sjálfa sig sem börn og álíta að þeir séu ekki að misnota heldur að fikta með jafningjum. Þó hann væri góður...

Re: hart á tekið

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þetta er nú enginn morðingjadómur. Þeir fá margfalt lengri dóma en 2 ár.

Re: hart á tekið

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Dómurinn var hertur að einhverju leyti vegna þess að hann var fundinn sekur um fleiri ákæruliði en í héraðsdómi.

Re: Árni Johnsen í jeilið!!!!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég man eftir þessu máli og tók mig smá tíma að finna dóminn þó ég myndi alla vega fornöfnin á báðum. Einar hét sá sem var drepinn, Atli var hinn. Alla vega var hann dæmdur í 16 ára fangelsi í héraðsdómi og hefur líklega ekki áfrýjað því ég fann ekkert um þetta mál á vef hæstaréttar. Þú getur séð fréttina og dóm héraðsdóms á <a href="http://www.mbl.is/mm/frettir/annall/frett.html?yr=2001&mon=5&nid=713985">http://www.mbl.is/mm/frettir/annall/frett.html?yr=2001&mon=5&nid=713985</a

Re: Að vera Íslendingur

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Íslendingar eru upp til hópa eyðsluseggir sem kaupa hvað sem þá langar í þá stundina og ef þeir eiga ekki fyrir því, þá á lánum. Sparnaður er ekki til í orðabók hins dæmigerða Íslendings né heldur inná bankabók hans ;) Ég hef búið í Bandaríkjunum og þremur norðurlandanna, smá tíma hverju og bý núna í Kanada. Ég man ekki til þess að ég hafi lent í neinu rosa menningarsjokki enda er mér nokkuð sama hvað aðrir í landinu gera. Hins vegar aðlagast ég háttum þeirra smám saman. T.d. kom það uppá...

Re: Skólabúningar?

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þetta hefur nú verið rætt nokkrum sinnum á hinum ýmsu áhugamálum hér á Huga. Alla vega er mín skoðun að skólabúningar gætu minnkað kostnað foreldra við fatakaup þar sem skólarnir myndu semja um mikið magn og þessi föt yrðu mjög ódýr og þetta myndi koma í veg fyrir streð við krakkana á morgnana í hvað þau eiga að fara. Hugsanlega myndu þeir að einhverju leyti auka samkennd hópsins og minnka einelti en ég held ekki að það yrði alveg komið í veg fyrir einelti. Ef það er ekki hægt að stríða...

Re: Árni Johnsen í jeilið!!!!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mér finnst hann samt verri vegna þess að hann þóttist vera góður en er svo bara vondur. Flestir aðrir glæpamenn eru ekkert að fela það þvílíkt hyski þeir eru. Það er heldur ekki rétt að það sé bara 2 ára dómur fyrir morð. Kannski fyrir nauðgun en fyrir morð er yfirleitt 16 ár nema það hafi verið framið í einhverju slagsmálarugli, þá er það stundum 10-12. Annars finnst mér alveg rétt að þeir sem stela pening fari í steininn, tala nú ekki um þegar þeir stela svona miklu.

Re: Heimsku bandaríkjamenn,ísraelar og bretar!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég sá “Bowling for Columbine” fyrir stuttu og fannst hún meiriháttar. Ég þekki hins vegar ameríska stelpu sem var svo móðguð á myndinni að hún labbaði út. Mér fannst South Park teiknimyndin langbest. Alla vega komust þeir að þeirri niðurstöðu að Bandaríkjamenn séu hreinlega hræddir við hvern annan. Þess vegna er náð í byssuna um leið og eitthvað kemur uppá. Kanadamenn eru hins vegar miklu rólegri í tíðinni.

Re: H2O!

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Samt er sorginni ekki útdeilt jafnt. T.d. er í Reykjavík 81 cm úrkoma yfir árið en á Akureyri bara 47. Á Miami í Florida eru hins vegar 148 þannig að ekki græðir maður á því. Medina í Saudi Arabíu aðeins 5 cm, greinilega langbest, kannski fullheitt samt. Annars hægt að sjá þetta allt á <a href="http://www.weatherbase.com/">http://www.weatherbase.com/</a

Re: DC / Stef og Tónlistardiskar.

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þeir gætu gert tékk af og til þó ég sjái það seint fara að gerast, löggan mæta heim til þín og skoða tölvuna þína :) Líka ef þú ferð með tölvuna þína í viðgerð, þá gætu þeir skyldað verkstæðið til að tékka hvort þú ert með tónlist á henni og sanna að hún sé keypt. Hvernig ná þeir t.d. þeim sem eru að downloada barnaklámi? Veit það einhver?

Re: Barnsmæður og feður!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég skil ekki menn sem láta sambýliskonu sína ráða því að þeir hafi ekki samskipti við barn sitt af fyrra sambandi. Fólk tekur ákveðna ábyrgð á sig með því að stunda kynlíf. Ef það verður barn úr, þó það hafi ekki verið planað, þá bera foreldrarnir ábyrgð á því og barnið á alltaf að koma fyrst.

Re: Lausir hundar

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég vil nú endilega benda á það að það er líka á ábyrgð eigenda að hundurinn sé tryggilega bundinn ef hann er úti í garði. Ef hann getur slitið sig lausan, þá er ekki nógu vel frá gengið. Auk þess er það enn mikilvægara að þetta sé í lagi ef um er að ræða grimma hunda eins og þessi virðist hafa verið.

Re: Litlum hvolpi hent út á guð og gaddinn.

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Reykjavíkurborg var kærð fyrir hundaskattinn einhvern tímann og það var dæmt að þeir mættu ekki græða á honum. Þeir mega bara rukka fyrir kostnaði. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar má sjá frumvarp að fjárhagsáætlun 2003 og þar er gert ráð fyrir því að tekjur vegna hundaleyfisgjalda verði 18.750.000 en kostnaðurinn verði 18.777.000. Árið 2001 voru um 1300 hundar á skrá í borginni, handsamaðir hundar um 160 og fjöldi kvartana vegna hundahalds voru um 1200. Það eru 2 hundaeftirlitsmenn en 3...

Re: Hugsa um að hætta

í Hestar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Af hverju fær bróðir þinn 3 pláss í þínu eigin húsi en þú bara eitt? Ef þetta er hús foreldra þinna þá er þetta samt óréttlæti. Hann ætti að fá að hafa 2 og þú 2. Ef þetta er þitt hús en ekki foreldra þinna, þá áttu ekki að láta bróður þinn ganga fyrir.

Re: Aldursmunurinn er alltof mikill :(

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvernig veistu að myass hafi meiri tíma til að skemmta sér heldur en foreldrarnir? Kannski eru þau einmitt alltaf úti að skemmta sér og hún alltaf að passa.

Re: 4 hundar gefins!!!

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég hef einmitt heyrt að það sé betra að þeir séu sem lengst og 12 vikna sé betra en 8 en 8 sé í lagi. Minn var ekki nema 4 vikna þegar ég fékk hann. Ég var bara krakki og vissi ekki annað en að það væri í lagi, foreldrar mínir vissu ekki annað og ekki heldur fólkið sem átti tíkina. Þau voru þá þegar búin að gefa einn hvolp og auglýsa hina.

Re: Um flóttamannamynd...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Eg afsaka skort minn a islenskum stofum thessa stundina en eg er i skolanum og get ekki breytt stafasettinu thar :( Thad ad fa buseturett strax vid komu er leid sem stendur einungis theim til boda sem hafa goda menntun, stunda starfsgrein sem vantar folk i, eiga pening til ad framfleyta ser i alla vega halft ar medan their leita ad vinnu, hafa hreina sakaskra og ymislegt fleira. Ef thetta er ekki fyrir hendi byst eg vid ad thad se svipad og a Islandi ad vidkomandi verdur ad fa vinnu adur en...

Re: Hvað kostar etta allt saman???

í Heimilið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
1. Rafmagnið og hitinn hjá mér var ca. 1100-1200 kall hvort um sig á mánuði en ég var reyndar bara í 40 fm íbúð þannig að þú getur líklega tvöfaldað það. Chloe er búin að svara restinni nema fasteignagjöldin eru hlutfall af verði íbúðarinnar. Þú getur séð hvernig það er reiknað fyrir Reykjavík á <a href="http://www.rvk.is/default.asp?cat_id=54">http://www.rvk.is/default.asp?cat_id=54</a> og þau voru mjög lág hjá mér vegna þess að íbúðin mín var metin mjög lágt í fasteignamati þó...

Re: Sterar-Fita

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ekki að ég viti neitt allt of mikið um þetta en ef þú tekur of mikið testosterone, þá breytir líkaminn því sem er auka í estrógen og þá færðu fallegar túttur, þ.e.a.s. ef þú værir stelpa ;) Þú þarft að taka eitthvað annað með testosterone til að þetta gerist ekki. Annars skaltu bara sleppa þessum sterum. Er ekki miklu skemmtilegra að geta sagt að þú hafir náð árangri alveg sjálfur?

Re: Andrés Önd

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég á einhvers staðar fyrsta blaðið sem kom út á íslensku í mjög góðu ástandi. Spurning hvort það verður eitthvað verðmætt eftir 70 ár. Bara verst að ég er ekki alveg viss hvar það er :)

Re: Kropp Kropp

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég er svona líka auk þess að naga, bíta og sjúga blóðið og auk þess að sleppa plástrinum því maður getur ekkert kroppað ef það er plástur.

Re: 4 hundar gefins!!!

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mig vantar reyndar ekki hund en vildi bara minna á að þeir eiga að fá að vera hjá mömmunni alla vega þar til þeir eru 8 vikna. Ég fékk minn hund allt of snemma og hann var alltaf voðalega lítill í sér greyið.

Re: Í hvaða skóla ætlar þú?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er ekki háskólanámið sem er brenglað. Það er hlutverk framhaldsskólanna að undirbúa sína nemendur undir háskólanám og ef sumir þeirra standa sig illa í því, þá getur háskólinn ekkert gert.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok