Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Hjálp...

í Heimilið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Fer eftir því hvort þetta er máluð hurð og hvort það er innan eða utan á. Ef þetta er að innan geturðu notað venjulegt sparsl, að utan myndir þú þurfa eitthvað vatnshelt dæmi. Svo bara pússa og mála yfir. Ef þetta er viðarhurð með lakki þannig að það sést, þá geturðu búið til tappa úr svipuðum viði og sett í götin.

Re: Reglur á mínu heimili!

í Heimilið fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já, þetta er smá vandamál með 3 og 4 miðað við 1 og 2. T.d. á mamma að hlýða pabba (sjá 3 og 4) jafnvel þó hún hafi rétt fyrir sér (sjá 1 og 2)? Mér finnst líka nokkuð mikið drukkið á þessu heimili ef það er bara drukkið áfengi með öllum mat (sjá 5 til 8) :)

Re: eiga kettir og ljón eitthvað sameiginlegt?

í Kettir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Kettir slefa líka :P Kötturinn minn nuddar líka skítugu sokkunum mínum við andlitið á sér. Finnst þér það mjög gáfulegt?

Re: Hrói loksins geldur

í Kettir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hann þarf líklega bara að jafna sig eftir aðgerðina :)

Re: Litlum hvolpi hent út á guð og gaddinn.

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er alla vega ókeypis að auglýsa gefins í DV og á kassi.is þannig að þetta fólk hefur enga afsökun.

Re: Í hvaða skóla ætlar þú?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þó svo foreldrarnir eigi tvo bíla, þá hljóta þau að eiga tvo af því þau þurfa tvo. Kannski að það gerist annars lagið að einn bíllinn er ekki í notkun en ekki nógu oft til að krakkinn geti farið á honum í skólann daglega. Ég veit líka um slatta af fólki sem eiga 3-4 bíla svo krakkarnir geti alltaf verið á bíl. Það er snobb.

Re: Litlum hvolpi hent út á guð og gaddinn.

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég bara minnist þess að það var slegið upp í DV rosa frétt fyrir nokkrum árum, þvílíkt grimmdarverk, hellt olíumálningu yfir hund. Svo kom leiðrétting daginn eftir, kom í ljós að hundurinn var laus að flækjast, fór að leika við vinnuskólakrakka sem voru að mála leiktæki á róluvelli og endaði með að stökkva á eina stelpuna sem hélt á málningardollu sem helltist yfir hann. Svo hljóp hann í burtu þannig að krakkarnir gátu ekki náð honum. Alla vega, þó eigendur hafi kannski verið að leita að...

Re: Í hvaða skóla ætlar þú?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mér finnst það snobb ef foreldrar eiga svo marga bíla að krakkarnir þeirra geta mætt á einum í skólann.

Re: Litlum hvolpi hent út á guð og gaddinn.

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvernig er vitað að þessari 10 mánaða tík hafi verið hent út? Gæti hún ekki bara hafa sloppið út og týnst og ekki ratað heim?

Re: Ólögmæt uppsögn

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hann má segja upp hverjum sem hann vill, hvenær sem hann vill nema ef það er ólétt kona eða kona/maður í fæðingarorlofi, þá verður hann að hafa góða ástæðu. Hins vegar verður hann samt að virða uppsagnarfrest.

Re: Könnunin

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er miklu auðveldara fyrir stráka að segja að þeir séu hlynntir fóstureyðingum vegna þess að það er ekki okkar líkami sem verður fyrir neinu raski. Annars í sambandi við þessa könnun, þá var ég að horfa á mynd um daginn um foreldra sem þurftu að taka þessa ákvörðun. Þeim var sagt að barnið þeirra yrði mongólíti og þau ákváðu að eyða því ekki. Hins vegar meðan þau voru að taka þessa ákvörðun spurðu þau lækninn hversu mörg hjón sem standa frammi fyrir þessu ákveða að láta eyða og hann vildi...

Re: Kostir og einfaldleiki neyslubókhalds

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég set mitt upp í Excel. Ég er með dálk fyrir hvern mánuð og línur fyrir alla útgjaldahópa, t.d. matur, húsaleiga, sími, rafmagn, sjónvarp, afborganir, samgöngur o.s.frv. og svo línur fyrir tekjur, afgang síðasta mánaðar o.s.frv. Afgangurinn af mánuðinum færist svo undir tekjur næsta mánaðar á eftir. Það eru líka til svona bókhaldsforrit en ég veit ekki hvort þau eru neitt betri. Kannski helst að maður þarf að setja þetta upp sjálfur meira ef maður notar Excel. Ég er búinn að gera þetta alla...

Re: Hanndklæði

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Já, þeir ættu að prenta hann á mýkri pappír :)

Re: eiga kettir og ljón eitthvað sameiginlegt?

í Kettir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hundar eru bara meiri tilfinningaverur :)

Re: MIG LANGAR Í SÍMAAAAAAAAAAA!!!!!

í Farsímar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ekkert SMS? Hverslags sími var þetta eiginlega? :) Þegar við tókum okkur saman heima og gáfum pabba síma, þá keyptum við ódýrasta síma sem við fundum, Bosch skær-appelsínugulan á Talfrelsistilboði og hann gat sent SMS. Ekki að pabbi hafi samt kunnað að nota það :)

Re: Um flóttamannamynd...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Nákvæmlega hvaða forgangs njóta flóttamenn í heilbrigðis- og menntakerfinu? Í sambandi við skattgreiðslur, þá sé ég ekki af hverju það ætti að skipta máli hvort fólk er búið að greiða skatta eða á það eftir. Ef þetta fólk hefur fasta búsetu á Íslandi, þá hlýtur það að hafa sama rétt og aðrir án tillits til hversu mikla skatta það hefur greitt. Venjulegur íslenskur háskólanemi er t.d. ekki búinn að borga mikla skatta þar sem þeir hafa yfirleitt bara unnið á sumrin og þá verið með...

Re: Stanslaust gelt

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er langbest að tala við hundaþjálfara og fá faglegar ráðleggingar.

Re: Siberian Husky ?

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Grænlandshundurinn er á http://www.dogbreedinfo.com/greenlanddog.htm og þeir eru greinilega ekki beint fjölskylduhundar þó þeir eigi að vera vinalegir. Hins vegar eru Grænlendingar almennt frekar harðir við sleðahundana sína. Þetta eru hundar sem eru tjóðraðir bak við hús og getur hreinlega verið hættulegt að koma nálægt fyrir ókunnuga þar sem þeir t.d. eiga það til að borða fólk ef þeir eru svangir. Hins vegar efast ég ekki um að það er hægt að ala þá öðruvísi upp eins og þessir hundar hjá...

Re: eiga kettir og ljón eitthvað sameiginlegt?

í Kettir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Kötturinn minn kemur nú og fagnar mér þegar ég kem heim :D

Re: Kárahnjúkar og allt það...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það hefur hingað til ekki verið láglaunastarf að vinna í álverum og ef það eru einhverjir nýbúar sem vinna í hinum álverunum, þá eru það mjög fáir. Hins vegar skapar þetta væntanlega atvinnu fyrir einhverja af þeim ca. 6 þús. manns sem eru atvinnulausir á Íslandi þessa dagana.

Re: Sökkvum kárahnúkum ---- NEI!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
“Langar að bæta hérna einu við sem að mér finnst helvíti gott og einn hérna sagði á Huga: ,,Við viljum ekki láta rífa pýramídana bara vegna þess að við erum ekki búin að sjá þá!?” Það sama gildir um Kárahnjúka!!" Humm, skemmdu ekki Egyptar eyðimörkina og fallegt útsýni yfir sandöldurnar þegar þeir reistu þessa blessaða pýramída? :) Við verðum nú að búa í þessu landi og til þess að geta það, þá getum við ekki látið allt ósnert.

Re: Í hvaða HELV*** skóla get ég farið?!?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvað, verður þú rekinn heim ef þú stendur þig ekki vel í skólanum? :) Þeir sem ég þekki sem hafa farið sem skiptinemar hafa sagt að það sé mjög misjafnt hvað þeir fá metið þegar þeir koma heim þannig að það er það sem ég held að fólk sé að meina þegar það talar um árs frí frá skóla.

Re: Bubbi og Ómar

í Box fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það sem mér finnst pirrandi við Bubba er að hann getur verið svo hlutdrægur. Það er stundum eins og hann sé að lýsa einhverjum allt öðrum bardaga en er í gangi. Svo heyrir maður erlendu þulina tala og þá eru þeir með sama skilning á bardaganum og maður sjálfur en Bubbi bara einhvers staðar útí fjósi.

Re: Tungumál

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Ég vissi ekki að japanska væri lík ensku. Ættu þá ekki japanirnir að vera betri í henni? :) Annars finnst mér að það mætti vera val milli dönsku, norsku og sænsku. Eins og er núna mega bara þeir velja norsku og sænsku sem hafa búið þar eða hafa önnur tengsl við þessi lönd. Ég hef verið smá í öllum þessum löndum og danskan er erfiðust fyrir okkur vegna framburðarins. Mér fannst sænskan auðveldust að skilja en það var auðveldast að tala við norðmenn vegna þess...

Re: Í hvaða skóla ætlar þú?

í Skóli fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þegar ég var í IR þá fannst mér félagslífið þar ekkert sérstakt. Það voru margir nemendur þarna þegar ég var, held hátt í 2000 stykki, en vegna þess að það er iðnskóli, þá er mikið af eldra fólki og fjölskyldufólki sem hefur unnið í iðninni í nokkur ár áður en það hefur ákveðið að læra hana þannig að það er miklu breiðari aldurshópur þarna en í flestum öðrum framhaldsskólum. T.d. var slatti af fólki sem hafði engan áhuga á að mæta á jólaball nemenda en vildi frekar fá jólatrésball fyrir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok