Ó jú, skólinn hefur heilmikið að segja um það hversu vel nemandi er undirbúinn fyrir háskólanám. Ef standardinn hjá framhaldsskólanum þínum er lélegur, þá gætirðu fengið 10 á öllum prófum þar en komist svo að því þegar þú kemur í HÍ að þér var alls ekki kennt allt sem þú þurftir að kunna. Ég fór í IR og þegar ég kom í HÍ, þá bara sat ég og gapti yfir hlutum sem ég hafði aldrei séð áður en krakkar úr betri skólum höfðu verið að kíkja á síðasta árið sitt og krakkar úr MR voru búnir að læra nokkuð vel.