Þó þetta sé frjálst land, þá þýðir það ekki að þú getir bara hagað þér eins og þú vilt eða klætt þig eins og þú vilt hvar sem þér sýnist. Prufaðu að mæta á veitingahús á sundskýlu og athuga hvort þér verði hleypt inn. Það eru reglur um hegðun í skólanum og þannig séð væri ekkert að því að setja reglur um klæðaburð líka. Þeir mættu það alveg ef þeir vildu. Og spáðu, þegar þú ferð að vinna, svo framarlega að þú ætlir ekki að gerast öskukall, þá eru víðast hvar einhverjar reglur um klæðaburð....