Kæru hugarar

Ég var að pæla í einni umfjöllun sem ég hef verið að lesa um í mörgum blöðum og hér á huga en ég fór aðeins að hugsa um þetta og vildi ég deila þessum pælingum með ykkur.

Það er oft verið að tala um hvað Hollywoodstjörnunar séu grannar og alveg næstum að detta í sundur og að fólk taki sér þær til fyrirmyndar og byrji að grenna sig og allt til að líkjast þeim. Mér finnst bara tóm vitleysa að sætta sig bara ekki við hvernig maður er þótt það sé nú í lagi að grenna sig aðeins en það fer nú út í öfgar ef einhver ætlar að verða eins og sumar Hollywood stjörnur eru sem eru kannski með anoreksiu(hvernig sem það er skrifað!)og borða aldrei neitt.

En það er ekki það sem ég ætla að fjalla um í þessari grein það er nefnilega eitt sem mér finnst hræðilega asnalegt.
Í mörgum greinum hér á huga segja strákar að þeir vilji hafa eitthvað til að klípa í hjá stelpum og vilji frekar þessar sem eru með eitthvað…guð þetta er fyrst og frest hrein móðgun fyrir þær grönnu :( Ég held að þetta sé ekki satt því ég talaði við einn strák fyrir stuttu og ég var að spurja hann hvort hann væri hrifin af einhverjum stelpum en í stað þess að segja kannski ,,æj hún er leiðinleg" eða eitthvað þannig að maður laðast ekki að fólki sagði hann bara hreint og beint að hin og þessi væri feit. Þarna kemur það kannski fyrir að stelpur vilji grenna sig til að ganga í augun á strákunum því þeir vilja augljóslega ekki þessar stelpur sem þeir segjast vilja í greinunum og strákar segja oft að stelpur séu vandlátar en hvað með stráka…

Endilega segið skoðanir ykkar ef þið fattið greinina :)

Kv. Hallat