Við tólf ára aldur er manneskja látin borga fullorðins fargjald í strætó en samt er fólk venjulega í okkar kristna samfélagi ekki tekið í fullorðinna manna tölu fyrr en um fermingu.

Við tólf ára aldur er manneskja látin borga fullorðinsfargjöld í flugvélar.

Við átján ára aldur verður manneskja sjálfráða!

Við átján ára aldur má manneskja ganga í hjónaband en má ekki kaupa hvítvín til að bjóða uppá í veislunni!

Við átján ára aldur má maður fara inná skemmtistað en má bara ekki fara á barinn.

Við 20 ára aldur má maður fara í ríkið, þegar maður er búinn að vera “sjálfráða” í 2 ár.

Hvað er málið með þetta?
“We are brothers from different mothers”