Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Geðbilun?

í Gæludýr fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það þarf einhver að tala við hann og segja við hann að þetta gangi ekki lengur. Jafnvel bjóða honum hjálp við að lóga þessum greyjum. Hann er ekkert að gera þeim greiða með því að láta þau lifa.

Re: Hvað er til ráða?

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ok, það var barnasálfræðingur í imbanum um daginn sem tók á svona erfiðum krökkum. Það voru hjón með 2 stráka. Alla vega, þeir áttu að vera inní stofu að leika sér og máttu ekki koma inní eldhús þar sem hann og foreldrarnir voru að tala saman. Strákurinn gat náttúrulega ekki hamið sig að koma hlaupandi inn og barnasálfræðingurinn tók í handlegginn á honum og leiddi hann uppí herbergi. Galdurinn er engar samræður, engir samningar, engar skammir, bara sagði við hann, þú veist af hverju ég er...

Re: Barnaefni í dag

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Stubbarnir eru framleiddir fyrir krakka sem eru yngri en svo að þeir hafi gaman af einhverju vitrænu efni.

Re: Börn og Gamaltfólk

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þó einn kall hafi verið að glápa á einhverja stelpu, þá þýðir það ekkert að allir gamlir kallar geri það. Gamalt fólk er ekkert allt eins frekar en t.d. allir 10 ára krakkar eru eins. Ég get líka sagt þér af hverju gamlir kallar hvíla sig við bakkana. Það er vegna þess að þeir eru þreyttir. Ástæðan að þeir bíða eftir að einhver komi og snúi við er að þegar 2 eru á sömu braut og gamli kallinn veit að hann syndir hægt, þá leyfir hann hinum að fara framúr við bakkann svo hann þurfi ekki að gera...

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hey, óþarfi að taka það út á mér þó þú getir ekki skrifað greinilega hvað þú ert að meina :P Annars finnst mér það ekki skipta máli. Sá sem hefur stolið úr búð einu sinni á það bara alveg skilið að starfsfólk í búðinni fylgist með honum svo lengi sem það man eftir honum.

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef þú hefðir séð það tvisvar í blaðinu á einum mánuði, þá held ég að það væri nú bara vissara að hafa gætur á þeim náunga því hann er greinilega illa þjófóttur. Hins vegar ef hann bætir ráð sitt og stelur engu í nokkra mánuði, myndir þú þá ennþá muna eftir honum frekar en öllum hinum myndunum sem væru búnar að koma í blaðinu síðan?

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég get ekki sagt að ég muni eftir andliti sem ég sá í blaðinu ásamt hóp af öðrum andlitum mánuði seinna. Þú hlýtur að hafa eitthvað ofurminni. En ok, hvað með að ramma inn innistæðulausar ávísanir? Sum fyrirtæki gera þetta og allir sem koma þangað geta séð nöfnin á þeim sem gúmmuðu. Finnst þér það líka of grimmileg refsing?

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það væri ekki eins og það væri fylgst með þeim allt lífið. Það myndi gleymast en krakkinn fengi að finna fyrir því í kannski viku eða mánuð eða eitthvað og myndi kannski hugsa sig tvisvar um áður en hann stelur aftur.

Re: Sandkassi!!

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Passaðu bara að fá kettlinginn ekki yngri en 8 vikna og spurðu fólkið hvort hann sé ekki örugglega kassavaninn. Annars sækja kettir í að grafa afurðir sínar og kassinn er yfirleitt hentugasti staðurinn þannig að þeim er oft eðlilegt að ramba á kassann. Passaðu bara að hafa kassann ekki of nálægt matnum hans og líka að halda kassanum hreinum.

Re: Páskasjónvarp..

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú ert 17 þangað til þú átt afmæli, þá ertu 18. Þú getur líka sagt að þú sért á 18. ári ef þú vilt virðast eldri. Eða reiknað út 17,9 eða eitthvað álíka en þá hljómar það eins og þú sért að telja dagana þar til þú átt afmæli sem virkar barnalegt.

Re: Páskasjónvarp..

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, ég bara veit ekki hvernig maður færi að ef það væri ekkert sjónvarp. Náttúrulega ekki eins og börn eigi neitt dót lengur í þessu nútímaþjóðfélagi ;)

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þannig að þú heldur að það hefði ekki virkað á þig eða hefðir þú bara vorkennt þér svo mikið ef þetta hefði verið gert við þig? Ég held að þetta hefði svínvirkað á mig og ég vorkenni ekki krökkum sem stela. Það þarf að kenna þeim að hætta því.

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, þetta er ekki stelsýki. Þetta er nytjastuldur. Fólk sem stelur hlutum sem það vantar bara til að spara sér smá pening er ekki með stelsýki. Það er bara samviskulaust. Sama dæmi þegar fólk skiptir um verðmiða á einhverju til að fá það ódýrara þó það sé orðið erfiðara núna á dögum strikamerkjanna. Stelsýki er hins vegar þegar fólk ræður ekki við sig og stelur fáránlegustu hlutum sem það hefur ekkert að gera við. Vinkona mömmu leigði út herbergi til stelpu sem var stelsjúk og þegar komst...

Re: Fegurðarsamleppnir í grunnskólum

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta busadæmi er gamalt frá því að þetta var ekki allt grunnskóli heldur barnaskóli og gagnfræðaskóli. Alltaf skipt eftir 7. bekk (sem hét þá 6.) þannig að elstu 3 árgangarnir voru í gaggó. Svo fóru sumir skólar að skipta eftir 6. bekk og sumir eru með alla bekkina í sama skólanum þannig að þetta eru bara leifar af því gamla.

Re: Dreamcatcher

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mér finnst að þú ættir að klára að lesa bókina ef þú ert ekki búinn að skemma það fyrir þér nú þegar með því að sjá myndina. Bókin hélt þessari spúkí spennu út í gegn meðan myndin fór fljótlega útí rugl. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þessa mynd. Sérstaklega endinn.

Re: Kvikmyndahús

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er rétt að það þarf að vera á hreinu hvort myndin komi til með að byrja á réttum tíma eða 20 mín. síðar og ekkert hringl með það. Annars bý ég í Kanada og það er aðeins önnur bíómenning hérna úti. Ég hef verið í bíói þar sem starfsmaður fór upp að tjaldi fyrir mynd og bað alla að slökkva á farsímunum. Auglýsingar eru ekki svo áberandi hérna en hins vegar eru trailerar. Ég fór t.d. á Dreamcatcher um daginn og hann var með heljarinnar löngum trailer fyrir Animatrix en það var viðvörun við...

Re: Vont fólk

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Konan lýsti alla vega eftir henni. Kannski hafði hún bara verið matarlaus í viku af því hún hafði farið út og rataði ekki heim á nýja staðinn. Annars fann ég einu sinni týnda kisu og fór með hana í Kattholt. Konan hélt yfir mér langa ræðu um hvað fólk væri vont að henda köttunum sínum út. Svo fóru þau að kíkja á köttinn og þá þekktu þau köttinn og eigandann. Ferlega fyndið. Kisan mín er líka svona endurunnin. Ég fann hana úti skinhoraða og ólétta en nú er hún orðin feit og pattaraleg.

Re: Smá hjálp!

í Heilsa fyrir 23 árum, 1 mánuði
Út að hlaupa.

Re: Eru íslenski tannlæknar óhæfir

í Heilsa fyrir 23 árum, 1 mánuði
Farðu með þetta í DV. Mér finnst þetta ekki sérlega sanngjarnt.

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þó krakkinn myndi ekki fara í skólann í einn eða tvo daga, þá er nokkuð víst að hann stelur ekki aftur. Finnst þér bara allt í lagi að krakkar séu að stela? Stundar þú það kannski? Ég var að vinna á elliheimili eitt sumar og þar var gömul kona sem stal öllu steini léttara. Það var ekki hægt að hafa ræstingargeymsluna opna, þá var hún búin að stinga sér þar inn og grípa sér pakka af klósetrúllum eða eitthvað og fela inni hjá sér. Öllu sem hún stal kom hún svo yfir til barnabarns síns sem kom...

Re: Símkortin!

í Farsímar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Og hvað græða þeir á að vera að halda opnum númerum sem fólk notar ekki? Ekkert. Miklu hagstæðara fyrir þá að láta þig þurfa að kaupa eitthvað. Svo ert þú kannski líka með eitthvað rosa gott númer sem einhver annar vill fá en það liggur kannski bara ónotað árum saman vegna þess að þú ert bara með símann inní skáp. Annars held ég að þú ættir að kvarta aðeins minna. Ég bý í Kanada og hérna, ef þú kaupir frelsi þá eyðist inneignin sjálf eftir 30-60 daga ef þú hefur ekki notað hana og númerinu...

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þeir töluðu við einhvern Bandarískan grasflóttamann og lækninn hans. Hann var einmitt með krabbamein og búinn að vera í mörg ár. Búinn að prófa öll lyf, meðferðir, aðgerðir o.s.frv. og þetta er það sem virðist virka fyrir hann. Alla vega það sem læknirinn sagði. Ef lyf A virkar betur fyrir sjúkling en lyf B, af hverju ætti maður þá að segja honum að taka lyf B? Þ.e.a.s. án tillits til þess að lyf A er í þessu tilfelli gras. Mér finnst allt í lagi að leyfa þetta en hins vegar finnst mér full...

Re: Símkortin!

í Farsímar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta kemur greinilega fram í skilmálum þegar þú kaupir frelsiskort, hvort sem það er hjá Símanum eða annars staðar. Ef þú kaupir ekki inneign í 6 mánuði, þá hættir að vera hægt að hringja í þig og þú hefur þá 6 mánuði í viðbót til að kaupa inneign og þar með opna kortið aftur. Ef þú gerir það ekki, þá geta þeir látið annan hafa númerið. Þeir eru nefnilega ekkert með endalaus númer og þó þú kaupir eitthvað kort, þá þýðir það ekki að þú getir bara haldið númerinu að eilífu ef þú ert ekki að...

Re: og vodafone

í Farsímar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Íslandssími átti Rautt þannig að ef þú varst með Rautt, þá ertu núna hjá Vodaphone. Skv. heimasíðu BT þá er BTGSM sjálfstætt símafyrirtæki sem hefur samt notað kerfi Íslandssíma, væntanlega skv. samningum sem nú eru við Vodaphone. BTGSM ætti því ekki að breytast.

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það var reyndar BC premierinn sem keyrði fullur. Annars var ég að sjá í imbanum að það eru farnir að streyma lyfjagrasflóttamenn frá Bandaríkjunum til Kanada vegna þess að lyfjagras (kannabis til lækninga) er leyft hér en ekki þar. Góð þróun eða hvað? :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok