Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ætli þeir hafi ekki bara horft á Bush og séð lygamælinn fara á fullt eins og ég ;) Annars var premierinn hér í Alberta eitthvað að rífa sig og segja að við ættum að standa með vinum vorum Bandaríkjamönnum en honum var víst sagt að halda kjafti frá Ottawa ;)

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég held að það sé nokkuð ljóst að Kanadamenn myndu ekki þora að standa í vegi fyrir áætlunum BNA á nokkurn hátt. Þeir eiga mjög mikið undir viðskiptum og velvilja BNA þannig að þeir hugsa frekar um sína hagsmuni. Gott dæmi þegar Kanadamenn tóku upp metrakerfið. Þegar þeir tilkynntu BNA að nú myndi krossviður ekki lengur fást í 4'x8' plötum heldur í 1200x2400 þá sögðust Kanar bara kaupa það af einhverjum öðrum og Kanadamenn fljótir að skipta um skoðun. Timburiðnaðurinn er því allur í tommum,...

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er ekki endilega fyrir ókunnuga heldur fyrir hverfið. Alveg eins og í litlum bæ þar sem allir vita hver þessi krakki er, þá myndi hverfið þekkja þessa krakka. Allir kennararnir þeirra myndu vita að þeir hefðu stolið, allar gömlu frænkurnar, afi og amma, pabbi og mamma að sjálfsögðu, foreldrar allra vina þeirra o.s.frv.

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mér finnst ekki skipta neinu máli af hverju þau stela. Þau vita að það er rangt og hvort sem þau gera það af hópþrýstingi eða vegna þess að þeim finnst spennandi eða vegna þess að þau langar í eitthvað sem þau vita að foreldrar þeirra myndu ekki kaupa handa þeim, þá þarf að refsa þeim svo þau hætti því. Hvað myndir þú gera ef þú ættir krakka sem stela? Bara segja skamm? Líka ef það væru birtar myndir af þeim í búðunum, þá fá þau refsingu frá öllu hverfinu. Ef ekki, þá þarf að treysta á það...

Re: Kosningaaldurinn........

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Flugleiðir er gott dæmi en þetta hefur svo sem gerst líka með önnur fyrirtæki. Ég man ekki hvaða stjórnmálamaður sagði frá því að hann hefði verið að selja ís í samkeppni við MS og þeir lækkuðu verðið niður í ekki neitt en sama daginn og hann gafst upp og lokaði fyrirtækinu hækkuðu þeir verðið aftur. Önnur fyrirtæki kaupa hins vegar bara sína keppinauta, t.d. Stöð 2 með Sýn og Stöð3.

Re: Um tölvubransann og jafnréttismál

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hann er nú varla uppi en kannski smá fastur í að horfa öfundaraugum á aðra fá eitthvað uppí hendurnar. Það er nú ekki eins og þjóðfélagið sé eitthvað réttlátt og ég held að flestir hafi einhvern tímann rekist á fólk sem hafði nælt sér í gott starf gengum klíku en ekki vegna eigin verðleika. Hins vegar er afskaplega lítið sem maður getur gert í svoleiðis nema horfa fram á veginn og reyna að koma sér áfram sjálfur.

Re: Skemmtileg sýn í íþróttirnar

í Húmor fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvernig er það, má bíta í júdó? ;)

Re: Páskafrí

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nei, þið verðið bara að sitja heima á klakanum og lesa meðan ég er kominn í sumarfrí :)

Re: Kosningaaldurinn........

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
“Telji neytendur að eitt fyrirtæki sé að misnota markaðsráðandi aðstöðu sína, þá er auðvelt fyrir þá að stofna fyrirtæki í samkeppni við það.” Þeir verða að hafa peninga til þess og jafnvel þó þeir hafi það þá gerist það sem við höfum oft séð á Íslenskum markaði.. markaðsráðandi fyrirtækið sem er búið að safna upp gróða á einokuninni er samkeppnishæfara um verð og gæti þess vegna lækkað verð niður fyrir kostnað í einhvern tíma meðan nýja fyrirtækið fer á hausinn. Eftir það geta þeir hækkað aftur.

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvað finnst þér heimskulegt? Að ætlast til að krakkar beri ábyrgð á gerðum sínum og að þeim sé á einhvern hátt refsað fyrir það sem þau gera sem þau vita að er rangt? Ef þú segir alltaf um krakka, já greyin, þau vita ekki betur, þá halda þau bara áfram að vita ekki betur. Ég þekki dæmi þess, 4 systkini sem ég þekki. Ekkert af þeim fékk almennilegt uppeldi nema elsta stelpan sem átti að bera ábyrgð á öllu og passa hin. Hin voru eins og villingar stelandi út um allan bæ og foreldrarnir sögðu...

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Og ef þú trúir fullyrðingum Bandaríkjastjórnar í blindni, þá er það þinn höfuðverkur. Allir geta haft rangt fyrir sér af og til. Líka ríkisstjórnir.

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Jú, ég hef verið að fylgjast með fréttum og ég hef séð þá fullyrða alla þessa hluti en ekki séð neinar sannanir. Meira að segja ef þú leitar aðeins uppá við, þá geturðu séð linkinn sem ég setti um lekann hjá MI6. Leyniþjónustumanni hjá Bretum var bara nóg boðið við allar þessar fullyrðingar og lak því að þeir hefðu ekkert þær sannanir sem Blair og Bush sögðust hafa. Það er mjög auðvelt að fullyrða en það sem er fullyrt þarf ekki endilega að vera satt.

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Krakkarnir gera sér ekki grein fyrir þessu? Halló? Ertu að tala um illilega vangefna krakka eða hvað? Ég hnuplaði held ég einu sinni úr búð þegar ég var 9 eða 10 ára og ég vissi vel að það var rangt en ég gerði það vegna þess að mér fannst það spennandi. Ef það hefði verið inní dæminu að það kæmi mynd af mér í Mogganum og allir myndu horfa á mig illilega í næsta fjölskylduboði, þá hefði ég hugsað mig tvisvar um. Jafnvel þó það hefði bara verið hengd upp mynd af mér í búðinni, þá var þetta...

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvernig og hvenær var þeim ógnað af Saddam? Ef Saddam átti gjöreyðingarvopn og var tilbúinn að nota þau af hverju gerði hann það ekki?

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hugsaðu bara aðeins sjálfur. Ef Pétur hótar Páli og Páll drepur Pétur, þá var Pétur alla vega ekki alveg saklaus vegna þess að hann hótaði. Hins vegar ef Pétur þjóðarleiðtogi hótar þjóð Páls þjóðarleiðtoga og hann tekur þá ákvörðun að fara í stríð til að drepa Pétur, þá bitnar það á þjóð Péturs sem hefur ekkert gert. Stríð veldur miklum hörmungum og mín skoðun er að það beri að forðast meðan hægt er. Mjög auðvelt fyrir okkur að sitja á rassagatinu uppí sófa og horfa á þetta í imbanum. Ekki...

Re: Kosningaaldurinn........

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég vildi líka benda á það að börn undir 16 ára borga líka skatt. Þau borga 6% skatt af öllum tekjum yfir 89.045 á ári og hafa engan persónuafslátt. Það er margt í þjóðfélaginu sem virkar frekar fáránlega. T.d. þegar ég var 16 var ég að vinna með fleiri krökkum og einn var 15. Það var tekinn skyldusparnaður, 15% af okkur öllum nema honum þannig að hann fékk miklu meira í vasann en við. Eins og er, þá ertu sakhæfur 15, borgar skatt 16, bílpróf 17, sjálfræði+kosningaréttur 18 og áfengi 20....

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mér finnst ekki eðlilegt að þjóðarleiðtogar hóti hryðjuverkaárásum en mér finnst heldur ekki eðlilegt að ráðast á þjóðir þeirra að fyrra bragði án þess að það hafi sýnt sig að þjóðarleiðtoganum sé alvara og að hann hafi einhver tök á því að gera alvöru úr hótun sinni en sé ekki bara einhver vitleysingur með kjaft. Var annars Saddam að hóta einhverju? Ég varð ekki mikið var við það nema hann sagði að þeir myndu verja sig ef á þá yrði ráðist þó það hafi nú farið eitthvað lítið fyrir því hjá honum.

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ok, ef þér finnst ekki í lagi fyrir mann að drepa annan mann af því sá fyrrnefndi hótaði honum, af hverju er þá í lagi að ráðast á heila þjóð vegna þess að leiðtogi hennar hótaði einhverju?

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er ekki svar. Viltu að ég endurtaki spurninguna? Hér er hún: “Þannig að ef ég hóta þér, þá mátt þú drepa mig?”

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Áttu erfitt með að svara?

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég skil þessa setningu þannig að þeir hafi ekki haft hugmynd um hvort það væri eitthvað þarna, hvar það væri og þeir hafi ekki einu sinni haft uppljóstrara sem þeir gætu gengið að því eins og hann segir, hann *heldur* að þeir muni *finna* fólk sem muni segja þeim hvar vopnin séu.

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er sammála því en að einfaldlega vera “með kjaft” er ekki endilega sama og að hýsa eða styðja hryðjuverkamenn. Hvar eru sannanirnar?

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þannig að ef ég hóta þér, þá mátt þú drepa mig?

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já, margt fólk sem hefur efni á Benz hefur ekki orðið ríkt á því að kaupa eigið grænmeti. Svo er líka til fólk sem er hreinlega stelsjúkt og tekur smáhluti og hitt og annað þó það vanti það ekki.

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Moose: Ég sé engar sannanir í þessum linkum. Saddam segist hafa kjarnorkuvopn, Bin Laden segist hafa kjarnorkuvopn. Eru það tengsl? Líkur eru á að báðir hafi þar að auki verið að ljúga, enda notuðu þeir ekki þessi vopn sem þeir þóttust hafa. Stjórnvöld í Bandaríkjunum, þar á meðal Bush sjálfur lýstu því yfir að Saddam hefði tengsl við Al Quaeda. Það reyndi Blair einnig en þá ofbauð einhverjum leyniþjónustumanninum og lak því út úr MI6 að þeir hefðu engar sannanir fyrir þessu....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok