Þetta er spurning um að hugsa um lausnir til framtíðar. Þú segir að lestir taki svo mikla orku að það taki því ekki á svona stuttum leiðum, það er náttúrulega rugl bugl og vitleysa. Er ekki allt vaðandi í orku hér, raforka, tilraunir með að knýja farartæki áfram með vetni. Að mínu viti ættum við hér á Íslandi einmitt að huga að lestarsamgöngum og reyna aðeins að stemma stigu við notkun einkabílsins. Auk þess hef ég alveg trú á því að lestarsamgöngur geti vel borgað sig á suð-vestur horninu....