Æi ég veit það ekki ég tengi þetta einhvern veginn bara við fyllirí, líklegast sökum þess hvað ég get verið mikill fylliraftur sjálfur, fyllirafturinn er nefninlega alltaf einn ásamt þeim sem er dolfallinn yfir honum. Ég er meira fyrir að fara í kringum grautinn svona eins og kötturinn, svolítið undir rós, þetta er meira svona í dagbókina. En ég þakka þér samt fyrir að gefa mér ljóð því það er ekki sjálfsagt að gefa ljóð, takk.